Baldur býður sig fram til forseta

Baldur Þór­halls­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, mun sækj­ast eftir því að verða næsti for­seti Íslands. „Við ætlum að svara kall­inu hátt og skýrt og taka slag­inn.“

Baldur býður sig fram til forseta
Baldur Þór­halls­son til­kynnti um fram­boð sitt til for­seta rétt í þessu. Mynd: Golli

Baldur Þór­halls­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands, ætlar að gefa kost á sér til for­seta Íslands. Þetta til­kynnti hann á fundi í Bæj­ar­bíói í Hafn­ar­firði í hádeg­inu. „Við ætlum að svara kall­inu hátt og skýrt og taka slag­inn,“ sagði Baldur undir fagn­að­ar­látum við­staddra.

Sem for­seti seg­ist Baldur ætla að beita sér fyrir mann­rétt­indum allra sam­borg­ara sinna. Hann og Felix hygg­ist standa þétt við bakið á þeim sem minna mega sín auk þess að láta mál­efni barna og ung­menna sig varða. Sagði Baldur enn fremur að for­seti ætti ætíð að tala fyrir friði og vara sig á því að vera með­virkur með ráða­mönnum. 

„For­set­inn verður að standa vakt­ina. Hann verður að standa vörð um þjóð­ina,“ sagði Baldur.

Fjöl­mennivar saman komið til að fylgj­ast með til­kynn­ingu Baldurs.

Margir jákvæðir gagnvart framboðinu

Baldur hefur verið orð­aður við emb­ættið síð­ast­liðnar vikur en nýlega stofn­aði Gunnar Helgason, náinn vinur Baldurs og eig­in­manns hans Felix Bergs­sonar, Facebook-hóp þar sem hann skor­aði á hjónin að bjóða sig fram. Hópurinn, Baldur og Felix - Alla leið, telur nú á nítj­ánda þús­und manns. 

Í könnun sem Valgeir Magn­ús­son eða Valli sport, fram­kvæmda­stjóri TBWA/Norway, lét fram­kvæma mæld­ist Baldur vel meðal þjóð­ar­innar. En Valgeir er kosn­inga­stjóri fram­boðs Baldurs.

Samkvæmt könn­un­inni voru 53% svar­enda jákvæðir gagn­vart því að hann yrði næsti for­seti Íslands. Voru það umtals­vert fleiri en voru jákvæðir gagn­vart Höllu Tóm­as­dóttur, sem til­kynnti fram­boð sitt um helg­ina, en 35% voru jákvæðir gagn­vart henni. 

Fyrsti þjóðkjörni homminn sem yrði forseti

Hlyti Baldur kjör yrði hann fyrsti opin­ber­lega sam­kyn­hneigði for­set­inn í heim­inum sem hlyti þjóð­kjör. Aðeins einn for­seti hefur verið opin­ber­lega sam­kyn­hneigður. Það er núver­andi for­seti Lett­lands, en hann var þing­kjör­inn. Það yrði því stór atburður í sögu hinsegin fólks ef Baldur og Felix yrðu for­seta­hjón.

Í sam­tali við Heim­ild­ina fyrir skemmstu sagði Baldur að það væru aðeins örfá miss­eri síðan ein­hver gat séð fyrir sér, og jafn­vel hann sjálfur, að það væri raun­hæft að sam­kyn­hneigt par færi á Bessa­staði. „Þegar við Felix byrj­uðum saman gátum við ekki einu sinni skráð okkur í sam­búð, við máttum það ekki. Það eru ekki nema 14 ár síðan við máttum giftum okkur.“ 

Greini­legt er að margir láta sig sam­kyn­hneigð hjón­anna varða en nokkuð hefur borið á hatri og for­dómum í garð þeirra upp á síðkastið. Hefur það einkum sést í áður­nefndum Facebook-hóp. En þar hafa safn­ast inn ógeð­felldar athuga­semdir um sam­kyn­hneigð Baldurs og Felix. Til dæmis ýjaði einn maður að því að Íslend­ingar væru búnir að vinna sér inn nægi­lega „kyn­vill­inga­frægð“ og hefðu því ekk­ert að gera við hommapar á Bessa­staði.

Bætist ört í hóp frambjóðenda

Fjölga tekur í hópi þeirra sem gefa kost á sér til emb­ætt­is­ins. En um helg­ina til­kynnti Halla Tóm­as­dóttir, for­stjóri og fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­andi, um fram­boð sitt. Hún hlaut næst­flest atkvæði í kosn­ing­unum 2016.

Aðrir sem hafa boðið sig fram eru meðal ann­ars Ástþór Magn­ús­son athafna­maður, Sigríður Hrund Pét­urs­dóttir fjár­festir, Arnar Þór Jónsson hæsta­rétt­ar­lög­maður og Tómas Logi Hall­gríms­son björg­un­ar­sveit­ar­maður.

Þá safna Agnieszka Sokolowska, verk­efna­stjóri og túlkur, Angela Rawlings, Ásdís Rán Gunn­ars­dóttir, Borgþór Alex Ósk­ars­son og Einar Gunn­ars­son með­mæl­endum á island.is meðal þónokk­urra ann­arra.

Þau sem enn eru bendluð við emb­ættið án þess að hafa sagt af né á um fram­boð eru meðal ann­ars Jón Gnarr, grínisti og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri og Salvör Nordal, umboðs­maður barna. Þá eru Alma Möller land­læknir, Helga Þór­is­dóttir, for­stjóri Per­sónu­verndar, Hlynur Jónsson fast­eigna­miðl­ari og Eyjólfur Guð­munds­son, frá­far­andi rektor HA, enn óákveðin.

Margir vilja að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra bjóði sig fram til emb­ætt­is­ins. Aðspurð sagð­ist hún ekki hafa leitt hug­ann að slíku fram­boði. Katrín hefur þó ekki viljað svara því neit­andi að hún muni bjóða sig fram. 

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • APA
    Axel Pétur Axelsson skrifaði
    þetta er nokkuð flott trikk að láta "konuna" sína sjá um framboðsræðurnar . . . mín kona er mörghundruð sinnum fallegri en ég og gæti því tryggt mér sigurinn :) . .
    -8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár