„Ég lá emjandi á gólfinu“

Tveir þrek­vaxnir karl­menn réð­ust á lækn­inn Árna Tómas Ragn­ars­son eftir að hann neit­aði að breyta vott­orði vegna ópíóða. Málið hefur verið til­kynnt til lög­reglu. Síðustu lyf­seðlar Árna Tómasar runnu út á sunnu­dag.

„Ég lá emjandi á gólfinu“
Aldrei lent í þessu áður Árni Tómas seg­ist aldrei áður hafa orðið fyrir ofbeldi í tengslum við störf sín en hann hefur verið nokkuð í umræð­unni að und­an­förnu vegna ávís­ana ópíóða til fíkni­sjúk­linga sem varð til þess að land­lælknir svipti hann starfs­leyf­inu að hluta. Mynd: Golli

„Það komu tveir þreknir gaurar til mín á stof­una og voru nokkuð aggressí­vir. Þeir vildu að ég breytti vott­orði sem ég hafði gefið mömmu ann­ars þeirra,“ segir Árni Tómas Ragn­ars­son læknir sem varð fyrir árás á lækna­stofu sinni á þriðju­dag. 

„Hún hafði flúið til Spánar eftir að ég var hættur þar sem fíkla­mál eru frjáls­legri. Hún bað mig um að skrifa vott­orð um að hún hefði fengið dópið hjá mér og að ég bætti við að hún væri að taka þetta vegna gigtar og gam­als fót­brots. Ég hafði sagt henni að ég myndi ekki stað­festa það heldur myndi ég bara skrifa að hún væri drug addict, sem er rétt,“ segir hann.  

Árni Tómas hefur verið nokkuð í fréttum að und­an­förnu en í des­em­ber svipti land­læknis hann starfs­leyfi að hluta, leyf­inu til að ávísa verkja­lyfjum, svefn­lyfjum og kvíða­lyfjum. Hann hefur síð­ustu tvö, þrjú árin ávísað mor­fín­lyfjum til fíkni­sjúk­linga sem nota vímu­efni í æð, en upp­haf­lega var það starfs­fólk skaða­minnk­unar­úr­ræð­is­ins Frú Ragn­heiðar sem bað Árna Tómas um að skrifa upp á lyf fyrir skjól­stæð­inga sína.  

„Þetta breytir engu með afstöðu mína til sprautu­fíkla, sem eru ágæt­is­fólk að því er ég hef kynnst“

Hann seg­ist aldrei hafa orðið fyrir ofbeldi í starfi, fyrr en nú. Sonur kon­unnar sem hafði verið skjól­stæð­ingur hans, og var flutt til Spánar, hafi ekki verið sáttur við það þegar Árni Tómas neit­aði að breyta vott­orð­inu, falsa vott­orð.

„Þess vegna rudd­ust þeir inn til mín, nokkuð ógn­andi, og heimt­uðu nýtt vott­orð, sem ég neit­aði þeim um. Þeir urðu nokkuð æstir, einkum sonur kon­unnar, en ég neit­aði stöðugt og vís­aði þeim út. Þegar sá fyrri var við það að fara kom sá seinni og kýldi mig mjög föstu höggi fyrir bringspal­irnar þannig að ég lá emj­andi á gólf­inu um hríð. Það sást síðan til þeirra hlaupa út Aust­ur­stræti. Ég komst heim með harm­kvælum, en hef nú að mestu jafnað mig. Þetta er í fyrsta skipti sem fíkla­mál mín hafa endað með ofbeldi, lík­lega tveir hand­rukk­arar,“ segir Árni Tómas, sem til­kynnti málið til lög­reglu.

Honum var eðli­lega brugðið við árás­ina en hann leggur áherslu á að þetta breyti engu um hans álit á fólki með fíkni­sjúk­dóm. „Fíkl­arnir hafa alltaf verið prúðir og góðir. Þetta breytir engu með afstöðu mína til sprautu­fíkla, sem eru ágæt­is­fólk að því er ég hef kynnst,“ segir hann. 

Síðustu lyf­seðl­arnir þar sem Árni Tómas ávís­aði mor­fín­lyfjum, ópíóðum, runnu út 10. mars. Árásin átti sér stað 12. mars.

Árni Tómas er í per­sónu­legu við­tali í nýjasta tölu­blaði Heim­ild­ar­innar. Viðtalið má lesa í heild sinni í blað­inu.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

3
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár