Íslenskir lífeyrissjóðir festa kaup á 1.600 íbúðum

Sjóður sem er í eigu íslensku líf­eyr­is­sjóð­anna, hefur gengið frá kaupum á leigu­fé­lag­inu Heim­sta­den á Íslandi. Í frétta­til­kynn­ingu sem birt var fyrir stuttu segir að leigu­í­búðir sem Heim­sta­den rekur hér á landi séu um 1.600 tals­ins. Nýju eig­end­urnir stefna að því að tvö­falda stærð félags­ins á nokkrum árum.

Heimstaden
Heim­sta­den á og rekur um Mynd: Golli

Norska fjár­fest­inga­fé­lagið Fredens­borg AS, eig­andi leigu­fé­lags­ins Heim­sta­den á Íslandi, hefur sam­þykkt til­boð um kaup á leigu­fé­lag­inu sem rekið er hér á landi. Kaup­and­inn er sjóður sem að fullu í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða. Sjóð­ur­inn er í stýr­ingu hjá Stefni.   

Með kaup­unum eign­ast líf­eyr­is­sjóð­irnir um 1.600 íbúðir sem Heim­sta­den gerir út til lang­tíma­leigu hér á landi. Í frétta­til­kynn­ingu, þar sem gert grein fyrir kaup­unum, er tekið fram að kaupin eru með fyr­ir­vara um sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. 

Frumvarp fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um laga­breyt­ingu á fjár­fest­ing­ar­sjóða á íbúða­mark­aði er sagt hafa greitt fyrir kaup­unum. Tals­maður kaup­and­ans tekur fram í sam­tali við Heim­ild­ina að kaupin velti ekki á því hvort frum­varpið verði sam­þykkt á þessu vori. 

Spurður út upp­hæð kaup­verðs­ins segir tals­maður sjóðs­ins ekki geta upp­lýst um það. Selj­and­anum, Fredens­borg AS, sé aðeins heim­ilt gefa upp kaup­verðið, vegna þess að það er skráð félag. Enn sem komið er hefur Fredens­borg AS ekki birt kaup­verðið opin­ber­lega.

Nýtt uppbyggingarafl á íbúðamarkaði

Þá segj­ast nýir eig­endur munu draga til baka fyr­ir­hug­aðar upp­sagnir á um 250 leigu­samn­ingum ásamt því að taka 60 íbúðir úr sölu­ferli og aug­lýsa þær aftur til leigu.

En óvissa hefur ríkt um rekstur Heim­sta­den og fyr­ir­tækið að und­an­förnu verið að draga saman seglin hér á landi. Tekið er fram að engar breyt­ingar verði gerðar gagn­vart starfs­fólki Heim­sta­den. Sömu­leiðis segir í til­kynn­ing­unni að Egill Lúð­víks­son muni halda áfram sem for­stjóri félags­ins.  

Í til­kynn­ing­unni segj­ast nýir eig­endur Heim­sta­den stefn að því „að skapa þjón­ustu­drifið leigu­fé­lag sem verður nýtt upp­bygg­ing­ar­afl á íbúða­mark­aði og þannig styðja við mark­mið stjórn­valda um aukið aðgengi að hús­næði.“

Þá félagið hyggst fjár­magna upp­bygg­ingu á nýjum íbúðum til útleigu og stefnir að því að tvö­falda stærð félags­ins á næstu árum. 

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár