Þórður Már hættir við stjórnarkjör

Þórður Már Jóhann­es­son hefur ákveðið að draga til baka fram­boð sitt til stjórnar Festis. Samkvæmt heim­ildum Við­skipta­blaðs­ins hélt Þórður Már ræðu á aðal­fundi félags­ins í morgun þar sem hann til­kynnti að hann myndi ekki sækj­ast eftir sæti í stjórn félags­ins. Í ræð­unni gagn­rýndi hann stjórn Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins og Brú líf­eyr­is­sjóð sem lögð­ust gegn til­nefn­ingu hans.

Þórður Már Jóhannesson
Þórður Már Jóhann­es­son dregur fram­boð sitt í stjórn Festis til baka

Þórður Már Jóhann­es­son hefur ákveðið að draga fram­boð sitt til stjórnar Festis til baka. Samkvæmt frétt sem birt­ist á vef Við­skipta­blaðs­ins til­kynnti Þórður Már um ákvörðun sína í ræðu á aðal­fundi félags­ins sem hófst klukkan 10 í morgun.

Þá herma heim­ildir Við­skipta­blaðs­ins að Þórður hafi gagn­rýnt vinnu­brögð Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins (LSR) og Brúar líf­eyr­is­sjóðs harð­lega í ræðu sinni. 

Sjö buðu sig fram í stjórn félags­ins, meðal þeirra voru fjórir sitj­andi stjórn­ar­menn. Hinir þrír fram­bjóð­end­urnir eru Guðjón Auð­uns­son, frá­far­andi for­stjóri fast­eigna­fé­lags­ins Reita, og Gylfi Ólafsson, fyrrum for­stjóri Heil­brigð­is­stofn­unar Vest­fjarða, og loks Þórður Már, sem til­nefndur var af til­nefn­ing­ar­nefnd Festis. 

Í frétt Við­skipta­blaðs­ins frá því í lok febr­úar segir að vegna laga­á­kvæða um kynja­kvóta sé ljóst að tveir sitj­andi stjórn­ar­menn félags­ins sem buðu sig fram, þær Margrét Guð­munds­dóttir og Sigurlín Ingv­ars­dóttir, séu sjálf­kjörnir. 

Valið mun því vera á milli Guðjóns Auð­uns­sonar, Gylfa Ólafs­sonar, Hjör­leifs Páls­sonar og …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár