Mikil umræða hefur skapast í kringum símakosningu Söngvakeppni sjónvarpsins sem haldin var á laugardaginn. Þar bar Hera Björk með laginu Scared of Heights sigur úr býtum í einvígi sínu við Bashar Murad og lag hans Wild West.
Vísir greindi frá því í gær að feðgar hefðu reynt að kjósa bæði Heru og Bashar á laugardaginn með símhringingum. Föðurnum tókst að kjósa Heru án vandræða en þegar sonurinn ætlaði að kjósa Bashar slitnaði línan strax. Hann reyndi að hringja nokkrum sinnum en það tókst aldrei.
Í gær greindi Vísir einnig frá því að Einar Stefánsson, lagahöfundur „Wild West,“ hefði skrifað forsvarsmönnum Söngvakeppninnar bréf og krafist sjálfstæðrar rannsóknar á kosningu keppninnar. Vill Einar enn fremur endurtekningu símakosningarinnar.
Villumelding ekki vegna galla í framkvæmd keppninnar
Theodór Carl Steinþórsson starfar í vörustýringu á fyrirtækjasviði Vodafone og hefur verið viðriðinn framkvæmd símakosninga á Íslandi í 20 ár. Tók hann meðal annars …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.












































Ef sömu reglur hefðu gilt hefði Bashar unnið með miklum mun og einnig hefðu Reykjavíkurdætur unnið í fyrra.
Val á milli efstu tveggja stuðlar að lélegri árangri Íslendinga úti. Sérstök lög sem gjarnan ná langt í keppninni úti tapa oftast þegar valið er á milli tveggja efstu.
Ég er viss um að Bashar myndi ná lengra í keppninni úti en Hera og einnig nokkuð viss um að Reykjavíkurdætur hefðu náð lengra í fyrra en Systur.