Í september á síðasta ári liðu 29 mínútur á milli fyrsta og annars skutuls sem veiðimenn á skipinu Hval 8 skutu í fyrstu langreyðina sem þeir drápu. Það þýðir að það tók hana fleiri en 30 mínútur að deyja. Matvælastofnun (MAST) hefur nú sektað Hval hf. um 400.000 krónur fyrir brot á dýravelferðarlögum. „Samkvæmt reglugerð um hvalveiðar skal án tafar framkvæma endurskot ef dýr drepst ekki við fyrra skot.“
„Við sjáum það á myndatökunni að það líða 29 mínútur frá því að fyrsta skutlinum er skotið í dýrið þar til næsta skutli er skotið. Það er þessi töf á endurskoti sem við teljum mjög alvarlega,“ sagði Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri MAST, í samtali við Heimildina í september.
MAST stöðvaði veiðar á hvalveiðiskipinu Hval 8 þann 14. September. Ástæðan voru þessi brot á velferð dýra við veiðar á langreyði.
Hvalur hf. sendi matvælaráðuneytinu bréf í lok janúar þar sem þeir óskuðu efnir endurnýjun leyfis til heimildar til veiða á langreyðum. Telur framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Kristján Loftsson, „rétt og eðlilegt“ að leyfið verði til 5 ára en framlengist sjálfkrafa um eitt ár við lok hvers starfsárs, „eða þá hitt að leyfið sé a.m.k. til 10 ára“. Með því yrði tryggður „eðlilegur fyrirsjáanleiki“ í rekstri og starfsemi Hvals.
Fleiri stjónvaldssektir
MAST lagði stjórnvaldssektir á fleiri fyrirtæki. „Sláturhús á Suðvesturlandi hlaut 160.000 krónu sekt fyrir að hafa látið fótbrotinn grís liggja yfir heila helgi í sláturrétt áður en honum var slátrað.“ Grísinn hafði fótbrotnað í flutningum til sláturhússins og hefði honum því átt að vera slátrað strax við móttöku. Annað sláturhús á Suðurlandi fékk sekt upp á 145.000 krónur fyrir að hafa fyrir mistök ekki svipt grís meðvitund og var blóðtæmdur fyrir aflífun.
Sumarið 2023 var nautgripum haldið inni af þremur kúabúum á Vesturlandi í samtals 8 vikur, í stað þess að tryggja þeim útivist á grónu landi. Fengu fyrirtækin sekt upp á 350.000 krónur til 540.000 krónur. Réðust upphæðirnar meðal annars af fjölda nautgripa.
Athugasemdir