Ísraelar skoða listann sérstaklega því enginn íslenskur ríkisborgari er á honum

Í til­kynn­ingu frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu segir að tíma­lína mögu­legra fólks­flutn­inga dval­ar­leyf­is­hafa frá Gaza liggi ekki fyrir. Verk­efnið sé ein­stakt því engir íslenskir rík­is­borg­arar séu á lista stjórn­valda. Þetta hafi í för með sér að ísra­elsk stjórn­völd þurfi að skoða málið sér­stak­lega.

Ísraelar skoða listann sérstaklega því enginn íslenskur ríkisborgari er á honum
Gaza fjöldi manns bíður þess að kom­ast yfir landa­mærin í Rafah yfir til Egypta­lands. Ísra­els­her hefur boðað árásir á svæðið á næstu dögum. Mynd: AFP

Í til­kynn­ingu frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu segir að listi íslenskra stjórn­valda yfir þá sem koma á yfir landa­mærin frá Gaza til Egypta­lands sé ein­stakur því eng­inn íslenskur rík­is­borg­ari sé á honum né heldur neinn með tvö­falt rík­is­fang. Eingöngu dval­ar­leyf­is­hafar. Þetta hafi í för með sér að ísra­elsk stjórn­völd þurfi að skoða málið sér­stak­lega. Það gæti þýtt að tafir verði á að hægt verði að flytja fólk með dval­ar­leyfi frá átaka­svæðum á Gaza.

Til­kynn­ingin segir að verk­efnið sé ein­stakt hvað þetta varðar. Þar er minnst á að önnur Norð­ur­lönd ann­ist ekki fram­kvæmd fólks­flutn­inga dval­ar­leyf­is­hafa yfir landa­mærin vegna þess að aðstoð þeirra snúi að rík­is­borg­urum og í ein­hverjum til­vikum dval­ar­leyf­is­höfum. 

Ekki liggur fyrir hver end­an­leg tíma­lína máls­ins verður. „Fyrir liggur að stjórn­völd munu ein­göngu vinna eftir diplómat­ískum leiðum. Full­trúar stjórn­valda hafa þannig fylgt öllum ferlum sem stofn­anir …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EK
    Elísabet Kjárr skrifaði
    “Þar er minnst á að önnur Norðurlönd annist ekki framkvæmd fólksflutninga dvalarleyfishafa yfir landamærin vegna þess að aðstoð þeirra snúi aðeins að ríkisborgurum.”

    Þetta er ekki rétt. Öll hin norðurlöndin (Danir, Norðmenn, Finnar og Svíar) hafa aðstoðað dvalarleyfishafa að koma til sín. Finnst skrýtið að það komi ekki fram hjá Heimildinni af öllum fjölmiðlum.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Föst á Gaza

FréttirFöst á Gaza

Sema segir engar mútur hafa verið greiddar – Ráðamenn reyni að sverta mann­orð sjálf­boða­liða

Stofn­andi og for­seti Solaris, sem hefur unnið að því að koma dval­ar­leyf­is­höfum frá Gaza til Íslands, segir það „gjör­sam­lega sturlað“ að fylgj­ast með ráð­herrum í rík­is­stjórn Íslands, stofn­unum og þing­fólki sem ýji ítrekað að því að hún og aðrir sjálf­boða­liðar séu að brjóta af sér „og jafn­vel fremja lög­brot í við­leitni okkar til að koma fólki undan þjóð­ern­is­hreins­unum.“
FréttirFöst á Gaza

Dval­ar­leyf­is­hafar senda kvörtun til umboðs­manns Alþingis

Móðir og þrjú börn hafa fengið sam­þykkta fjöl­skyldu­sam­ein­ingu á Íslandi en sitja enn föst á Gaza. Fjöl­skyldu­fað­ir­inn er dval­ar­leyf­is­hafi á Íslandi. Lög­fræð­ingur fjöl­skyld­unnar hefur sent inn kvörtun til umboðs­manns Alþingis. Er þar haldið fram að íslenska ríkið fari á mis við laga­á­kvæði og alþjóð­legar skuld­bind­ingar með aðgerða­leysi sínu við að forða fólki frá stríðs­hrjáðum svæðum á Gaza.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár