Leit stendur yfir að Jóni Þresti í almenningsgarði í Dublin

Írska lög­reglan hefur hafið leit að nýju að Jóni Þresti Jónssyni, sem hefur verið saknað í fimm ár. Hann sást síð­ast yfir­gefa hótel á Dublin 9. febr­úar 2019. Kafarar og leit­ar­hundar taka þátt í leit­inni.

Jón Þröstur Jónsson
Jón Þröstur Jónsson Síð­ast­lið­inn föstu­dag voru fimm ár liðin frá því að síð­ast sást til Jóns Þrastar Jóns­sonar. Hann var á hót­eli í Whitehall-hverf­inu í Dublin, þar sem hann ætl­aði að taka þátt í póker­móti. Mynd: Írska lögreglan/Facebook

Leit stendur nú yfir í almenn­ings­garði í Dublin að Jóni Þresti Jónssyni, sem hvarf spor­laust í Dublin á Írlandi fyrir fimm árum. Lög­regl­unni á Írlandi bár­ust tvær nafn­lausar ábend­ingar í tengslum við hvarfið og hófu leit í dag í almenn­ings­garð­inum Santry Demense. Kafarar og leit­ar­hundar taka þátt í leit­inni. 

Síð­ast­lið­inn föstu­dag voru fimm ár liðin frá því að síð­ast sást til Jóns Þrastar. „Í fimm ár hefur okkur liðið eins og við séum að tala við stein­vegg með litlum sem engum stuðn­ingi yfir­valda (íslenskra eða írskra), það tekur sinn toll af okkur öllum í þokka­bót að syrgja Jón Þröst,“ segja aðstand­endur Jóns Þrastar í færslu sem þau birta á Facebook-síðu þar sem leit­inni að Jóni Þresti hefur verið fylgt eftir. 

Jón Þröst­ur fór til Dublin í byrjun febr­úar árið 2019 til að taka þátt í póker­móti.

Unn­usta hans, Jana Guðjóns­dótt­ir, var með í för og höfðu þau hugsað sér að skoða borg­ina sam­an að mót­inu loknu. Rann­sókn máls­ins hef­ur lítið sem ekk­ert miðað áfram frá því björg­un­ar­sveit kembdi leit­ar­svæði í borg­inni í byrj­un mars 2019 og ábend­ing barst um að Jón Þröst­ur hefði mögu­lega ferð­ast með leigu­bíl. 

„Þetta hefur verið langur og grýttur vegur og við höfum enn ekki kom­ist á leið­ar­enda,“ segir jafn­framt í færsl­unni.

Tvö systk­ina Jóns Þrastar eru nú stödd á Írlandi í þeirri von að end­ur­vekja sam­skipti við írsku lög­regl­una og fá loks ein­hver svör. Systk­inin hafa einnig hitt full­trúa írskra sam­taka sem sér­hæfa sig í manns­hvörfum og segj­ast hafa fengið nýjar upp­lýs­ingar sem þau þurfa tíma til að meta. Þau munu ekki tjá sig sér­stak­lega um hvað felst í þeim upp­lýs­ingum. 

Systk­inin eru þakk­lát þeim sem hafa sýnt fjöl­skyld­unni stuðn­ing í gegnum árin. „Við kunnum virki­lega að meta góð­vild ykkar í garð fjöl­skyld­unnar,“ segir í færsl­unni á Facebook.  

Leit mun standa yfir í almenn­ings­garð­inum í dag og halda áfram á morgun ef þörf þykir, eftir því sem The Irish Sun og Irish Independent greina frá. 

Þau sem kunna að hafa upp­lýs­ingar um hvarf Jóns Þrastar eru beðin um að hafa sam­band við írsku lög­regl­una í síma 01 6664400, eða ábend­ing­ar­síma lögregl­unnar: 1800 666 111. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár