„Sjálfstæðisflokkurinn vill nota líf þessa fólks sem skiptimynt“

Umræður um fjöl­skyldu­sam­ein­ingar dval­ar­leyf­is­hafa sem fastir eru á Gaza voru áber­andi í ræðum í störfum þings­ins í dag. Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir og Inger Erla Thomsen sögðu Sjálf­stæð­is­flokk­inn nota fólk sem fast væri á Gaza sem skipti­mynt gegn því að knýja í gegn harð­ari útlend­inga­lög­gjöf.

„Sjálfstæðisflokkurinn vill nota líf þessa fólks sem skiptimynt“
Alþing­is­menn ræddu um kon­urnar þrjár sem björg­uðu þremur börnum og móður þeirra frá Gaza á dög­unum. Mikið hefur verið þrýst á rík­is­stjórn­ina að sækja dval­ar­leyf­is­hafa á svæðið. Mynd: Golli

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, sak­aði Sjálf­stæð­is­flokk­inn um að nota líf dval­ar­leyf­is­hafa á Gaza sem skipti­mynt í ræðu sinni á Alþingi í dag. Vísaði Þór­hildur Sunna til orða Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra sem sagði við Heim­ild­ina í gær að það væri flókið að aðstoða þá sem fastir eru á Gaza að kom­ast til Íslands.

Þá hafi tvö við­töl sem Bjarni Bene­dikts­son utan­rík­is­ráð­herra veitti sjón­varp­stöðvum í gær útskýrt nákvæm­lega hvað það væri sem talið sé að sé svona flókið. „Það þarf fyrst að sam­mæl­ast um að herða enn frekar reglur um flótta­fólk á Íslandi. Það þarf að sam­þykkja kröfu Sjálf­stæð­is­flokks­ins um að nota stál­hnef­ann sem þeir hafa viðrað oft að þeir vilji nota gagn­vart fólki á flótta.“ Sagði Þór­hildur Sunna að að öðrum kosti kæmust til lands­ins börn, konur og menn …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    NÚNA ER BJARNI BENEDIKTSSON reiður. Flóttafólk og stríðhrjáð börn á Gaza eru að trufla hann í að klára að selja Íslandsbanka, Leifsstöð, Landsvirkjun og fleira fínerí sem skaffar þjóðinni arð. Arðinn á að einkavæða👿👿👿
    ÁTVR og Póstinn. Þessu fólki er ekkert heilagt. Eru að kafna úr frekju. Einkavæða arð og ríkisvæða töp 🤢😱👽💩💩💩
    3
  • JAT
    Jon Arvid Tynes skrifaði
    Það er átakanlegt að hlusta á málflutning sjálfstæðismanna í þessu máli. Þeir virðast ekki kunna skil á eplum og appelsínum. Hérna er um að uppfylla réttindi þessa fólks. Hins vegar er framkvæmd innflytjendamála hér á landi í tómu rugli, enda hafa sjálfstæðismenn stýrt málaflokknum í ríkisstjórn.
    2
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Hver er stefna VG liða í málefnum Palestínufólks ?
    Er það að ,,sleikja fíluna" úr sjálfstæðisflokknum ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Föst á Gaza

FréttirFöst á Gaza

Sema segir engar mútur hafa verið greiddar – Ráðamenn reyni að sverta mann­orð sjálf­boða­liða

Stofn­andi og for­seti Solaris, sem hefur unnið að því að koma dval­ar­leyf­is­höfum frá Gaza til Íslands, segir það „gjör­sam­lega sturlað“ að fylgj­ast með ráð­herrum í rík­is­stjórn Íslands, stofn­unum og þing­fólki sem ýji ítrekað að því að hún og aðrir sjálf­boða­liðar séu að brjóta af sér „og jafn­vel fremja lög­brot í við­leitni okkar til að koma fólki undan þjóð­ern­is­hreins­unum.“
FréttirFöst á Gaza

Dval­ar­leyf­is­hafar senda kvörtun til umboðs­manns Alþingis

Móðir og þrjú börn hafa fengið sam­þykkta fjöl­skyldu­sam­ein­ingu á Íslandi en sitja enn föst á Gaza. Fjöl­skyldu­fað­ir­inn er dval­ar­leyf­is­hafi á Íslandi. Lög­fræð­ingur fjöl­skyld­unnar hefur sent inn kvörtun til umboðs­manns Alþingis. Er þar haldið fram að íslenska ríkið fari á mis við laga­á­kvæði og alþjóð­legar skuld­bind­ingar með aðgerða­leysi sínu við að forða fólki frá stríðs­hrjáðum svæðum á Gaza.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár