Katrín: „Það er búið að senda nafnalista til egypskra stjórnvalda“

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að nafna­listi hafi verið sendur til egypskra stjórn­valda með nöfnum dval­ar­leyf­is­haf­anna á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar sem fastir eru á Gasa. Þetta sé þó ekki svo ein­falt að nóg sé að senda nafna­lista. Þetta sé stór aðgerð fyrir íslensku utan­rík­is­þjón­ust­una.

Katrín: „Það er búið að senda nafnalista til egypskra stjórnvalda“
For­sæt­is­ráð­herra segir það heil­mikla aðgerð fyrir litla utan­rík­is­þjón­ustu að bjarga dval­ar­leyf­is­höfum frá Gasa. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að búið sé að senda lista með nöfnum þeirra sem fengið hafa sam­þykkt dval­ar­leyfi á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar til egypskra stjórn­valda. „Það liggur algjör­lega fyrir. Það er meira að segja búið að senda upp­færðan lista.“ Katrín segir þó aðgerð­ina ekki vera svo ein­falda að það þurfi aðeins að senda lista. 

„Það hafa verið mjög virk sam­skipti utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við egypska sendi­ráðið í Osló,“ segir hún.

Katrín segir að til þess að aðilar geti kom­ist yfir landa­mærin þurfi sam­skipti við utan­rík­is­þjón­ust­una bæði í Ísrael og Egypta­landi. Eftir hennar skiln­ingi hafi öll gögn borist frá íslenska utan­rík­is­ráðu­neyt­inu.

Katrín segir að mikið hafi verið unnið í máli fjöl­skyldu­sam­ein­ing­anna. „Þetta þykir auð­vitað tölu­verður fjöldi fyrir svona litla utan­rík­is­þjón­ustu og stjórn­sýslu að takast á við. Það er bara staða máls­ins að þetta er ennþá í vinnslu.“

Stór aðgerð fyrir litla utanríkisþjónustu

Heim­ildin spurði Katrínu á hverju sam­ein­ing­arnar strönd­uðu þá. „Mér skilst að þetta snú­ist svo­lítið um bæði að það sé flókin stjórn­sýsla og stór hópur. Þetta sé heil­mikil aðgerð,“ sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann. „Það hefur verið mat fólks að þetta sé tölu­vert flókin aðgerð.“

Hún segir að mjög mis­un­andi sé staðið að málum á hinum Norð­ur­lönd­unum. „Við erum auð­vitað ekki með svona sam­bæri­lega utan­rík­is­þjón­usutu og þau.“ 

Eftir því sem stjórn­völd skilji þurfi að senda fólk til að taka á móti flótta­mönn­unum þegar þeir koma yfir landa­mærin frá Gasa. Samkvæmt upp­lýs­ingum Katrínar sé ekki nóg að Alþjóða­flutn­ings­stofn­unin (IOM) taki á móti fólk­inu. 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÆS
    Ævar Sigdórsson skrifaði
    Hún hefur sent óskalista til Jólasveinsins?
    0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Úr því íslensk stjórnvöld ráða illa við málið, af hverju fá þau Bjarni og Katrín þá ekki þessar þrjár konur, sem virðast kunna til verka, til að annast um þetta fyrir sig?
    1
  • Sigríður Jónsdóttir skrifaði
    Í ljósi nýjustu frétta um að þrjár konur hafi gert hið ómögulega og sótt fjölskyldu frá Gaza, þá er ljóst að ríkisstjórn Íslands á sér engar málsbætur! Hún hefur ekki unnið vinnuna sína! Að amast við örvæntingarfullu fólki í tjöldum og gera ekki það sem þarf að gera er glæpsamlegt gagnvart þessu fólki og óboðlegt íslensku þjóðinni! Það er svo mikil skömm að þessu!
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Föst á Gaza

FréttirFöst á Gaza

Sema segir engar mútur hafa verið greiddar – Ráðamenn reyni að sverta mann­orð sjálf­boða­liða

Stofn­andi og for­seti Solaris, sem hefur unnið að því að koma dval­ar­leyf­is­höfum frá Gaza til Íslands, segir það „gjör­sam­lega sturlað“ að fylgj­ast með ráð­herrum í rík­is­stjórn Íslands, stofn­unum og þing­fólki sem ýji ítrekað að því að hún og aðrir sjálf­boða­liðar séu að brjóta af sér „og jafn­vel fremja lög­brot í við­leitni okkar til að koma fólki undan þjóð­ern­is­hreins­unum.“
FréttirFöst á Gaza

Dval­ar­leyf­is­hafar senda kvörtun til umboðs­manns Alþingis

Móðir og þrjú börn hafa fengið sam­þykkta fjöl­skyldu­sam­ein­ingu á Íslandi en sitja enn föst á Gaza. Fjöl­skyldu­fað­ir­inn er dval­ar­leyf­is­hafi á Íslandi. Lög­fræð­ingur fjöl­skyld­unnar hefur sent inn kvörtun til umboðs­manns Alþingis. Er þar haldið fram að íslenska ríkið fari á mis við laga­á­kvæði og alþjóð­legar skuld­bind­ingar með aðgerða­leysi sínu við að forða fólki frá stríðs­hrjáðum svæðum á Gaza.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár