Færeyingar safna fyrir Grindvíkinga

Færeyski Rauði Krossinn hvetur bæði ein­stak­linga og fyr­ir­tæki í Færeyjum til að taka þátt í söfnun til að hjálpa Grind­vík­ingum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Fær­ey­ingar rétta Íslend­ingum hjálp­ar­hönd þegar mikið liggur við.

Færeyingar safna fyrir Grindvíkinga
Færeyjar Horft yfir Þórshöfn, höf­uð­stað Færeyja. Mynd: Shutterstock

Rauði Krossinn í Færeyjum hvetur Fær­ey­inga til að safna pen­ingum til hjálpar Grind­vík­ingum. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu á heima­síðu fær­eyska Rauða Krossins: „Hjálpið okkum að savna pen­ing inn til neyðstødd í Grinda­vík.“ 

Í til­kynn­ing­unni er vísað til neyð­ar­söfn­unar íslenska Rauða Krossins sem stofnað var til 14. jan­úar til að styðja við Grind­vík­inga. Þar segir að íslenski Rauði Krossinn hafi meðal ann­ars hjálpað fólki við að fá bráða­birgð­ar­hús­næði, sál­rænan og fjár­hags­legan stuðn­ing. Enn fremur hafi hann séð þeim sem þurftu föt, mat og aðrar nauð­synjar þegar þau voru flutt frá bænum.

Í fær­eysku til­kynn­ing­unni segir að vilji fólk hjálpa þessu mann­úð­ar­starfi íslenska Rauða Krossins sé því vel­komið að leggja fjár­hæð inn á reikn­ing fær­eyska Rauða Krossins, merkta „Ísland.“ Er tekið fram að þetta eigi við um bæði ein­stak­linga og fyr­ir­tæki. 

Studdu Íslendinga eftir Heimaeyjargos og snjóflóðin 1995 

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem fær­eyskir frændur okkar sýna stuðn­ing við …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár