Í nýjasta þætti Pressu fékk Helgi Seljan til sín þrjá stjórnarþingmenn. Það voru þau Teitur Björn Einarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, Steinunn Þóra Árnadóttir, þingkona Vinstri grænna, og Ágúst Bjarni Garðarsson, þingmaður Framsóknar. Ræddu þau meðal annars um álit umboðsmanns Alþingis á ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra að fresta hvalveiðum í sumar.
Teitur og Steinunn eru ósammála
Spurður út í afstöðu sína sagði Teitur Björn framgöngu matvælaráðherra vera alvarlegt brot. Hann vildi þó ekki fullyrða um það að Svandís ætti að segja af sér. Að hans mati væri þó hægt að ganga að því vísu að ráðherra sem hegðaði sér líkt og hún fengi ekki að starfa áfram í skjóli Sjálfstæðisflokks.
„[Framganga matvælaráðherra] hefur grafið undan trausti. Og við erum að fara fram á það að VG leysi úr þessu máli. Hvernig á að skapa starfsfrið um þau verkefni sem flokkarnir eru sammála um að vinna áfram,“ sagði Teitur.
Steinunn Þóra, þingmaður VG, tók undir að álit umboðsmanns ætti að taka alvarlega. „Það er ekki þannig að það fylgi því að ráðherrar segi af sér þó svo að það sé komið með ábendingar um hluti sem betur mætti fara,“ sagði hún. Benti Steinunn á það að Svandís hefði tekið ákvörðunina um frestun hvalveiða í samræmi við ráðleggingar sérfræðinga innan ráðuneytisins.
Þessu var Teitur ósammála. „Hún tekur ákvörðun sem er gegn þeim ráðleggingum sem þar [í ráðuneytinu] er að finna.“ Sagði Teitur enn fremur að ekki hefði verið fallist á tillögu Vinstri grænna að setja bann á hvalveiðum í stjórnarsáttmála. „Það var niðurstaðan. Það var það sem var lagt til grundvallar. Þannig það yrði ekki hróflað við hvalveiðum. Gegn þessu fer matvælaráðherra,“ sagði hann.
„Nei,“ sagði Steinunn Þóra, og hristi höfuðið.
„Gegn þessu fer víst matvælaráðherrann og stöðvar hvalveiðar með ólögmætum hætti, sem er, eins og umboðsmaður Alþingis kemst að, bann við hvalveiðum. Þetta höfum við alltaf sagt að er algjörlega ótækt. Þess vegna er þetta svona alvarlegt mál,“ svaraði Teitur.
Menn eigi að virða leikreglur
Ágúst Bjarni, þingmaður Framsóknar, sagði að ein leið til að leysa úr ástandinu væri að ráðherrar hefðu stólaskipti líkt og fordæmi væri fyrir. „Þetta er verkefni formanna að leysa úr og ég treysti þeim til þess,“ sagði hann. Hann sagði að ætlast væri til að menn færu eftir þeim leikreglum sem þingið setti.
Þegar nefnt var að Lilja Alfreðsdóttir flokkssystir Ágústs hefði einnig gerst brotleg við lög –jafnréttislög – á ráðherrastól með því að ráða Pál Magnússon flokksbróður sinn til ráðuneytis síns, fannst Ágústi það „heldur ódýr umræða.“ Páll hafi verið fullkomlega hæfur til að gegna því starfi. „Þarna finnst mér verið að blanda saman ólíkum hlutum,“ sagði hann.
Athugasemdir (2)