Aukinn þungi í undirbúning Hvalárvirkjunar

Fram­kvæmdir við stækkun orku­vers HS Orku í Svarts­engi liggja nú niðri og óljóst er hvenær þær hefj­ast á ný. Flestir virkj­ana­kostir fyr­ir­tæk­is­ins eru á Reykja­nesi og gefa jarð­hrær­ingar þar „vissu­lega til­efni“ til að gaum­gæfa enn frekar áform­aða Hval­ár­virkjun.

Aukinn þungi í undirbúning Hvalárvirkjunar
Drynj­andi Fossinn Drynj­andi í Hvalá er um 70 metra hár. Með virkjun myndi rennsli um hann skerð­ast veru­lega hluta úr ári. Mynd: Golli / Kjartan Þorbjörnsson

„Jarð­hrær­ing­arnar á Reykja­nesi gefa vissu­lega til­efni til að gaum­gæfa frekar virkjun Hvalár enda yrði hún mik­il­vægur hlekkur í raf­orku­ör­yggi alls lands­ins – stað­sett á köldu svæði fjarri jarð­hrær­ingum,“ segir Birna Lár­us­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi HS Orku, spurð hvort jarð­hrær­ingar á Reykja­nesskaga hafi haft áhrif á áform fyr­ir­tæk­is­ins um orku­öflun til fram­tíðar. Af þeim virkj­un­ar­kostum HS Orku sem eru í nýt­ing­ar­flokki ramma­á­ætl­unar eru fimm á Reykja­nesi, m.a. á Krýsu­vík­ur­svæð­inu og í Eld­vörpum. Einn kost­ur­inn, Hval­ár­virkjun, sem dótt­ur­fyr­ir­tækið Vest­ur­verk stendur að, er hins vegar í Árnes­hreppi á Vest­fjörðum.

Á innan við þremur árum hafa orðið fimm eld­gos á Reykja­nesi og þykir vís­inda­mönnum ljóst að tíma­bil eldsum­brota, sem staðið gæti jafn­vel í nokkra ára­tugi, sé hafið. Varn­ar­garður hefur verið reistur umhverfis orku­ver HS Orku í Svarts­engi en vegna jarð­hrær­inga, m.a. mik­ils land­riss, og var­úðar af þeim sökum, hafa fram­kvæmdir við stækkun og end­ur­bætur virkj­un­ar­innar sem hófust síð­asta sumar legið niðri frá 10. nóv­em­ber er Grinda­vík og Svarts­engi voru rýmd. Áætlanir gera ráð fyrir að end­ur­bæt­urnar skili 22 MW aflaukn­ingu orku­vers­ins en óljóst er hvenær fram­kvæmdir geta haf­ist á nýjan leik.

Að öðru leyti hafa jarð­hrær­ing­arnar ekki haft telj­andi áhrif á virkj­un­ar­á­form HS Orku að sögn Birnu og áfram er unnið að und­ir­bún­ingi þeirra kosta sem eru í nýt­ing­ar­flokki ramma­á­ætl­unar. Nefnir hún að fyr­ir­tækið sé þegar með rann­sókn­ar­leyfi á Krýsu­vík­ur­svæð­inu og und­ir­búi nú rann­sóknir á grund­velli vilja­yf­ir­lýs­ingar við Hafn­ar­fjarð­arbæ og í sam­starfi við Veitur ohf. „Virkjun í Krýsuvík er ekki síst ætluð til hús­hit­unar en skortur á heitu vatni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er fyr­ir­sjá­an­legur í náinni fram­tíð.“

„Gangi allt að óskum gæti Hval­ár­virkjun verið gang­sett árið 2030.“
Birna Lár­us­dóttir,
upp­lýs­inga­full­trúi HS Orku.

Orkan úr hinni áform­uðu Hval­ár­virkjun er hins vegar hugsuð til sölu á almennum mark­aði en myndi, að sögn Birnu, jafn­framt auka afhend­ingar­ör­yggi raf­orku á Vest­fjörðum. Hún segir áfram unnið mark­visst að und­ir­bún­ingi hennar sam­hliða öðrum þró­un­ar­verk­efnum HS Orku. Umhverf­is­mati sé lokið, virkj­unin sé á aðal­skipu­lagi Árnes­hrepps og Alþingi hafi í tvígang stað­fest hana í nýt­ing­ar­flokki ramma­á­ætl­unar.

Hval­ár­virkjun hefur verið ein umdeildasta virkj­un­ar­hug­mynd síð­ari ára og klauf umræða um hana minnsta sveit­ar­fé­lag lands­ins í tvær fylk­ingar. Hún yrði reist í óbyggðum víð­ernum á Ófeigs­fjarð­ar­heiði og myndi skerða veru­lega rennsli í fossum og ám.

Tekist á um landamerki

Spurð um núver­andi stöðu verk­efn­is­ins segir Birna að unnið sé að hönnun virkj­un­ar­innar og að árlegar rann­sóknir hafi farið fram á þeim vatna­sviðum sem nýtt verða við virkj­un­ina. „Samhliða rann­sóknum og öðrum und­ir­bún­ingi hefur fyr­ir­tækið unnið mark­visst að því að minnka óvissu vegna eign­ar­halds­mála og þjóð­lendu­krafna rík­is­ins á svæð­inu.“

Eign­ar­halds­málin snú­ast m.a. um landa­merkja­deilur. Árið 2020 höfð­uðu eig­endur jarð­ar­innar Dranga­víkur í Árnes­hreppi mál á hendur eig­endum þeirra tveggja jarða, Engja­ness og Ófeigs­fjarðar, sem samið höfðu um vatns­rétt­indi við Vest­ur­verk. Dranga­vík­ur­fólk vill meina að ein þeirra áa sem áformað er að nýta til virkj­un­ar­innar eigi upp­tök sín á þeirra jörð. Þetta megi lesa úr landa­merkja­bréfum frá árinu 1890. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur féllst ekki á þessi sjón­ar­mið og sýkn­aði eig­endur Ófeigs­fjarðar og Engja­ness af kröfum eig­enda Dranga­víkur. Þeirri nið­ur­stöðu var áfrýjað til Lands­réttar og málið því ekki útkljáð.

Þar sem Hval­ár­virkjun yrði fjarri meg­in­flutn­ings­kerfi raf­orku hafa verið uppi áætl­anir um að leggja háspennu­línu yfir Ófeigs­fjarð­ar­heiði og í tengi­virki, sem enn á eftir að reisa, í Ísa­fjarð­ar­djúpi. Þaðan yrði raf­magnið svo flutt með loft­línum um 26 kíló­metra leið yfir Kolla­fjarð­ar­heiði og að hinni svo­nefndu Vest­ur­línu. Þetta er mikil fram­kvæmd og dýr en Landsnet sagði í sam­tali við mbl.is árið 2019 að verk­efnið yrði „sjálf­bært“ og myndi ekki leiða til kostn­að­ar­hækk­unar hjá öðrum not­endum.

Gangsetning árið 2030?

Birna segir að sam­starf Vest­ur­verks og Lands­nets sé þegar hafið. Fram­kvæmdir beggja aðila þurfi að fara fram sam­hliða „og því mik­il­vægt að sam­ræma allan und­ir­bún­ing“. Þá séu einnig hafnar við­ræður við Vega­gerð­ina enda þurfi að und­ir­búa vegi inn í Árnes­hrepp fyrir þá miklu þunga­flutn­inga sem bygg­ing virkj­un­ar­innar myndi kalla á.

„Hvað tíma­setn­ingar áhrærir þá munu næstu tvö ár ein­kenn­ast af skipu­lags­málum og umhverf­is­mats­málum fyrir teng­ingu Lands­nets,“ segir Birna. „Vonir standa til þess að fram­kvæmda­leyfi geti legið fyrir á árinu 2026 en áætlað er að virkj­un­ar­fram­kvæmdir ásamt fram­kvæmdum við tengilögn Lands­nets taki þrjú og hálft ár. Gangi allt að óskum gæti Hval­ár­virkjun verið gang­sett árið 2030.“

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Ótrúleg náttúrueyðilegging.
    0
    • Bergur Torfason skrifaði
      Vistvænasta virkun sem hægt er að gera hér á Íslandi.
      0
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Áhugaverð virkjun.
    En hingað til hafa Vestfirðingar, frá EB reglugerðar setningu um aðskilnað framleiðslu og dreifingar (líklega Google þýdd reglugerð, allavega ekki aðlöguð að Íslandi), virkjað afl einungis innan marka um reglunnar kröfu og því getað sparað einhverja aura, á kostnað raforkuöryggis á Vestfjörðum.
    Ekki er að sjá að þessi virkjun muni þó geta aukið afhendingaröryggi raforku fyrir sitt nærumhverfi, nema OV hysji upp um sig buxurnar og fari að hugsa um Vestfirðinga en ekki?
    Því þessi framkvæmd mun og kosta OV, ef hún á að gagnast nærumhverfinu, þegar á reynir.
    Þar sem OV hefur enn fengið að vera báðu megin við borðið, þ.e. í framleiðslu og dreifingu, þá má leiða að því líkum að skammt sé í einkavinavæðingu framleiðsluhluta OV.
    Ekki ólíklegt að XD sjái um það (eða heitir það AFÍ)?
    Verziehen, das var fehler, AfI soll es sein 😊
    Hvað um það, það má ætla að vestfirskar virkjanir fáist fyrir gott verð, þar sem þar eru einungis til þess gerðar að framleiða afl á „traust“ dreifikerfi Landsnets.
    0
    • Eggert Stefánsson skrifaði
      Það er Vesturverk, dótturfyrirtæki HS Orku sem vinnur að Hvalárvirkjun, ekki Orkubú Vestfjarða.
      0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Eins og ráða má af þessari grein, er Hvalárvirkjun tómir hugarórar. Það eru engir innviðir á svæðinu til að taka við rafmagninu og koma því áleiðis til notenda, né séð að það geti verið arðbært. Þessu til viðbótar á að fórna þarna miklum, ósnortnum víðernum fyrir tiltölulega litla orku.
    0
  • S
    skalp skrifaði
    Málefnaleg og upplýsandi grein
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár