Segir verðbólguna ekki drifna áfram af hagnaði fyrirtækja

Sigríður Margrét Odds­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, segir að verð­bólgan í land­inu sé ekki hagn­að­ar­drifin. Í nýjasta þætti Pressu, ræddi Aðal­steinn Kjart­ans­son við Sigríði og Ásgeir Brynjar Torfason, rit­stjóra Vís­bend­ingar og doktor í fjár­málum, um kjara­samn­inga og áhrifin sem há verð­bólg­una og vaxt­ar­stig hefur á kjara­við­ræð­urnar.

Segir verðbólguna ekki drifna áfram af hagnaði fyrirtækja
Sammála um sumt Sigríður Margrét Odds­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, og Ásgeir Brynjar Torfason, rit­stjóra Vís­bend­ingar, ræddu kjara­við­ræður og orsakir verð­bólg­unar í nýjasta þætti Pressu. Mynd: Golli

Í Pressu ræddu Sigríður Margrét Odds­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins (SA) og Ásgeir Brynjar Torfason, rit­stjóri Vís­bend­ingar og doktor í fjár­málum. nýhafnar kjara­við­ræður og hvernig þær þurfi taka mið af hárri verð­bólgu í land­inu.

Í gær birtu SA og breið­fylk­ing stærstu stétt­ar­fé­laga lands­ins sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu þar sem til­kynnt var um að mark­miðið væri að ná lang­tíma kjara­samn­ingi, sem þurfi að taki mið af því að draga úr verð­bólg­unni. 

Spurð hvort hún teldi slík mark­mið raun­hæf sagði Sigríður svo vera. Mikill sam­hljómur væri milli allra um hvaða mik­il­vægu verk­efni væru fram undan og hver helstu mark­miðin eru í kjara­við­ræð­unum. „Sem er að gera lang­tíma kjara­samn­inga sem geta stuðlað að fyr­ir­sjá­an­leika og efna­hags­legum stöð­ug­leika.“ 

„Það sem er ánægju­legt er að við erum öll sam­stíga og ég ætla taka hatt minn ofan fyrir sam­stöð­unni sem for­ystu­fólk stétt­ar­fé­lag­anna hefur náð að mynda,“ sagði Sigríður og vís­aði þar til breið­fylk­ing­ar­innar sem sam­anstendur af lands­sam­böndum og stétt­ar­fé­lögum lands­ins sem fara með samn­ings­um­boð 93 pró­sent félags­manna ASÍ. 

Nýmæli í kjaraviðræðum 

Hún sagði að það hafa verið nýmæli að hægt hafi verið að kom­ast að sam­eig­in­legum fleti við útgáfu yfir­lýs­ing­ar­innar. Í yfir­lýs­ing­unni var skorað á fyr­ir­tæki, ríki og sveit­ar­fé­lög til þess að halda aftur að verð­hækk­unum og gjald­skrár­hækk­unum til þess að styðja við sam­eig­in­leg mark­mið SA og stétt­ar­fé­lag­anna. 

Undir þetta tók Ásgeir og sagði efni yfir­lýs­ing­ar­innar vera „góður, nýr tónn og mik­il­vægur,“ en benti á að vand­inn væri mik­ill. 

Á Íslandi sé verð­bólga hæst á meðal þeirra landa sem við berum okkur gjarnan saman við. Ólíkt öðrum löndum þar sem verð­bólga hefur dreg­ist saman stöðugt, hefur gengið erf­ið­lega að ná verð­bólg­unni niður, þrátt fyrir háa stýri­vexti Seðla­bank­ans. „Aug­ljós­lega hefur eitt­hvað ekki gengið nógu vel hér og það þarf að gera eitt­hvað öðru­vísi en verið hefur gert.“    

Áhrifaþættir verðbólgunar

Í kjöl­farið barst talið yfir í hugs­an­lega áhrifa­valda að verð­bólg­unni og sagði Ásgeir það vera „mik­il­vægt að við­ur­kenna að verð­bólgan kemur ekki bara út frá launa­hækk­unum.“

Síðustu kjara­samn­ingar hafi leitt í gegn hóf­lega launa­hækkun. Þó svo í kjöl­farið hafi farið af stað launa­skrið sagði Ásgeir það vera „alþjóð­lega við­ur­kennt, þó svo það er ekki mikið í umræð­unni hér, að hluti, og jafn­vel frekar stór hluti, af verð­bólg­unni kemur til vegna hagn­að­ar­aukn­inga fyr­ir­tækj­anna.“ 

Spurð um við­brögð sín við þeim punktum sem Ásgeir kom inn á, sér­stak­lega í ljósi þess að á þessu ári hafi fyr­ir­tæki í land­inu skilað met­hagn­aði, sagð­ist Sigríður ekki getað tekið undir það að verð­bólga síð­ustu ára hafa verið keyrð áfram vegna auk­ins hagn­aðar fyr­ir­tækja í land­inu. „Það er svo langt frá því að við getum horft á umhverfið, rekstur og afkomu fyr­ir­tækja í dag og sagt að verð­bólgan sé hagn­að­ar­drif­inn. Bara alls ekki.“ 

Í máli sínu vitn­aði í Sigríður í grein sem birt­ist í nýj­ustu útt­gáfu Pen­inga­mála frá Seðla­banka Íslands. „Þar sem þeir voru einmitt að skoða og sýna fram á að álagn­ing fyr­ir­tækja hefur ekki verið það sem veldur verð­bólg­unni,“ sagði Sigríður. Ásgeir benti á að í umræddri grein sem birt­ist síð­asta hefti Pen­inga­mála hafi þó verið við­ur­kennt að hlut­deild hagn­aðar hjá fyr­ir­tækjum væri mæl­an­leg. 

Sammála um mikilvægi þess að allir taki ábyrgð

Þá hvatti hann alla aðila til þess að skoða verð­bólg­una sem flókið fyr­ir­bæri sem er mótuð af mis­mun­andi þáttum. Til að mynda af hærri fjár­magns­kostn­aði sem fyr­ir­tækin hljóta að við­ur­kenna.

Sigríður sagð­ist taka undir að fjöl­margir þættir myndi verð­bólgu og árétt­aði að hún hafi ekki haldið því fram að það væri stétt­ar­fé­lög­unum að kenna að það væri verð­bólga í land­inu. Samtök atvinnu­lífs­ins komi líka að við­ræð­unum og beri þess vegna jafn mikla ábyrgð á verð­bólg­unni og verka­lýðs­fé­lögin.

Sjá má fimmta þrátt Pressu í heild sinni hér: 

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GGJ
    Guðl. Gauti Jónsson skrifaði
    Væri ekki ráð að samningsaðilar byrjuðu á því að koma sér saman um þær undirliggjandi tölur (staðreyndir) sem réttmætt er að nota, hvaða tímabil er eðlilegt að miða við í samanburði og hver séu söguleg áhrif þeirra og áhrif á væntanlegan samning.
    0
  • Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Furðulegt hjá Sigríði að halda því fram að álagning fyrirtækja sé eini áhrifavaldur fyrirtækja á verðbólgu. Og Ásgeir B lætur þessu ómótmælt - hefur ekki verið almennilega vaknaður. Fyrirtæki geta dælt hagnaðinum út í hagkerfið, fjárfest í fasteignum, margvíslegum rekstri, tengdum og ótengdum, einhent sér í fjárfestingu í t.d. ferðaþjónustu eða fiskeldi og þannig valdið ómældri þenslu og keyrt upp verðbólguna. Um hvað þóttust þau eiginlega vera að ræða spyr ég?
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pressa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár