Breiðfylking stéttarfélaga stefnir á nýja þjóðarsátt – Stjórnvöld verða að leiðrétta tilfærslukerfin
Standa saman Hilmar Harð­ar­son, for­maður Samiðnar - sam­bands iðn­fé­laga, Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar,Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR og Vil­hjálmur Birg­is­son for­maður Starfs­greina­sam­bands Íslands. Mynd: Golli

Breiðfylking stéttarfélaga stefnir á nýja þjóðarsátt – Stjórnvöld verða að leiðrétta tilfærslukerfin

Stærstu stétt­ar­fé­lögin á almennum mark­aði hafa náð saman um nálgun á kom­andi kjara­samn­inga. Þau eru til­búin að sætt­ast á hóf­legar krónu­tölu­hækk­anir á launum ef fyr­ir­tæki, stjórn­völd og sveit­ar­fé­lög leggja sitt að mörkum. Formaður Eflingar segir að laga þurfi til­færslu­kerfin með þeim hætti að þau fari aftur á þann stað sem þau voru árið 2013.

„Íslensk heim­ili hafa of lengi verið föst í spenni­treyju ofur­vaxta og óða­verð­bólgu, en hætta er á að kjara­bætur sem náðst hafa fram í kjara­samn­ingum síð­ustu ára brenni upp og verði að engu. Það hvernig tekst til við end­ur­nýjun kjara­samn­inga á almennum vinnu­mark­aði eftir ára­mótin mun skera úr um þetta. Full­trúar stærstu lands­sam­banda og stétt­ar­fé­laga lands­ins skynja ákall sam­fé­lags­ins um far­sæla kjara­samn­inga­gerð og átta sig á for­dæm­is­gef­andi hlut­verki kjara­samn­inga á hinum almenna vinnu­mark­aði.“

Svona hefst sam­eig­in­leg til­kynn­ing sem for­menn VR, Eflingar, Starfs­greina­sam­bands Íslands, Samiðnar og Lands­sam­bands íslenzkra verzlunarmanna hafa sent frá sér vegna kom­andi kjara­við­ræðna. Þar segir að for­menn­irnir, sem stýra félögum með samn­ings­um­boð fyrir 115 þús­und manns á almennum vinnu­mark­aði, hafi komið sér saman um grund­vall­ar­nálgun fyrir samn­inga­við­ræð­urnar sem séu framundan. Um er að ræða 93 pró­sent alls launa­fólks sem er innan vébanda Alþýðu­sam­bands Íslands.  

Breið­fylk­ingin mun funda með Samtökum atvinnu­lífs­ins 28. des­em­ber næst­kom­andi þar sem gerð verður nán­ari grein fyrir því sem hún mun gera kröfu um í kom­andi kjara­við­ræðum. 

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, segir að það sem stjórn­völd þurfi að gera til þess að þessi nálgun geti gengið upp og það verði hægt að und­ir­rita kjara­samn­inga hratt og örugg­lega og án átaka, sé að leið­rétta til­færslu kerfin. „Það hefur verið unnin mikil og góð vinna á vett­vangi hreyf­ing­ar­innar sem við byggjum á. Upp­leggið er að til­færslu­kerfin verði löguð með þeim hætti að þau fari aftur á þann stað sem þau voru árið 2013. Og jafn­framt verður farið fram með kröfur um úrbætur í hús­næð­is­málum.“

Í sam­eig­in­legu grund­vall­ar­nálg­un­un­inni felst að fyr­ir­tæki, stjórn­völd og sveit­ar­fé­lög „axli ábyrgð“ á afkomu heim­il­anna sem hefur versnað und­an­farið vegna mik­illar verð­bólgu, sem mælist nú 7,7 pró­sent á árs­grund­velli, og hárra vaxta, en stýri­vextir Seðla­banka Íslands eru sem stendur 9,25 pró­sent. Breið­fylk­ingin er til­búin að leggja til hóf­samar krónu­tölu­hækk­anir á launum gegn því að fyr­ir­tæki, stjórn­völd og sveit­ar­fé­lög und­ir­gang­ist strangar for­sendur um lækkun verð­bólgu og vaxta, með það að mark­miði að verja og auka kaup­mátt launa meiri­hluta alls launa­fólks. Kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna heim­ila hefur nú lækkað í fimm árs­fjórð­unga í röð og munar þar lang­mestu um gríð­ar­lega hækkun á vaxta­gjöldum þeirra, en heim­ili lands­ins greiddu alls um 92 millj­arða króna í vaxta­gjöld á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Það er 32 millj­örðum krónum meira en þau gerðu á sama tíma­bili í fyrra. Þau hafa því hækkað um 54 pró­sent á milli ára. 

„Það þarf að teikna upp trúverðugt plan“

Í til­kynn­ing­unni segir að nálg­unin sem sátt hefur náðst um innan þorra stétt­ar­fé­laga á almennum mark­aði felist að stjórn­völd verði að  leið­rétta stór­fellda rýrnun barna­bóta, vaxta­bóta og hús­næð­is­bóta síð­ustu ára­tugi. „Þessar skatt­frjálsu bætur eru líf­lína margra heim­ila í land­inu. Einnig verður að gera löngu tíma­bærar ráð­staf­anir til að tryggja öryggi leigj­enda og koma jafn­vægi á hús­næð­is­mark­að­inn í heild sinni.“

Barátta framundanÁstráður Har­alds­son rík­is­sátt­ar­semj­ari og hans fólk mun hafa það hlut­verk að leiða ágrein­ing Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur og félaga hennar við fyr­ir­tækin, og eftir atvikum aðra, í jörð á næstu dögum og vikum.

Félögin munu skipa sam­eig­in­lega samn­inga­nefnd, sem verður falið að leiða við­ræður við stjórn­völd og SA um heild­stæðan lang­tíma­samn­ing byggðan á þess­ari grund­vall­ar­nálgun.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir að kröf­urnar sem gerðar eru á stjórn­völd snúi að hús­næð­is­mark­aðnum, hús­næð­is­lána­kerf­inu, leigu­mark­aði og almennt um skort á hús­næði. Hann seg­ist ekki geta nefnt neinar tölur en það sem búið sé að leggja mikla vinnu í sé að teikna upp kröfur sem snúa að því vaxtaum­hverfi sem heim­ilin búa við og áhrif verð­bólgu á þau. „Svona samn­ingur snýst um það að það taki allir raun­veru­legan þátt í að ná niður verð­bólgu og vaxta­stigi, ekki bara verka­lýðs­hreyf­ingin.“

Aðspurður um hvað hann leggi sér­staka áherslu á af þessum aðgerðum segir Ragnar hús­næð­is­mál vera stærsta málið. „Það þarf að teikna upp trú­verð­ugt plan sem muni raun­veru­lega mæta þeirri gríð­ar­legu hús­næð­is­þörf sem er búin að byggj­ast upp síð­ustu ára­tugi.“

Bætur hafa rýrnað mikið síðasta áratug

Fyr­ir níu ár­um síð­an var tek­in ákvörð­un um að um­bylta hús­næð­is­bóta­kerfi Ís­lands. Vaxta­bóta­kerf­ið, sem studdi best við tekju­lægri hópa, var veikt veru­lega og í stað þess kom­ið á fyr­ir­komu­lagi skattaí­viln­ana til þeirra sem nota sér­eign­ar­sparn­að til að borga nið­ur íbúða­lán. Fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­ið mat eft­ir­gjöf hins op­in­bera á tekj­um vegna þessa á um 50 millj­arða króna í fyrra­vor. Um 77 pró­sent þeirr­ar upp­hæð­ar hafði lent hjá þrem­ur efstu tekju­hóp­un­um. Um sjö pró­sent henn­ar hef­ur far­ið til þess helm­ings lands­manna sem hef­ur lægstu tekj­urn­ar.

Gera má ráð fyrir því að hækkun fast­eigna­mats milli áranna 2023 og 2024 leiði til þess að greiðslur vegna vaxta­bóta lækki um 350 millj­ónir króna á næsta ári, sam­kvæmt nýlegu svari fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn á Alþingi. Alls munu vaxta­bætur 95 pró­sent þeirra sem fengu vaxta­bætur árið 2022 lækka vegna þessa. Um er að ræða 12.500 eig­endur fast­eigna. Ástæðan er sú að vaxta­bóta­kerfið inni­heldur eigna- og tekju­skerð­ing­ar­mörk. Þegar fast­eigna­mat hækkar mikið, líkt og það hefur gert á und­an­förnum árum, þá fækkar hratt í hópi þeirra sem geta fengið vaxta­bætur, en þar er fyrst og síð­ast um að ræða ungt fólk og lág­tekju­hópa. 

Sama þróun hefur átt sér stað hvað varðar barna­bætur. í nýlegu svari við fyr­ir­spurn á Alþingi kom fram að alls nutu 9.927 for­eldrar óskertra barna­bóta árið 2023 en tíu árum áður nutu 10.596 for­eldrar óskertra barna­bóta. Þar kom einnig fram að alls nutu 55.842 for­eldrar barna­bóta árið 2023 en tíu árum áður fengu alls 56.657 for­eldrar greiddar barna­bætur. Frá lokum árs 2013 og fram til loka sept­em­ber síð­ast­lið­ins fjölg­aði lands­mönnum um rúm­lega 62 þús­und, eða um 19 pró­sent. 

Ef engin skerð­ing­ar­við­mið barna­bóta væru í lögum eftir því hversu miklar tekjur eða eignir for­eldrar hefðu á milli hand­anna fengju allir for­eldrar barna að 18 ára aldri barna­bætur. Alls eiga 85.921 for­eldrar að minnsta kosti eitt barn undir 18 ára aldri í dag, Þeim hefur fjölgað um sex pró­sent frá árinu 2013. 

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár