Leið­rétt­ingin Leið­togar rík­is­stjórn­ar­innar sem mynduð var árið 2013 kynntu Leið­rétt­ing­una tæpu ári síðar. Mynd: Pressphotos

Tugir milljarða í húsnæðisbætur fyrir ríkasta hluta þjóðarinnar

Fyrir níu árum síðan var tekin ákvörðun um að umbylta hús­næð­is­bóta­kerfi Íslands. Vaxta­bóta­kerfið, sem studdi best við tekju­lægri hópa, var veikt veru­lega og í stað þess komið á fyr­ir­komu­lagi skattaí­viln­ana til þeirra sem nota sér­eign­ar­sparnað til að borga niður íbúða­lán. Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið metur eft­ir­gjöf hins opin­bera á tekjum vegna þessa á um 50 millj­arða króna. Um 77 pró­sent þeirrar upp­hæðar hefur lent hjá þremur efstu tekju­hóp­unum. Um sjö pró­sent hennar hefur farið til þess helm­ings lands­manna sem hefur lægstu tekj­urnar.

Í mars 2014 voru kynntar aðgerðir sem áttu að hjálpa fólki á íbúða­mark­aði. Þær byggðu á kosn­inga­lof­orði Fram­sókn­ar­flokks­ins frá árinu áður um svo­kall­aða skulda­leið­rétt­ingu. Mark­miðið var að aðgerð­irnar, sem voru tvær, myndu sam­an­lagt lækka höf­uð­stól íbúða­láns þess sem naut þeirra beggja um allt að 20 pró­sent. Umrætt kosn­inga­lof­orð, sem fékk nafnið Leið­rétt­ingin, var meg­in­for­senda þess að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, þá leiddur af Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, vann stór­sigur í kosn­ing­unum 2013 og fékk sína bestu kosn­ingu síðan 1979. 

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár