„Þung skref“: Árborg hækkar útsvarið upp í 16,21 prósent

Bæj­ar­stjórnin í Árborg sam­þykkti í gær að leggja 10 pró­sent álag ofan á útsvar íbúa sveit­ar­fé­lags­ins á næsta ári, í kjöl­far þess að heim­ild fékkst til þess frá inn­við­a­ráðu­neyt­inu. Eft­ir­lits­nefnd með fjár­málum sveit­ar­fé­laga telur að minna megi það vart vera. Sveit­ar­fé­lög í fjár­kröggum mega setja allt að 25 pró­sent álag á útsvör íbúa.

Árborg
Árborg Selfoss er stærsti þétt­býl­iskjarn­inn í Árborg. Formaður bæj­ar­ráð segir „þung skref“ að þurfa að leggja auknar álögur á íbúa til að mæta fjár­hags­stöðu bæj­ar­fé­lags­ins. Mynd: Unsplash / Freysteinn G. Jónsson

Bæj­ar­stjórnin í Árborg sam­þykkti á fundi sínum í gær að nýta sér heim­ild, sem sveit­ar­fé­lög í fjár­hags­erf­ið­leikum geta fengið, til að hækka útsvarspró­sent­una umfram lög­bundið hámark. Íbúar í Árborg munu greiða 16,214 pró­sent launa sinna í útsvar á næsta ári, en um 10 pró­sent álag ofan á hámarks­út­svar er að ræða. 

Árborg óskaði eftir því í upp­hafi mán­aðar við inn­við­a­ráðu­neytið að fá að leggja auknar álögur á íbúa bæj­ar­fé­lags­ins, til að mæta þungri fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­lags­ins. 

Inn­við­a­ráðu­neytið beindi erind­inu til eft­ir­lits­nefndar með fjár­málum sveit­ar­fé­laga (EFS) sem taldi bæði „rétt og nauð­syn­legt“ að fall­ast á beiðni bæj­ar­stjórn­ar­innar.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er einn í meiri­hluta í Árborg núna, í kjöl­far þess að hafa verið í minni­hluta á síð­asta kjör­tíma­bili, og er hækkun útsvarspró­sent­unnar liður í umfangs­mik­illi aðgerða­á­ætlun í fjár­málum sveit­ar­fé­lags­ins.

Hækkanirnar „rétt að duga“ til að eygja von um jákvæða niðurstöðu

Fram kemur í bréfi EFS til Árborgar að …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár