Stjórn Marel hafnar að samþykkja yfirlýsingu JBT um kaup á fyrirtækinu

Stjórn Marel telur það ekki sam­ræm­ast hags­munum hlut­hafa að sam­þykkja óskuld­bind­andi vilja­yf­ir­lýs­ingu um kaup á öllum hlutum í fyr­ir­tæk­inu. Það er annað mat en hjá stærsta ein­staka eig­and­anum.

Stjórn Marel hafnar að samþykkja yfirlýsingu JBT um kaup á fyrirtækinu
Farinn frá Árni Oddur Þórð­ar­son steig nýverið úr for­stjóra stóli Marel vegna átaka um eign­ar­hlut hans í fyr­ir­tæk­inu. Hann og pabbi hans eru stærstu hlut­hafar Eyris, sem vildi sam­þykkja mögu­legt yfir­tökutil­boð. Mynd: Marel

Stjórn Marel segir það ekki sam­ræm­ast hags­munum hlut­hafa að sam­þykkja vilja­yf­ir­lýs­ingu um kaup á öllu hlutafé í fyr­ir­tæk­inu. Samhliða yfir­lýs­ing­unni, sem var ekki bind­andi, fylgdi „óaft­ur­kall­an­leg yfir­lýs­ing Eyris Invest hf., eig­anda 24,7 pró­sent hluta­fjár í Marel, um sam­þykki Eyris Invest hf. verði til­boð lagt fram í tengslum við vilja­yf­ir­lýs­ing­una.“ Eyrir Invest er langstæsti ein­staki eig­andi Marel. 

Það var fyr­ir­tækið JBT Corporation sem lagði fram hina óskuld­bind­andi vilja­yf­ir­lýs­ingu. „Stjórnin sam­þykkti ein­róma að vilja­yf­ir­lýs­ingin sé ekki í þágu hags­muna hlut­hafa Marel, hún taki hvorki til­lit til innra virðis rekstrar Marel, né þeirrar áhættu sem fælist í fram­kvæmd við­skipt­anna,“ segir í til­kynn­ingu stjórnar Marel til Kaup­hall­ar­innar. 

Yfir­lýs­ingin varð opin­ber klukkan fjögur um nótt aðfara­nótt síð­ast­lið­ins föstu­dags. Þá birt­ist óljós til­kynn­ing í Kauphöll Íslands um að óskuld­bind­andi yfir­lýs­ing varð­andi mögu­legt til­boð í öll bréf í Marel hefði borist. Ekkert kom fram hver hefði gert hið mögu­lega til­boð né hversu hátt það væri.

…
Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu