Gangstéttirnar við götuna sem ég bý við voru í sumar skornar í sundur svo hægt væri að leggja ljósleiðara við hlið fullkomlega nothæfa ljósleiðarans sem fyrir var í götunni. Síðan hafa stéttirnar verið hálfsteyptar og hálfmalarlagðar. Fyrir helgi mættu svo verktakar á vegum Mílu og settu upp keilur og borða og lokuðu fyrir alla gangandi umferð um stígana. Beggja vegna götunnar. Alla leið með fram Langholtsvegi frá Skeiðarvogi að Gnoðarvogi.
Það hafa engar ráðstafanir verið gerðar til að gera til dæmis börnunum mínum kleift að komast til og frá skóla og frístunda á meðan. Ég get ekki lagt næga áherslu á hversu hættulegt þetta ástand er fyrir alla þá sem fara gangandi eða hjólandi. Engin hjáleið. Engar merkingar. Ekkert sem gefur neitt til kynna.
Það eru ekki nema nokkrar vikur síðan barn á svipuðum aldri og mín lét lífið af því ekki var búið að tryggja að það gæti farið til og frá frístunda með öruggum hætti. Það er heldur ekki langt síðan banaslys varð á Akureyri þar sem göngustígur hafði hreinlega verið færður út á götu á meðan framkvæmdir stóðu yfir. Þetta er núna sami valkostur og börnin mín hafa: að labba og hjóla á myrkvuðum Langholtsvegi og vona að ökumennirnir fatti það.
Ég sendi erindi í gær á bæði Reykjavíkurborg og Mílu og spurði hvort þetta væri í samræmi við útgefið framkvæmdaleyfi. Í gær fékk ég svar frá borginni um að rætt yrði við verktaka en engar úrbætur höfðu verið gerðar í morgun. Ég fékk líka svar frá Mílu þar sem mér var sagt að þetta væru framkvæmdir og að þær myndu klárast. Þegar ég hafði gengið á eftir því að fá að vita hvað nákvæmlega framkvæmdaleyfið heimilaði Mílu, sagði fulltrúi fyrirtækisins að það hefði leyfi „til að valda röskun á gangandi umferð“. Þetta túlkar Míla sem svo að fyrirtækið megi loka öllum gönguleiðum við götuna.
Það hljómar dramatískt að spyrja, en það er engu að síður réttmætt í ljósi alls: Hvað þurfa margir að deyja eða slasast áður en það eru gerðar lágmarkskröfur þegar einhverjum fyrirtækjum er leyft að grafa í sundur gangstéttirnar?
Höfundur er íbúi við Langholtsveg
Athugasemdir