Aflýstu brúðkaupinu vegna skjálftanna - „Þetta var svolítið ömurlegt“

Ár er síðan Frank Bergmann bað Anitu Gurrý Frið­jóns­dóttur um að gift­ast sér og það ætl­uðu þau að gera á laug­ar­dag, þann 11.11. Þau tóku loka­æf­ingu í kirkj­unni á föstu­dag og allt var til reiðu. „Við vorum öll orðin svo spennt,” segir Anita. Nú langar þau bara að kom­ast aftur heim til sín og vona að íbúðin þeirra sé ekki ónýt.

Aflýstu brúðkaupinu vegna skjálftanna - „Þetta var svolítið ömurlegt“
Frank og Anita ætl­uðu að gifta sig á laug­ar­dag og halda brúð­kaups­veisl­una í sal Verka­lýðs­fé­lags Grinda­víkur. En nátt­úru­ham­farir gripu inn í þau plön. Mynd: Heimildin

Þau voru búin að skipu­leggja hinn full­komna brúð­kaups­dag. Þann 11.11.2023 ætl­uðu Anita Gurrý Frið­jóns­dóttir og Frank Bergmann að ganga í það heilaga í Laug­ar­nes­kirkju og halda síðan brúð­kaups­veislu í sal Verka­lýðs­fé­lags Grinda­víkur. 

Allt var til reiðu fyrir brúð­kaupið þegar þau tóku ákvörðun – aðfar­arnótt laug­ar­dags­ins á meðan allt lék á reiði­skjálfi í Grinda­vík vegna jarð­hrær­ing­anna – um að aflýsa því.

Svona átti að bjóða gest­ina vel­komna í veisl­una sem ekki var haldin.

„Við héldum lengi í von­ina og ætl­uðum að finna annan sal en á end­anum ákváðum við bara að hætta við,“ segir Anita sem er 25 ára en Frank 27. Þau hafa verið saman í átta ár, trú­lofuð í eitt.

Komin með sjóriðu heima hjá sér

Á föstu­dag tóku þau æfingu fyrir brúð­kaupið í Laug­ar­nes­kirkju. „Við vorum öll orðin svo spennt, til­búin fyrir morg­un­dag­inn,” segir Anita. Þau höfðu ekk­ert sér­stak­lega verið að fylgj­ast með fréttum, fannst þau bara vera að venj­ast end­ur­teknum skjálftum og höfðu ekki miklar áhyggjur. 

„Þegar við komum aftur heim til Grinda­víkur fundum við hvað þetta var orðið svaka­lega mikið. Fyrst vorum við ekki beint hrædd. En við vorum samt ekki vön því að þetta væri stans­laust. Upp­haf­lega höfðum við ætlað að vera heima um nótt­ina en síðan þurftum við að yfir­gefa bæinn okkar. Þá var ég alveg komin með sjó­riðu og í mag­ann,“ segir hún. 

Þau höfðu ákveðið að gifta sig í Laug­ar­nes­kirkju því þar voru for­eldrar Anitu gefnir saman. Þeir búa í Njarðvík en for­eldrar Franks, og nán­ast öll hans stór­fjöl­skylda, býr í Grinda­vík. 

Frank og Anita eru yfir sig ást­fangin, en þurfa að bíða með að finna nýja dag­setn­ingu fyrir brúð­kaupið.

Ekki andlega viðstödd

Það hafði verið mikið stress á föstu­deg­inu vegna und­ir­bún­ings. Anita segir þau hafa verið komin með aðgang að veislu­salnum og við það að fara að skreyta hann. Mamma hennar hafi síðan verið á heim­ili sínu í Njarðvík á fullu að elda. Jörðin var byrjuð að skjálfa en þau héldu ótrauð áfram, í von um að þetta myndi allt lag­ast. „Við sögðum að við ætl­uðum að reyna að halda brúð­kaupið,” segir hún. 

Anita við­ur­kennir að hún hafi verið orðin ansi ringluð þarna um kvöldið þegar þau voru þó að reyna að halda sig við upp­haf­legt plan, að gifta sig næsta dag. „Ég var eig­in­lega farin að labba í hringi og þurfti að hringja í systur mína og biðja hana um að hjálpa mér því ég var ekki lengur and­lega við­stödd.”

Báðir pabbar Anitu ætl­uðu að leiða hana upp að alt­ar­inu og þeir vildu vera flottir í tauinu; blóð­faðir hennar Friðjón og svo Kristinn, maður mömmu hennar, sem kom inn í líf þeirra þegar hún var 7 ára og hefur kallað pabba síðan.

Þegar þau voru síðan að und­ir­búa sig áður en þau færu frá Grinda­vík og til for­eldra Anitu í Njarðvík gleymd­ist margt. For­eldrar Franks höfðu orðið eftir í Reykja­vík fyrr um dag­inn og þau byrj­uðu á að fara heim til þeirra til að sækja spari­fötin þeirra. 

Sár og reið

„Við gátum varla hugsað skýrt. Ég tók varla nein föt með fyrir mig. Við vorum sein­ust til að fara úr blokk­inni okkar. Frænka mín sem býr við hlið­ina á okkur kom með. Annars voru allir farnir,” segir hún en þau fóru ekki fyrr en um klukkan tvö um nótt­ina heim til for­eldra Anitu í Njarðvík.

„Þegar við vorum komin heim til mömmu tókum við stöð­una og mátum þetta þannig að það væri ekk­ert snið­ugt að gera þetta. Við sendum þá á alla að það væri búið að hætta við brúð­kaupið.”

Ákvörð­unin var þeim afar þung­bær. „Þetta var svo­lítið ömur­legt og maður var bæði sár og reiður. Við vitum ekki hvenær við ætlum að halda brúð­kaupið fyrst að staðan er enn svona óviss í Grinda­vík. Okkur bara leið ekki vel með að ætla að fagna, að geta ekki farið í íbúð­ina okkar, vita ekki hvort við værum að fara að missa eign­ina okkar,” segir Anita en þau búa á Ásabraut, rétt við sprung­una stóru sem mynd­að­ist í fyrra­dag. 

Fengu hlýjar kveðjur

Á átt­unda tug veislu­gesta voru vænt­an­legir en Anita og Frank hafa fengið hlýjar kveðjur frá þeim sem voru á leið í brúð­kaupið þeirra. „Fólki fannst bara ömur­legt að þetta skyldi ger­ast á deg­inum okkar en við myndum bara fagna ennþá betur þegar við fáum að gera það,” segir hún. 

„Ég er varla búin að sofa neitt”

Þar sem þau voru til­búin með mat fyrir yfir sjö­tíu manna veislu hafa þau síðan verið dug­leg að bjóða fólki í mat. En þau eru enn í gríð­ar­legu upp­námi.

„Við erum bara í sjokki og áfalli. Ég er varla búin að sofa neitt. Maður er bara fastur yfir frétt­unum og reynir að halda í von­ina um að allt fari vel. Við erum samt mjög stressuð yfir því hvort íbúðin okkar sé skemmd. Við viljum bara kom­ast heim,” segir Anita.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár