Hleypa Grindvíkingum heim að sækja nauðsynjar með skipulögðum hætti

Íbúar á afmörk­uðu svæði í Grinda­vík geta nú farið heim til sín í fylgd við­bragðs­að­ila og sótt nauð­synjar og allra helstu verð­mæti. Lög­reglu­stjór­inn á Suð­ur­nesjum hefur ákveðið að hefja aðgerðir nú þegar.

Lög­reglu­stjór­inn á Suð­ur­nesjum hefur tekið ákvörðun um að hleypa íbúum inn í Grinda­vík með skipu­lögðum hætti frá og með þess­ari stundu. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu.

Íbúar og fyr­ir­tæki austan megin við Vík­ur­braut og norðan við Aust­ur­veg eru í fyrsta hópi:

Víkurhóp, Norð­ur­hóp, Mar­ar­gata, Vest­ur­hóp Hóps­braut, Suðurhóp, Efrahóp, Aust­ur­hóp, Miðhóp, Stamp­hóls­vegur, Víði­gerði, Aust­ur­vegur, Mánagata, Mánasund, Mána­gerði, Túngata, Arn­ar­hlíð, Akur, Steinar.

Fyr­ir­tæki við:

Hafn­ar­götu, Seljabót, Miðgarð, Rán­ar­götu, Ægisgötu (sunnan við Seljabót), Garðs­vegur, Verbraut, Vík­ur­braut, Hafn­ar­svæðið

Grinda­víkSvipað fyr­ir­komu­lag verður haft á og í gær, þegar íbúar á ákveðnu svæði bæj­ar­ins fengu að fara og sækja verð­mæti. Íbúar geta ekki farið á eigin bíl, heldur verður farið á bílum við­bragðs­að­ila.

Eiga að hittast á bílastæðinu við Fagradalsfjall

Í til­kynn­ingu frá lög­reglu segir að um skipu­lagða aðgerð verði að ræða, undir stjórn lög­regl­unnar. Íbúar sem fá að fara inn til Grinda­víkur eiga að koma á söfn­un­ar­stað­inn sem er bíla­stæðið við gossvæðið, við Fagra­dals­fjall.

„Það þarf að koma um Suð­ur­strand­ar­veg að austan til Grinda­víkur að söfn­un­ar­stað. Þar fer fram upp­lýs­inga­taka og skrán­ing, ásamt því að fólk fær frek­ari leið­bein­ingar. Frá söfn­un­ar­stað verður ekið í bílum við­bragðs­að­ila inn í bæinn. 

Heimild til þess að fara inn í bæinn er ábyrgð­ar­hluti og ekki létt­væg ákvörðun og þýðir alls ekki að svæðið sé að öðru leyti opið fyrir umferð. Þetta verður skipu­lögð og stýrð aðgerð undir stjórn lög­regl­unnar,“ segir í til­kynn­ingu lög­reglu.

Söfn­un­ar­staðurBjörg­un­ar­sveitir munu fylgja þeim íbúum Grinda­víkur sem lög­reglu­stjór­inn á Suð­ur­nesjum hefur heim­ilað að fara inn á heim­ili sín til að sækja brýn­ustu verð­mæti.

Til athug­unar fyrir íbúa:

  • Ekki fara ef þú þarft ekki nauð­syn­lega að fara

  • Aðeins verður leyfi fyrir einn aðila að fara inn á svæðið, fyrir hvert heim­ili

  • Skráið niður lista yfir það sem þið hygg­ist sækja áður en lagt er af stað

  • Munið eftir hús­lykli

  • Búr fyrir gælu­dýr ef þörf er á

  • Poka eða annað undir muni

  • Íbúar hafa stuttan tíma inni á heim­il­inu.

  • Þau sem fara mega ekki vera með bráða­of­næmi fyrir dýrum því það verða gælu­dýr með í för í baka­leið­inni.

  • Þetta er ein­göngu til þess sækja mjög mik­il­væga hluti s.s. gælu­dýr, lífs­nauð­syn­leg lyf, hugs­an­lega vega­bréf eða aðra ómissandi hluti fyrir heim­il­is­fólk

  • Heimilt verður að keyra öku­tæki sem skilin voru eftir við rým­ingu, út af svæð­inu frá Grinda­vík, en ein­göngu í fylgd við­bragðs­að­ila

Lög­reglan ítrekar að það sé „ekki létt­væg ákvörðun“ að leyfa fólki að fara. „Ítrekað er að þetta er ekki létt­væg ákvörðun. Þessu fylgir áhætta og því mjög mik­il­vægt að allir sem henni koma hlýði vand­lega öllum fyr­ir­mælum lög­reglu sem stýrir þess­ari aðgerð og virði tíma­mörk sem verða sett,“ segir lög­regla.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár