Sakaður um að gægjast á glugga hjá börnum í Garðabæ

Mál karl­manns á fer­tugs­aldri sem sak­aður er um blygð­un­ar­sem­is­brot í Kópavogi, grun­aður um að hafa fróað sér í bíl sínum í nágrenni barna, hefur verið sent til hér­aðs­sak­sókn­ara. Í byrjun vik­unnar barst lög­regl­unni ný til­kynn­ing vegna ferða manns­ins í Garðabæ sem þóttu grun­sam­legar.

Lögreglan hefur aukið eftirlit í hverfinu þar sem maðurinn sást á sunnudag og mánudag.
Lög­reglan hefur aukið eft­ir­lit í hverf­inu þar sem mað­ur­inn sást á sunnu­dag og mánu­dag. Mynd: Lögreglan á Norðurlandi vestra

Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur borist ný til­kynn­ing um grun­sam­legar manna­ferðir karl­manns sem grun­aður er um að hafa fróað sér í bíl á meðan börn voru í sjón­máli.

Tvær konur segja í sam­tali við Heim­ild­ina að hann hafa verið fyrir utan glugga á barna­her­bergi í byrjun vik­unnar, að morgni sunnu­dags og að morgni mánu­dags. Ung dóttir ann­arrar kon­unnar sem gerði móður sinni vart um mann­inn sagði: „Kannski er hann að leita að sínu barni“.

Afplánaði dóm í Bandaríkjunum

Vísir greindi frá því um miðjan sept­em­ber að for­eldrar barna í Kárs­nes­skóla í Kópavogi hafi fengið tölvu­póst um að ein­stak­lingur væri á ferð í vest­urbæ Kópavogs „sem við viljum ekki að sé í kringum börnin okkar“. Skóla­stjórn­endur höfðu ekki orðið varir við mann­inn en fannst þó rétt að vara við honum. 

Á þessum tíma­punkti hafði mað­ur­inn end­ur­tekið sést í bif­reið sinni nálægt stöðum sem börn sækja. Hann er á fer­tugs­aldri og sat í fang­elsi í Banda­ríkj­unum í tæp átta ár vegna kyn­ferð­is­brots gegn 13 ára stúlku. Maðurinn lauk afplánun árið 2021 og flutti eftir það til Íslands. 

Lög­reglan hefur lokið rann­sókn á meintu blygð­un­ar­sem­is­broti manns­ins í bíl hans í Kópavogi og vísað því til hér­aðs­sak­sókn­ara sem tekur ákvörðun um hvort ákæra verður gefin út í mál­inu. 

Aukið eftirlit í hverfinu

Nýja til­kynn­ingin snýst um ferðir manns­ins í Garðabæ í byrjun þess­arrar viku. Hann var þá í bíl sínum fyrir utan sitt­hvora íbúð­ina, ann­ars vegar klukkan níu að morgni sunnu­dags og hins vegar klukkan sjö að morgni mánu­dags.

Mæður á þessum heim­ilum tóku eftir mann­inum og skrif­uðu niður bíl­núm­erið sem kom heim og saman við bíl­númer manns­ins sem grun­aður er um blygð­un­ar­sem­is­brotið í Kópavogi. Í annað skiptið hafði hann ekið bif­reið­inni inn í garð sem barna­her­bergið vís­aði að en í hitt skiptið sást hann ganga minnst fjórum sinnum fram­hjá glugga barna­her­bergis. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá kyn­ferð­is­brota­deild lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur eft­ir­lit verið aukið í hverf­inu.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár