Tvær tillögur en samt skiptir máli „að þjóð eins og okkar tali einum rómi“

Tvær þings­á­lykt­un­ar­til­lögur hafa verið lagðar fram á Alþingi um átökin og ástandið fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs. Píratar, Sam­fylk­ing, Flokkur Fólksins og tveir þing­menn Vinstri grænna vilja að aðgerðir Ísra­els­hers í Palest­ínu verði for­dæmdar og kalla eftir taf­ar­lausu vopna­hléi af mann­úð­ar­á­stæðum. Á sama tíma leggur Viðreisn fram ályktun sem er sam­hljóða breyt­ing­ar­til­lögu Kanada á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Tvær tillögur en samt skiptir máli „að þjóð eins og okkar tali einum rómi“
Samstaða „Í til­lög­unni er tekið skýrt fram að þótt Ísrael hafi rétt til þess að verja sig sé sá réttur ekki tak­marka­laus,“ segir Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar, um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu flokks­ins þar sem það er lagt í hendur Alþingis að for­dæma hryðju­verka­árásir Hamas og síðan árásir Ísra­els­hers gegn almennum borg­urum og á borg­ara­lega inn­viði á Gaza-svæð­inu. Mynd: Bára Huld Beck

„Í til­lög­unni er tekið skýrt fram að þótt Ísrael hafi rétt til að verja sig er sá réttur ekki  tak­marka­laus,“ sagði Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar, þegar hann vakti athygli á þings­á­lykt­un­ar­til­lögu Við­reisnar um að for­dæma hryðju­verka­árásir Hamas í Ísrael og árásir Ísra­els­hers gegn almennum borg­urum í Palest­ínu, í störfum þings­ins í upp­hafi þing­fundar. 

Þings­á­lykt­un­ar­til­lagan er sam­hljóða breyt­ing­ar­til­lögu Kanada sem lögð var fyrir á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­ar­innar 27. októ­ber við afgreiðslu álykt­unar þess efnis að koma á mann­úð­ar­vopna­hléi á Gaza taf­ar­laust. Tillagan var lögð fram af Jórdönum. Í breyt­ing­ar­til­lögu Kanada var lagt til að árás Hamas-sam­tak­anna á ísra­elska borg­ara yrði for­dæmd sam­tímis. Á hana féllst meiri­hluti aðild­ar­ríkja Sam­ein­uðu þjóð­anna ekki. Utan­rík­is­ráðu­neytið seg­ist hafa stutt til­lögu Kanada og þar sem ekki hafi náðst sam­staða um hana hafi Ísland setið hjá. 

„Það hefur auð­vitað verið mjög dap­ur­legt að fylgj­ast með því hvernig utan­rík­is­ráðu­neytið og for­sæt­is­ráðu­neytið og hæst­virtir ráð­herrar þar hafa verið að skipt­ast á frétta­til­kynn­ingum þar sem menn eru að leið­rétta hver annan um það hver hin raun­veru­lega afstaða Íslands ætti að vera,“ sagði Sigmar, sem von­ast til þess að til­laga Við­reisnar verði til þess að „allir þing­menn Íslend­inga sam­ein­ist í því sem er rétt að gera og sem allar vina­þjóðir okkar stóðu saman að á vett­vangi Sam­ein­uðu þjóð­anna.“

„Það er okkar von að þessi sam­staða náist því að það skiptir mjög miklu máli í svona við­kvæmu og erf­iðu og lang­vinnu átaka­máli fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs að þjóð eins og okkar tali einum rómi,“ sagði Sigmar jafn­framt. 

Þetta er ekki fyrsta þings­á­lykt­un­ar­til­lagan um vopna­hlé á Gaza. Í gær var þings­á­lykt­un­ar­til­lögu Pírata útbýtt á Alþingi þess efnis að for­dæma aðgerðir Ísra­els­hers í Palest­ínu og kalla eftir taf­ar­lausu vopna­hléi af mann­úð­ar­á­stæðum. Heim­ildin greindi frá því fyrir helgi að Jódís Skúla­dóttir og Steinunn Þóra Árna­dóttir, þing­konur Vinstri grænna væru meðal þeirra tíu þing­manna sem standa að til­lög­unni. 

„Ef samkenndin væri drifkraftur stjórnmálanna þá væru engin stríð“

Gísli Rafn Ólafsson, þing­maður Pírata, ræddi átökin fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs einnig í upp­hafi þing­fundar. Hann sagði okkur mann­eskj­unum vera eðl­is­lægt að finna til þegar brotið er á öðrum mann­eskjum.

„Læknum, hjúkr­un­ar­fólki og öðrum sem horfa upp á erf­iða hluti er oft sagt að þau megi ekki tengj­ast skjól­stæð­ingum of per­sónu­legum böndum því að þá gæti orðið flókið að starfa með þeim í þeim erf­iðu aðstæðum sem fram undan geta verið. Á sama hátt er okkur stjórn­mála­mönnum sagt að hugsa ekki um ein­staka mál heldur hag heild­ar­innar,“ sagði Gísli, sem telur þetta hins vegar vera kol­ranga nálgun. 

SamkenndEf sam­kenndin væri drif­kraftur stjórn­mál­anna þá væru engin stríð, að mati Gísla Rafns Ólafs­sonar, þing­manns Pírata.

„Það er akkúrat með því að tengj­ast ein­stak­lingum og virkja þar með sam­kennd­ina sem við fáum drif­kraft­inn og skiln­ing­inn á því hvað þarf að gera, hvað þarf að bæta og hvað þarf að setja fók­us­inn á. Ef sam­kenndin væri drif­kraftur stjórn­mál­anna þá væru engin stríð, þá væri engin fátækt því að þá værum við löngu búin að nota þær sterku til­finn­ingar sem sam­kenndin vekur inn­an­brjósts hjá okkur til þess að bæta þann heim sem við lifum í.“

Hvað sem tveimur þings­á­lykt­un­ar­til­lögum líður er staðan enn sú að Ísland hefur for­dæmt árásir Hamas á Ísrael en ekki árásir Ísra­els­hers á Gaza. Rík­is­stjórn kom saman til fundar venju sam­kvæmt í morgun en þar var utan­rík­is­stefna Íslands hvað varðar átökin fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs ekki á dag­skrá. 

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár