Um þrjúhundruð manns voru saman komin fyrir framan ráðherrabústaðinn klukkan 9 í morgun. Fólkið mótmælti árásum Ísraelshers á almenna borgara í Palestínu, krafðist meðal annars vopnahlés og frelsun Palestínu.
Ríkisstjórnarfundur hófst um hálftíma eftir að mótmælin hófust og stóð í tvær klukkustundir. Mótmælendur voru farnir þegar fundi ráðherranna lauk.
Lítill tími eftir langan fund
„Bara tvær mínútur fyrir hvert ykkar,“ sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra við fjölmiðlafólk sem beið í anddyri ráðherrabústaðsins. Og bætti við að hún væri að verða of sein á annan fund.
Spurð hvort utanríkisstefna Íslands hvað varðar átökin fyrir botni Miðjarðarhafs hefði verið rædd á ríkisstjórnarfundinum sagði Katrín svo ekki hafa verið.
„Nei ekki núna en á síðasta fundi,“ sagði hún.
Katrín sagði að Ísland hafi talað mjög skýrt fyrir því undanfarna daga að hvatt verði til vopnahlés, að átökin verði stöðvuð. Það hafi til dæmis verið gert …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.















































Athugasemdir