Síðsannleikur og samsæri á Austurvelli - „Klámið burt“

Mót­mæl­endur gegn kyn­fræðslu barna mættu enn stærri hópi sem taldi þá vega að mann­rétt­indum trans fólks. „Við vorum börn“ sagði trans maður með regn­boga­fána. Stjórn­mála­fræði­pró­fessor segir fólk farið að efast um stað­reyndir: „Fólk er ekki lengur bara að skipt­ast á skoð­unum heldur stendur deilan um hvað telj­ast vera stað­reyndir.“

Ólíkir hópar komu saman á Austurvelli, fólk sem viðurkennir ekki tilvist trans barna, og svo trans fólk og stuðningsfólk þess.
Ólíkir hópar komu saman á Aust­ur­velli, fólk sem við­ur­kennir ekki til­vist trans barna, og svo trans fólk og stuðn­ings­fólk þess. Mynd: EH

„Við mót­mælum klám­væð­ingu barna í skólum lands­ins,“ sagði Eldur Deville, for­maður Sam­tak­anna 22, við upp­haf mót­mæla­fundar sem hald­inn var á Aust­ur­velli í lok októ­ber. Það sem mót­mæl­endur köll­uðu „klám­væð­ingu barna í skólum“ er almenn kyn­fræðsla í takt við áherslur Mennta­mála­stofn­unar. Fund­ar­gestir héldu því fram að í kyn­fræðsl­unni væri verið að rugla börn í rím­inu með því að fræða þau um til­vist trans fólks. Auk þess væri verið að kenna leik- og grunn­skóla­börnum sjálfs­fróun. Það er rangt. 

Mótmælin hófust raunar á Hlemmi klukkan eitt laug­ar­dag­inn 21. októ­ber þar sem um fimmtán manns söfn­uð­ust saman og gengu niður Laugaveg, allt niður á Aust­ur­völl, með íslenska fán­ann og mót­mæla­spjöld sem á stóð til að mynda „Klámið burt“, „Látið börnin okkar í friði“ og „Ekki segja barni mínu hver það er“.

Fund­ur­inn á Aust­ur­velli var rétt að hefj­ast, og fólk hafði safn­ast …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár