Fjörutíu og þremur Palestínumönnum hefur verið vísað burt í ár

Þegar íslensk stjórn­völd taka efn­is­lega umfjöllun um umsóknir palest­ínsks flótta­fólks eru umsóknir þeirra sam­þykktar í lang­flestum til­fellum. Í ár hefur um helm­ingur umsókna verið afgreiddar með end­ur­send­ingu fólks til ann­arra Evr­ópu­ríkja; annað hvort á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar eða vegna þess að annað ríki hafi sam­þykkt að veita fólk­inu vernd.

Fjörutíu og þremur Palestínumönnum hefur verið vísað burt í ár
Horft á stöð­una á hverjum stað Í svari Útlend­inga­stofn­unar segir að horft sé til aðstæðna í heima­landi umsækj­enda eða í því ríki sem til stendur að senda fólkið til, þegar það er gert á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar eða þess að annað ríki hafi þegar veitt sam­þykki fyrir vernd. Mynd: Bára Huld Beck

Fjörutíu og þremur Palest­ínu­mönnum hefur verið vísað úr landi á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar. Það þýðir að umsóknir þeirra um alþjóð­lega vernd á Íslandi eru ekki teknar til með­ferðar hjá íslenskum stjórn­völdum og þeim vísað til baka til þess Evr­ópu­lands sem þau ferð­uð­ust frá til Íslands. Sjötíu og tveimur til við­bótar hefur verið vísað úr landi á grund­velli þess að fólkið hafi þegar hlotið vernd ann­ars staðar. Af þessum 115 eru 22 börn. Þetta kemur fram í svari Útlend­inga­stofn­unar til Heim­ild­ar­innar. 

Sagt var frá því í morgun að palest­ínskri móður með sex börn á aldr­inum fimm til sautján ára, ásamt 21 árs gam­alli dóttur kon­unnar, hafi í nótt verið flogið til Spánar, á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar. Konan, sem heitir Jawaher Badran, hafði milli­lent á Spáni á leið sinni með börnin frá Vest­ur­bakk­anum, þaðan sem …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu