Palestínskri fjölskyldu sem flúði Vesturbakkann vísað frá Íslandi

Móður og börn­unum hennar sex var í nótt flogið á vegum íslenskra stjórn­valda til Spánar. Brott­vís­unin er fram­kvæmd á grunni Dyfl­in­ar­reglu­gerð­ar­innar, sem heim­ilar íslenskum stjórn­völdum að vísa flótta­fólki til fyrsta við­komu­staðar þeirra í Evrópu. Fjöl­skyldan hefur enga vernd fengið á Spáni og býður mögu­lega ferða­lag aftur heim til Palest­ínu þar sem blóðug hern­að­ar­á­tök geisa.

Palestínskri fjölskyldu sem flúði Vesturbakkann vísað frá Íslandi
Yngstu börnin Börnin sem send voru á brott með Badran eru á aldr­inum fimm til sautján ára. Þessi mynd var tekin af fjórum yngstu í hús­næði þar sem þau voru geymd fram að brott­flutn­ingi.

Palest­ínskri fjöl­skyldu var í nótt vísað til Spánar, þar sem þau milli­lentu á leið sinni frá Palest­ínu til Íslands. Um er að ræða móður, Jawaher Badran, með sex börn, á aldr­inum fimm til sautján ára, og tvær dætur á þrí­tugs­aldri, sem flúðu heim­ili sitt á Vest­ur­bakk­anum í des­em­ber á síð­asta ári. Önnur dætr­anna er enn á Íslandi en Badran var send burt með yngri börnin.

Kona sem aðstoðað hefur Badran á Íslandi segir ekk­ert bíða fjöl­skyld­unnar á Spáni. 

„Þau eru ekki með vernd þar. Þetta er Dyfl­inn­ar­mál. Þau komu til Íslands í gegnum Spán og voru aldrei á Spáni nema til að taka flug til Íslands,“ segir Morgane Priet-Maheo, sjálf­boða­liði hjá Rétti barna á flótta, sem hefur verið fjöl­skyld­unni innan handar. „Við vitum ekki hvernig líð­anin er hjá þeim. Börnin eru frekar lítil enn þá; það yngsta er fimm ára og tíu ára dóttir hennar er floga­veik.“

…

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurdur Hermannsson skrifaði
    Sorglegt.
    0
  • S
    Sigrún skrifaði
    Ég er miður mín!
    2
  • Mummi Týr skrifaði
    Djöfull er þetta sorglegt. Klöppum fyrir mannúðinni sem er ekkert að þvælast fyrir fótunum á þessarri ríkistjórn...
    1
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Það væri fróðlegt að vita hvort íslensk stjórnvöld myndu meðhöndla ísraelska ríkisborgar á sama hátt og þau plestínsku ef þau óskuðu eftir alþjóðlegri vernd hér á Íslandi.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu