Guðni forseti þakkar skjót viðbrögð eftir að maður hneig niður í IKEA

Svæf­ing­ar­hjúkr­un­ar­fræð­ingur sem var með börnum sínum í IKEA í dag tók að sér að stýra aðgerðum eftir að gam­all maður hneig þar niður, þangað til sjúkra­flutn­inga­fólk kom á vett­vang. Forseti Íslands var þarna einnig við­staddur og þakkar hann öllum sem þarna komu að.

Hópur fólks brást skjótt við þegar gamall maður hneig skyndilega niður í IKEA í dag. Forsetinn var þeirra á meðal.
Hópur fólks brást skjótt við þegar gam­all maður hneig skyndi­lega niður í IKEA í dag. For­set­inn var þeirra á meðal. Mynd: KO

„Fallegt að sjá Guðna for­seta stíga sterkt inn þegar gam­all maður hneig niður í Ikea. Litla góða Ísland í hnot­skurn,“ segir Katrín Odds­dóttir lög­maður í færslu á Facebook þar sem hún birtir mynd af þeim sem brugð­ust skjótt við eftir að mað­ur­inn hneig niður. Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands er einn þeirra. 

Guðni hefur verið þekktur fyrir hversu alúð­legur hann er, og kom­ist hefur í frétt­irnar þegar hann er að plokka rusl fyrir utan for­seta­bú­stað­inn við undrun ferða­manna, þegar hann játti beiðni tveggja drengja sem báðu um far með for­set­anum eftir að þeir voru að koma af sund­móti en móður ann­ars þeirra hafði seinkað, og þegar hann mætti nýverið á þung­arokks­há­tíð í Þýska­landi. 

Einn þeirra sem skrifar athuga­semd við færslu Katrínar spyr hvort Guðni hafi bara verið í sím­anum, en hann sést þar hand­leika síma. Katrín svarar mann­inum: „Nei, hann var stumr­andi yfir honum allan tím­ann. Þarna var verið að bíða eftir við­bragðs­að­ilum.“

Þegar Heim­ildin hafði sam­band við skrif­stofu for­seta vegna atviks­ins feng­ust þau svör að Guðni hefði vissu­lega verið staddur í IKEA fyrr í dag „en hann kýs að tjá sig ekki um þetta atvik að öðru leyti en því að koma á fram­færi þökkum til þeirra sem komu fljótt að, bæði starfs­fólks IKEA og svæf­ing­ar­hjúkr­un­ar­fræð­ings sem var sest til borðs með börnum sínum en stýrði við­brögðum þar til sjúkra­flutn­inga­fólk kom á vett­vang.“

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár