Hjálpað Diana, heil­brigð­is­full­trúi hjá Mission Kharkiv, deilir út lyfja­með­ferðum til krabba­meins­sjúkra á Grigoriev sjúkra­hús­inu í Kharkiv. Mynd: Óskar Hallgrímsson

Landið sem krabbameinslæknarnir yfirgáfu

Talið er að um 80 pró­sent allra krabba­meins­lækna hafi yfir­gefið Úkraínu eftir að Rússar réð­ust inn í landið, þótt margir þeirra hafi síðan snúið aftur. Það hægir þó ekk­ert á krabba­meinstil­fell­unum sem grein­ast. Þau eru um 160 þús­und á ári. Upp úr þessum aðstæðum spruttu sam­tökin Mission Kharkiv sem beita nýstár­legum aðferðum, og stærð­fræði, til að koma lyfjum og nauð­syn­legum birgðum til þurf­andi sjúk­linga.

Í um 200 daga stóð Kharkiv, næst­stærsta borg Úkraínu, frammi fyrir miklu og langvar­andi umsátri. Loft­árásir og stór­skota­hríð ein­kenndu dag­legt líf borg­ar­búa. Flestir sem höfðu færi á flúðu borg­ina en þó var stór hluti sem sat eftir. Innviðir eins og vegir, skólar, sjúkra­hús, raf­stöðvar og hita­veita voru undir sífelldum árásum frá her­sveitum Rússa sem náðu aldrei að stíga inn fyrir borg­ar­mörkin.

Alvar­legur skortur á mat, lyfjum og öðrum nauð­syn­legum birgðum var ein helsta áskor­unin fyrir íbúa, bæði sökum umsát­urs­ins og vegna þess að Rússar gerðu árásir á mark­aði víðs vegar um borg­ina.  

Flutn­inga­fyr­ir­tæki voru hrædd við að hætta sér í að flytja lyf í austur og ástandið var ekki mikið betra í vest­ur­hluta lands­ins því þar var bæði mik­ill skortur á lyfja­með­ferðum auk þess að sjúk­lingar frá stríðs­hrjáðum hlutum lands­ins fluttu vestur og yfir­fylltu sjúkra­húsin þar. 

Í Kharkiv var árás gerð á rík­is­rekna krabba­meinsmið­stöð sem þjón­aði flestum krabba­meins­sjúkra í …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á vettvangi í Úkraínu

„Hermaðurinn í mér var alltaf til staðar“
ErlentÁ vettvangi í Úkraínu

„Her­mað­ur­inn í mér var alltaf til staðar“

Lista­maður sem varð lið­þjálfi útskýrir hvernig það kom til að hann gekk til liðs við Azov-her­deild­ina í Úkraínu. Hann og fleiri veita inn­sýn í störf þess­arar umdeild­ustu her­deildar lands­ins og hafna ásök­unum um tengsl við hægri öfga­flokka. Það sé af sem áður var að allir sem gátu lyft byssu væru sam­þykktir í deild­ina. Um leið og her­deildin hafi verið tekin inn í þjóð­varn­ar­liðið hafi póli­tískar hug­sjónir þurft að víkja.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár