Auðun Georg skammaðist sín fyrir nafnið sitt eftir fréttastjóramálið

Auðun Georg Ólafsson segir að flöt­ur­inn á gríni á hans kostnað í ára­mótaskaupi Rík­is­út­varps­ins árið 2005 hafi verið hans „allra erf­ið­asta stund þegar mest gekk á.“ Hann hafi fengið „mjög hættu­legar hugs­anir um að valda mér skaða og það hvarfl­aði að mér að gera það á tröppum RÚV.“

Auðun Georg skammaðist sín fyrir nafnið sitt eftir fréttastjóramálið
Veiktist Auðun Georg segir að í byrjun árs 2006 hafi öll fjöl­miðlaum­fjöll­unin, við­talið 1. apríl, umræðan á Alþingi og sam­fé­lag­inu, hellst yfir hann af miklum krafti. Mynd: Golli

Auðun Georg Ólafsson var frétta­stjóri Útvarps hjá RÚV í einn dag árið 2005. Eftir hörð mót­mæli frétta­manna, sem töldu hann póli­tískt hand­bendi, og hót­anir stjórn­mála­manna, hætti hann við að þiggja starfið.

Í ítar­legu við­tali í síð­asta tölu­blaði Heim­ild­ar­innar segir Auðun Georg frá því að hann upp­lifði mikla útskúfun í kjöl­farið og glímdi við geð­ræn veik­indi.

Eftir að málið kom upp hafi hann verið atvinnu­laus í nokkra mán­uði. „Ég var reyndar að hjálpa mömmu minni með lítið fyr­ir­tæki sem hún starf­rækti. Hún hafði þróað merki­legt for­rit til að auð­velda lestr­ar­kennslu. Svo fékk ég starf hjá litlu tækni­fyr­ir­tæki um haustið og þar var ég aðal­lega í erlendum sam­skiptum. Það skipti miklu máli því ég vildi helst ekki tala við Íslend­inga sem þekktu nafnið mitt.“ 

„Þá brast eitthvað innra með mér“

Auðun Georg segir að fram að þessum tíma hafi hann verið mjög frískur. Hann hafi hvorki glímt við kvíða né þung­lyndi. Hafi verið alveg laus við slík veik­indi og þakkar fyrir að hafa kom­ist yfir þau. Geð­heilsa hans sé afar góð í dag.
Hann segir að van­líð­anin af völdum kvíða og ótta hafi orðið til þess að hann veikt­ist á geði fyrir 18 árum og að hann hefði í raun þurft að leggj­ast inn á spít­ala. Veik­indin ágerð­ust og á gamlárs­kvöld, um níu mán­uðum eftir að hann labb­aði út úr Útvarps­hús­inu í síð­asta sinn, hrundi til­vera Auðuns Georgs. 

„Í ára­mótaskaupi Rík­is­út­varps­ins er gert grín að þessu. Ég er sýndur grát­andi, eins og ég hafi hlaupið grenj­andi út úr Útvarps­hús­inu. Það voru mjög fáir inni á RÚV sem sáu mig tár­ast yfir því sem á mér hafði dunið. Ég varð fyrir miklum von­brigðum með það fólk. Mér fannst sárt að sjá að fólk hag­aði sér svona. Alveg rosa­lega vont. Flöt­ur­inn á grín­inu á minn kostnað í skaup­inu er mín allra erf­ið­asta stund þegar sem mest gekk á. Ég hló fyrst þegar atriðið var að byrja og sá sem lék mig var hafður með Fram­sókn­ar­merkið í jakk­anum. Það var mjög fyndið. En þegar leik­ar­inn fer að gráta þá brast eitt­hvað innra með mér og gamla skömmin og nið­ur­læg­ingin bloss­aði upp.“

Fékk hættulegar hugsanir

Hann segir að þetta hafi verið kornið sem fyllti mæl­inn og að hann hafi á þess­ari stundu hrunið and­lega. 

„Ég fékk mjög hættu­legar hugs­anir um að valda mér skaða og það hvarfl­aði að mér að gera það á tröppum RÚV. Ég var svona mikið veikur. En sem betur fer náði ég að stoppa hugs­an­irnar og biðja um hjálp. Andlega átti ég mjög erfitt. Þorra­blóts-ein­eltis-húmor­inn er sem betur fer á und­an­haldi í dag en ég sé hann því miður stundum blossa upp. Fólk er stundum tekið fyrir í ein­hverjum grín­þáttum og spurt síðan dag­inn eftir hvernig þeim leið með það. Flestir taka því bara létt en ég þyk­ist vita að þetta særir marga en fáir þora að við­ur­kenna það. Ég skal þá bara vera fyrstur að segja að þetta særði mig mjög djúpt og var bein­línis hættu­legt grín fyrir mig. Löngu seinna rakti ég mína sögu í sam­tali við eldri frétta­menn sem ég þekki af góðu. Þeir sögðu að ég hefði sjálf­sagt bara verið of við­kvæmur til að fara inn í þetta starf. Að skelin hefði ekki verið nógu hörð. En ég minn­ist þess ekki að það hafi staðið í atvinnu­aug­lýs­ing­unni að frétta­stjór­inn ætti að vera hörku­tól.“

Með alvarlega áfallastreitu

Auðun Georg segir að í byrjun árs 2006 hafi öll fjöl­miðlaum­fjöll­unin, við­talið 1. apríl, umræðan á Alþingi og sam­fé­lag­inu, hellst yfir hann af miklum krafti.

„Nafnið mitt hafði verið mjög áber­andi. Það tók mig mörg ár að vinna mig út úr þessu. Það er mjög skrýt­inn staður að vera á þar sem maður skamm­ast sín fyrir nafnið sitt. Ég gat ekki sent tölvu­póst með nafn­inu mínu, ég gat ekki hringt og kynnt mig með nafni, mér fannst allir þekkja mig ein­hvern veg­inn. Þess vegna var ágætt að vinna hjá fyr­ir­tæki sem var í útflutn­ingi og ég að díla við útlend­inga allan dag­inn. Þá gat ég verið frjáls og byggt mig rólega upp.“

Hann seg­ist hafa verið í með­ferð hjá geð­lækni vegna veik­ind­anna. Hann átti sig á því í dag að veik­indin hafi verið svo alvar­leg að hann hefði átt að leggj­ast inn á spít­ala þegar mest gekk á.  

„Ég hefði örugg­lega haft gott af því að fá þá hvíld. Ég var með áfallastreitu og í sífelldu tráma og end­ur­upp­lif­unum. Mig lang­aði að rétta við minn hlut og jafn­vel biðja fólk afsök­unar ef ég hefði gert þeim eitt­hvað en ég fann það bara aldrei út hvað það ætti að vera. Svo vann ég vel í sjálfum mér með dyggri aðstoð minna nán­ustu, félaga og vina og ég get oft­ast séð spaugi­legri hlið á þessu öllu í dag.“

Umræðan hefur hjálpað

Hann segir að þó að honum líði vel í dag finn­ist honum enn erfitt þegar málið er rifjað upp. Umræðan í sam­fé­lag­inu síð­ustu ár hafi hjálpað honum. 

„Hún er búin að breyt­ast svo mikið gagn­vart svona málum. Fólk er frjáls­ara og óhrædd­ara að koma út með það og segja sögur sínar,“ segir Auðun Georg sem telur að harkan sé á und­an­haldi. ,,Ég held að þetta myndi aldrei end­ur­taka sig með þessum hætti í dag. Þessi útskúfun, hópelti og smættun – þegar hjólað er í mann­inn en ekki bolt­ann. Þegar ein­hver ungur sækir um starf og er ráð­inn óvænt þá myndu við­brögðin vera önnur í dag en árið 2005. Ég vona það að minnsta kosti.“

Áskrif­endur Heim­ild­ar­innar geta lesið við­talið við Auðun Georg í heild sinni hér. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár