„Leyndarhjúpur“ um veitingu ríkisborgararéttar verði skoðaður

Jón Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, ætlar að kalla eftir því að þing­menn fái aðgang að öllum upp­lýs­ingum um umsækj­endur um rík­is­borg­ara­rétt. Hann segir „ómögu­legt að það séu ein­hverjir þrír þing­menn í und­ir­nefnd alls­herjar- og mennta­mála­nefndar sem sjá um að fara yfir þessar umsóknir.“

„Leyndarhjúpur“ um veitingu ríkisborgararéttar verði skoðaður
Rík­is­borg­ara­réttur Jón Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, segir það „alveg ómögu­legt að það séu ein­hverjir þrír þing­menn í und­ir­nefnd alls­herjar- og mennta­mála­nefndar“ sem fari yfir umsóknir um rík­is­borg­ara­rétt. Hann kallar eftir því að allir þing­menn fái aðgang að upp­lýs­ing­unum í umsókn­unum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, kallar eftir því að „leynd­ar­hjúpur“ yfir veit­ingu rík­is­borg­ara­réttar verði skoð­aður í ljósi gagn­sæis og hæf­is­reglna. 

Þetta koma fram í máli þing­manns­ins í upp­hafi þing­fundar í dag undir liðnum störf þings­ins. „Að veita rík­is­borg­ara­rétt er stór­mál, stór­mál fyrir þann sem veitir hann og stór­mál fyrir þá sem fá rík­is­borg­ara­rétt á Íslandi. Nú líður að þeim tíma að umsóknir sem ber­ast til Alþingis um rík­is­borg­ara­rétt verði teknar til umfjöll­unar og afgreiddar. Við höfum áður tek­ist á um það hér í þing­sal og þá hafa verið deildar mein­ingar um hvernig eigi að vinna með slíkar umsóknir og þetta kerfi verið gagn­rýnt,“ sagði Jón. 

Dylgjur, atvinnurógur og slúður

Átökin sem fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra vís­aði í áttu sér stað í byrjun apríl þegar Jón, sem þá var dóms­mála­ráð­herra, lét þau orð falla á þingi að hann teldi til­efni til að skoða það í alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd hvort þing­menn í nefnd­inni hefðu tengsl við eða þeg­ið gjaf­ir frá því fólki sem feng­ið hef­ur rík­is­borg­ara­rétt með lög­um frá Al­þingi. Í kjöl­far­ið steig hver þing­mað­ur­inn á fæt­ur öðr­um í pontu til að bera af sér sak­ir og dóms­mála­ráð­herr­ann var sak­að­ur um dylgj­ur, at­vinnuróg og slúð­ur úr ræðu­stól.  

Orðrétt sagði Jón, í umræðum um fund­ar­stjórn for­seta:

„Hitt er svo hvernig staðið hefur verið að rík­is­borg­ara­rétt­ar­veit­ingu hér á Alþingi, það held ég að sé til­efni til þess að skoða, virðu­legur for­seti, og það má líka skoða það, t.a.m. í nefnd­inni sem um þetta fjall­aði, hver eru mögu­leg tengsl fólks við það fólk sem hefur verið veittur rík­is­borg­ara­réttur. Var mögu­legt að ein­hverjir hefðu komið að borð­inu áður með atvinnu eða vinnu við að sinna þeim hæl­is­leit­endum sem voru að fá veit­ingu rík­is­borg­ara­réttar, hafa mönnum borist ein­hver sér­stakur þakk­læt­is­vottur fyrir að hafa veitt rík­is­borg­ara­rétt. Þetta eru kannski atriði sem, virðu­legur for­seti, væri ástæða til að fá til skoð­unar hjá nefnd­inni og fá svör við því hvort ein­hver orðrómur um slíkt eigi við rök að styðj­ast.“

Jón fleytti með orðum sínum áfram dylgjum sem settar höfðu verið fram, sér í lagi um tvo til­tekna stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn sem á árum áður störf­uðu sem lög­menn, m.a. við rétt­ar­gæslu ein­stak­linga sem sótt hafa um alþjóð­lega vernd á Íslandi. Önnur þeirra, Arndís Anna K. Gunn­ars­dóttir þing­maður Pírata sagði orð dóms­mála­ráð­herra við­ur­styggi­leg og að mörgu leyti ekki svara­verð en fann sig knúna til að koma upp í pontu og bera af sér sakir. „Ég hef aldrei þegið mútur fyrir það að veita fólki rík­is­borg­ara­rétt með frá Alþingi, aldrei, og myndi aldrei gera,“ sagði Arndís í umræðum á þingi í apríl. 

Ómögulegt að þrír þingmenn fari yfir umsóknir

Jón, nú sem óbreyttur þing­maður, ræddi veit­ingu rík­is­borg­ara­réttar á þing­fundi í dag og sagði það „ómögu­legt að það séu ein­hverjir þrír þing­menn í und­ir­nefnd alls­herjar- og mennta­mála­nefndar sem sjá um að fara yfir þessar umsóknir, leggi á þær mat, taki á móti upp­lýs­ingum sem ber­ast meðal ann­ars frá Útlend­inga­stofnun og lög­reglu og síðan komi til­laga inn til þings­ins en hátt­virtir þing­menn hafi engin tök á að kynna sér þær umsóknir, taki enga umræðu um það af hverju verið er að hafna ákveðnum umsóknum, af hverju verið er að sam­þykkja ákveðnar umsóknir.“

Þetta telur Jón að gangi ekki upp og ætlar hann að kalla eftir því að þing­menn fái aðgang að öllum upp­lýs­ingum um umsækj­endur um rík­is­borg­ara­rétt. 

„Það getur varla talist neitt annað rétt­læt­an­legt í þessu en að hátt­virtir þing­menn séu upp­lýstir um það hvaða ákvarð­anir þeir eru að taka í þessu mik­il­væga máli,“ sagði Jón. 

Veiting rík­is­borg­ara­réttar er yfir­leitt með síð­ustu verkum Alþingis fyrir jóla­frí. Meðal þeirra sem sótt hafa um rík­is­borg­ara­rétt er Isaac Kwateng, vall­ar­stjóri Þróttar, sem hef­ur bú­ið hér á landi í tæp sex ár og á hverju ári feng­ið sím­tal frá Út­lend­inga­stofn­un um að vísa eigi hon­um burt. Isaac var vísað úr landi í gær­morgun, í lög­reglu­fylgd, alla leið til Gana og verður hann að öllum lík­indum ekki á land­inu þegar umsókn hans verður tekin fyrir. Fé­lag­ar hans í Þrótti ætla hins vegar ekki að leggja ár­ar í bát. Þeir líta á ferð vall­ar­stjór­ans sem frí sem hann muni koma aft­ur úr bráð­lega. „Allt snýst um að koma hon­um heim fyr­ir jól,“ seg­ir þjálf­ari hjá Þrótti.   

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Jón þessi hefði passað vel inn í valdakerfið þýska á árunum 1933-45.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár