„Við hættum ekki fyrr en hann er kominn aftur til okkar“

Þó að vall­ar­stjóra Þróttar hafi verið vísað úr landi eldsnemma í morgun ætla félagar hans í Þrótti ekki að leggja árar í bát. Þeir líta á ferð vall­ar­stjór­ans sem frí sem hann muni koma aftur úr bráð­lega. „Allt snýst um að koma honum heim fyrir jól,“ segir þjálf­ari hjá Þrótti.

„Við hættum ekki fyrr en hann er kominn aftur til okkar“
Isaac Kwateng Kom hingað til lands í jan­ú­ar­mán­uði árið 2018 og hefur verið hér síðan. Hann hefur sótt um rík­is­borg­ara­rétt sem verður vænt­an­lega tek­inn fyrir á Alþingi í des­em­ber­mán­uði. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Nóttin var löng fyrir Isaac Kwateng, vall­ar­stjóra Þróttar, sem vissi að klukkan fimm um morg­un­inn myndu lög­reglu­menn birt­ast og vísa honum úr landi. Fjórir af hans nán­ustu aðstand­endum hér á landi voru með honum í nótt til þess að styðja hann þessar síð­ustu stundir á Íslandi – í bili. 

Stund­vís­lega klukkan fimm í morgun bönk­uðu lög­reglu­menn svo upp á heim­ili fram­kvæmda­stjóra Þróttar þar sem Isaac var með sínum nán­ustu. Þeir voru óein­kenn­is­klæddir en vin­gjarn­legir. Lög­reglu­menn­irnir spjöll­uðu við Isaac og aðstand­endur hans um stund og svo var komið að því. Isaac var fluttur á brott í bif­reið þeirra og er nú í flug­vél á leið til Hollands hvaðan hann flýgur svo í lög­reglu­fylgd til Gana. 

Jón Haf­steinn Jóhanns­son, þjálf­ari hjá Þrótti var með Isaac í nótt. 

„Maður var alveg fram á síð­ustu stundu með von um að þetta yrði ekki,“ segir Jón Haf­steinn. „Maður upp­lifir ákveð­inn tóm­leika. Mér finnst fjara aðeins undan því að maður sé stoltur Íslend­ingur. Mér finnst það mjög miður.“

Er áfram starfsmaður Þróttar

Isaac kom til lands­ins í jan­ú­ar­mán­uði árið 2018. Hann fékk neitun um alþjóð­lega vernd síðar sama ár og árlega síðan fékk hann sím­tal um að vísa ætti honum úr landi. Honum var hafnað um alþjóð­lega vernd árið 2018 en aftur og aftur end­ur­tók sama atburða­rásin sig. Enginn kom og færði hann með valdi úr landi. Ekki fyrr en í morgun. 

Fyrir tæpum tveimur árum var Isaac ráð­inn sem vall­ar­stjóri Þróttar og hefur síðan þá sinnt starf­inu með mik­illi prýði að sögn fram­kvæmda­stjóra félags­ins og ann­arra starfs­manna þess. 

„Við verðum bara hand­lama hérna án hans,“ sagði María Edwardsdóttir fram­kvæmda­stjóri við Heim­ild­ina í byrjun mán­aðar. „Þetta mun koma sér mjög illa fyrir okkur.“

Símtöl„Árlega hefur lög­reglan hringt í mig,“ sagði Isaac í sam­tali við Heim­ild­ina fyrr í þessum mán­uði.Heim­ildin / Davíð Þór

Þróttur hélt styrkt­ar­leik fyrir Isaac um helg­ina. Um 700 manns mættu og safn­að­ist nægt fé til þess að styðja við Isaac til að byrja með. Með sjóðnum hefur Þróttur keypt hót­elgist­ingu fyrir Isaac í tvær vikur í Gana og mun starfs­fólk hót­els­ins sækja Isaac á flug­völl­inn þegar hann lendir þar í lög­reglu­fylgd. 

Þrótt­arar eru bjart­sýnir á fram­haldið. Þrjár umsóknir sem gætu tryggt veru hans hér á landi eru opnar í kerf­inu: Umsókn um dvalar og atvinnu­leyfi, umsókn um rík­is­borg­ara­rétt sem tekin verður fyrir í des­em­ber og umsókn um atvinnu­leyfi fyrir íþrótta­fólk, en Isaac spilar knatt­spyrnu með SR, vara­liði Þróttar. 

„Nú er fókus okkar allra far­inn á það að tryggja komu hans heim sem fyrst,“ segir Jón Haf­steinn og bætir við því að Þróttur horfi á fjar­veru Isaacs eins og frí. 

„Við lítum enn á það þannig að hann sé starfs­maður félags­ins. Nú ganga aðrir að ein­hverju leyti í hans störf á meðan hann er ekki við. Hann á auð­vitað rétt á sínu fríi, við horfum á það þannig að hann sé í fríi og núna hjálp­ast aðrir starfs­menn félags­ins að.“ 

ÞróttariIsaac sagði Þrótt­ar­ana fjöl­skyldu sína.Heim­ildin / Davíð Þór

Og Isaac ætlar að nýta ferð sína til Gana, sem hann seg­ist hafa yfir­gefið í miklum flýti árið 2017 vegna árásar sem beind­ist að honum og vini hans, í að afla þeirra gagna sem hann þarf frá upp­runa­land­inu. 

„Nú er hann með dag­skrá til að fara að redda þessum gögnum sem hann þarf þegar hann verður Íslend­ingur,“ segir Jón Haf­steinn bjart­sýnn. „Hér er hann að stefna á að eyða sínu lífi og við ætlum ekki að hætta fyrr en svo verður.“

Vill vera hér„Ég veit ekki hvert ég myndi fara í Gana,“ sagði Isaac sem á enga fjöl­skyldu í land­inu lengur.Heim­ildin / Davíð Þór

Isaac vinningur fyrir Þrótt

Fjarvera Isaacs mun hafa þau áhrif að þjón­ustan hjá Þrótti skerð­ist að ein­hverju leyti þar sem stefnan er ekki að ráða nýjan vall­ar­stjóra, alla vega ekki strax. 

„Það var nátt­úru­lega algjör vinn­ingur fyrir félagið að hafa fengið hann í starf fyrir félagið á sínum tíma. Auðvitað er gott fólk víða en ég efa það að það sé ein­hver eins og Isaac okkar,“ segir Jón Haf­steinn.  

„Ég hugsa að það verði ekki ein­hver á hverjum morgni sem ein­hvern labbar um og tekur upp dótið sem krakk­arnir týndu dag­inn áður og kemur því á góðan stað svo for­eldrar og fleiri þurfa kannski að byrja á að leita óskila­muna úti á velli.“ 

Ætlaði varla að treysta sér á styrktarleikinn

Isaac leið illa í aðdrag­anda brott­vís­un­ar­innar enda er hann nú sendur til lands þar sem hann á ekki lengur neinn að, að eigin sögn, og ætl­aði hann varla að treysta sér að taka þátt í styrkt­ar­leiknum í gær. 

„Í upp­hafi dags­ins var hann ekk­ert nema grát­ur­inn en ég held að samt á end­anum hafi það verið gott fyrir hann því þetta á end­anum stapp­aði ákveðnu stáli í hann,“ segir Jón Haf­steinn. 

Hver króna sem þar safn­að­ist verður nýtt í að aðstoða Isaac við að kom­ast aftur til Íslands.

„Við hættum ekki fyrr en hann er kom­inn aftur til okkar þar sem hann á heima,“ segir Jón Haf­steinn.

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Vilhjálmsson skrifaði
    Það er við hæfi að hvetja Þróttara til þess að hætta að kjósa Sjálfstæðisflokkinn, þá sem það enn gera, því að það er flokkurinn sem ber ábyrgð á hatursfullri útlendingastefnu á Íslandi.
    1
  • Steinar Harðarson skrifaði
    Stoltur af ykkur Þróttarar!
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flóttamenn

FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið undanfarið ár