Venjulegt fólk statt í martröð

„Það er fyrst og fremst venju­legt fólk eins og við sem kemur til með að verða fórn­ar­lömb þessa,“ segir Magnús Þorkell Bern­harðs­son, pró­fessor í Mið-Aust­ur­landa­fræði, um stríð Ísra­els­hers og Hamas-sam­tak­anna palest­ínsku.

Venjulegt fólk statt í martröð
Stríð Reykj­ar­mökkur stígur upp úr bygg­ingum á Gasa­svæð­inu eftir loft­árás Ísra­els­hers í gær. Átökin hafa færst í auk­ana.

Stríð Hamas-sam­tak­anna og Ísra­els­hers hefur þró­ast hratt og stríðið er óhefð­bundið. Loka­tak­markið er óljóst og erfitt fyrir sér­fræð­inga að spá í spilin. Magnús Þorkell Bern­harðs­son, pró­fessor í Mið-Aust­ur­landa­fræði, segir líkur á mjög blóð­ugum alls­herj­ar­á­tökum sem muni standa í nokkurn tíma. 

Deilur Ísraels og Palest­ínu ná marga ára­tugi aftur í tím­ann en Hamas-sam­tökin réð­ust á Ísrael um síð­ustu helgi og hafa hund­ruð Ísraela og Palest­ínu­manna fallið síðan. 

Magnús segir það ein­ungis tíma­spurs­mál hvenær Ísra­els­her ráð­ist inn á Gasa­svæðið, sem stjórnað er af Hamas, með land­hern­aði og telur Magnús að Hamas hafi búist við því frá upp­hafi.

„Það var kannski mark­miðið að tæla Ísra­els­menn svo­lítið inn á þetta svæði,“ segir Magnús og útskýrir að eng­inn eig­in­legur her starfi á Gasa­svæð­inu, fremur ýmsar vopn­aðar fylk­ingar. Menn þeirra eru um 25 til 30 þús­und en Ísra­els­her er marg­falt stærri. 

„Það er lík­legra að þeir nái ein­hverri vel­gengni gegn …

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Magnús Mörður Gígja skrifaði
    MOSAD er sú leyniþjónusta sem hefur gegnum tíðina verið talin sú besta í heimi, það var haft eftir fyrrum starfsmanni MOSAD "Ef fugl nálgast landamærin þá kemur viðvörun jafnvel kakalkki kemur kerfinu í gang,, hvernig komust þessir Palistínumenn með vopn og búnað inní Ísrael öðruvísi enn með að æðstu menn hafi komið þar að. Þetta er allt í boði Benjamin Netanyahu enda þarf maðurinn að beina athyglinni frá sér.
    1
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    "Lokatakmarkið óljóst"? Nei! Blóðhefnd er málið á hverjum sem er á Gaza. :(
    0
  • Axel Axelsson skrifaði
    falskur fáni til að réttlæta þjóðarmorð á gaza í boði zæónistan . . . https://hox.is/is/gaza-2023/ . . .
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár