Þrjár tilkynningar um vinnumansal til lögreglu - „Sofið með stól fyrir dyrunum“

Vinnu­staða­eft­ir­lit ASÍ sendi þrjár til­kynn­ingar til lög­reglu í fyrra þar sem rök­studdur grunur var um að aðstæður starfs­fólks væru svo slæmar að það gæti talist til mansals. Málin þrjú vörð­uðu fyr­ir­tæki í veit­inga- og hót­el­rekstri og starfs­fólkið frá Evrópu og Asíu­ríkjum. Dæmi eru um alvar­lega mis­neyt­ingu fólks frá ríkjum utan EES þar sem atvinnu­rek­andi hefur beitt hót­unum um brott­vísun gagn­vart þolendum.

Vinnu­staða­eft­ir­lit Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) sendi þrjár til­kynn­ingar til mansal­steymis lög­reglu á síð­asta ári, en um var að ræða mál þar sem rök­studdur grunur var um að aðstæður starfs­fólks væru svo slæmar að það gæti talist til mansals. Málin þrjú vörð­uðu fyr­ir­tæki í veit­inga- og hót­el­rekstri og starfs­fólkið frá Evrópu og Asíu­ríkjum.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu ASÍ um vinnu­mark­að­inn þar sem sér­stök áhersla er lögð á erlent launa­fólk og vinnu­mark­aðs­brot sem það verður fyrir af hálfu atvinnu­rek­enda hér á landi. 

Þar segir að reynslan sýni að það sé gjarnan í vinnu­staða­eft­ir­liti sem upp kemst um alvar­leg­ustu brotin gegn launa­fólki, enda eru eft­ir­lits­full­trúar í lyk­il­stöðu til að koma auga á vís­bend­ingar um mis­neyt­ingu og man­sal á vinnu­stöðum, þar sem slíkt fyr­ir­finnst. Þar sé lyk­il­at­riði að eft­ir­litið fer fram í nærum­hverfi þol­and­ans, enda þekkt að þolendur ofbeldis leita sér ekki alltaf aðstoðar að fyrra bragði og því þarf að bjóða aðstoð­ina sér­stak­lega fram.

Ungt fólk verður frekar fyrir brotum

Í skýrsl­unni er að finna ítar­lega grein­ingu á íslenskum vinnu­mark­aði, sam­setn­ingu hans og þróun. Sérstök áhersla er lögð á inn­flytj­endur á íslenskum vinnu­mark­aði og stöðu þeirra. Þá er byggt á gögnum frá aðild­ar­fé­lögum Alþýðu­sam­bands­ins auk sér­grein­ingar Vörðu - rann­sókna­stofn­unar vinnu­mark­að­ar­ins.

Skýrslan sýnir að árið 2022 var rúm­lega helm­ingur launa­krafna gerður fyrir félags­fólk af erlendum upp­runa. Á sama tíma var erlent verka­fólk um fimmt­ungur þess fjölda sem var á vinnu­mark­aði. Í grein­ingu Vörðu kveð­ast 56% inn­flytj­enda hafa orðið fyrir vinnu­mark­aðs­brotum á síð­ustu 12 mán­uðum. Ungt fólk er mun lík­legra en hinir eldri að verða fyrir brotum á vinnu­mark­aði.

Alvarleg misneyting

Eft­ir­lits­full­trúar ASÍ og stétt­ar­fé­lag­anna fóru í 692 heim­sóknir á síð­asta ári og ræddu við 2.541 ein­stak­linga í þeim heim­sóknum. Algeng­ustu ágallar sem fram komu í vinnu­staða­eft­ir­liti vörð­uðu laun og önnur kjör og voru að jafn­aði leyst hjá stétt­ar­fé­lög­unum, með sam­þykki og umboði þess sem óskaði aðstoðar. Þótt tölur skorti um algengi slíkra ágalla fyrir landið allt segir í skýrsl­unni að óhætt sé að full­yrða, af reynslu vinnu­staða­eft­ir­lits­ins og stétt­ar­fé­lag­anna, að ágallar á borð við rangt greidda yfir­vinnu, rangt vakta­á­lag eða skort á skrif­legum ráðn­ing­ar­samn­ingi eru algengir.

Í skýrsl­unni segir að vís­bend­ingar úr vinnu­staða­eft­ir­liti á árinu 2022 gefa til­efni til að hafa áhyggjur af stöðu fólks frá ríkjum utan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins (EES) sem starfar gjarnan hér á landi á tíma­bundnum atvinnu­leyfum. Alvar­leg­ustu mis­neyt­ing­ar­málin sem komu inn á borð vinnu­staða­eft­ir­lits ASÍ frá stétt­ar­fé­lög­unum sneru oftar en ekki að ein­stak­lingum með slík leyfi.

Reynsla vinnu­staða­eft­ir­lits­ins sýnir að ein­stak­lingar sem eiga á hættu að missa atvinnu­leyfi sitt og þar með dval­ar­leyfi ef þeir missa vinn­una eru lík­legri til að sætta sig við slæmar aðstæður í vinnu.

Hótunum beitt til að kúga

Fjölmörg atvinnu­leyfi eru bundin við sér­staka atvinnu­rek­endur, en ekki til dæmis starf­svið. Eru því miklir hags­munir í húfi fyrir þann sem hér starfar á slíku atvinnu­leyfi að missa ekki starf sitt - allt lífs­við­ur­væri getur verið undir. Þetta á sér­stak­lega við um fólk frá ríkjum þar sem efna­hags­að­stæður eru slæmar. Þá eru dæmi þess að fólk hafi skuld­sett sig í heima­land­inu til að kom­ast hingað í vinnu, að því er fram kemur í skýrsl­unni.

Í þeim málum er vörð­uðu alvar­lega mis­neyt­ingu fólks frá ríkjum utan EES á árinu hafði atvinnu­rek­andi nán­ast und­an­tekn­ing­ar­laust beitt hót­unum um brott­vísun gagn­vart þolend­unum. Hótunum var beitt til þess að kúga og tryggja vald yfir ein­stak­ling­unum. Þolendur bjuggu því við þann ótta að leit­uðu þeir réttar síns myndu þeir missa atvinnu- og þar með dval­ar­leyfi sitt.

Ef horft er til alvar­legra mis­neyt­ing­ar­mála sem komu upp í vinnu­staða­eft­ir­liti, eða í kjöl­far þess, á síð­asta ári, eiga þau það lang­flest sam­eig­in­legt að starfs­fólk bjó í hús­næði á vegum atvinnu­rek­anda. Við­var­andi hús­næð­is­skortur hefur leitt til þess að atvinnu­rek­endur fara í auknum mæli með hlut­verk leigu­sala gagn­vart starfs­fólki sínu, segir í skýrsl­unni.

Skipt um lás þegar fólk skrapp frá

Reynsla stétt­ar­fé­lag­anna er sú að staða fólks sem riftir eða segir upp ráðn­ing­ar­sam­bandi eða er sagt upp getur hratt orðið mjög slæm ef það býr í hús­næði á vegum atvinnu­rek­anda. Ýmsar aðferðir eru not­aðar til að bola fólki úr hús­næði sem það á þó rétt á að dvelja í. Má meðal ann­ars nefna raun­veru­leg dæmi sem hafa ratað inn á borð ASÍ og stétt­ar­fé­lag­anna þar sem lík­am­legum og sál­rænum hót­unum hefur verið beitt til að tryggja að fólk fari þá þegar úr hús­næði, án lög­bund­ins upp­sagn­ar­frests. 

Í skýrsl­unni segir að dæmin séu því miður fleiri en ætla mætti „og má þar nefna starfs­fólk sem hefur verið borið út úr hús­næði meðan það skrapp frá um stund, kom að eigum sínum fyrir utan hús­næðið og búið að skipta um lás, starfs­fólk sem var skipað að fara úr hús­næð­inu meðan staðið var yfir því sökum þess að það leit­aði til stétt­ar­fé­lags síns svo og starfs­fólk sem hefur bein­línis haft áhyggjur af öryggi sínu og sofið með stól fyrir dyr­unum.“

Þá gangi atvinnu­rek­endur langt til þess að ganga á öll almenn rétt­indi starfs­fólks síns sem leigj­endur. „Í einu til­viki leigði hót­el­eig­andi starfs­fólki sínu hót­el­her­bergi eina nótt í senn til lengri tíma. Enginn leigu­samn­ingur var til staðar og atvinnu­rek­and­inn ætl­aði sér með þessu fyr­ir­komu­lagi að kom­ast hjá því að fylgja öllum skyldu­bundnum lág­marks­reglum húsa­leigu­laga,“ segir í skýrslu ASÍ sem má nálg­ast hér.

 





Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár