Að sigla næturlangt um lón í glerjuðum húsbát

Það er svo­lít­ill lúxus að sigla um Fjallsár­lón að næt­ur­lagi í bát sem gerir þeim sem kaupa stundum kleift að njóta þess að sjá norð­ur­ljósin, og það kostar sitt.

Glerjaður
Glerjaður Hús­bát­ur­inn sem næturæv­in­týrið fer fram. Mynd: Aðsend

Fyr­ir­tækið Fjallsár­lón hefur boðið upp á sigl­ingar í 11 ár á sam­nefndu lóni, Fjallsár­lóni á Breiða­merk­ur­sandi. Það er nú farið að bjóða upp á svo­kallað ævin­týri yfir nótt þar sem fólki gefst tæki­færi að halda til í svoköll­uðum hús­bátum, eða Aurora Huts, næt­ur­langt eftir að hafa siglt um á lón­inu.

Fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, Steinþór Arnarson, segir að tvö ár séu frá því að byrjað var með þessa þjón­ustu. Hún hafi gefið góða raun. Um er að ræða hug­mynd sem Finnar hafa notað tals­vert á sínum vötnum, sem og Svíar og Norðmenn, en þetta hefur ekki verið gert áður hér á landi. Bátarnir eru nýtísku­legir með gleri í lofti og helm­ingi húss­ins, sem býður upp á frá­bært útsýni sem til­valið er t.a.m. fyrir norð­ur­ljó­saupp­lifun.

„Fólk kemur í þessa ferð seinnipart dags, fer í sigl­ingu hjá okkur, borðar síðan kvöld­verð og fer svo yfir í þessa hús­báta. Við höfum verið að þróa þetta síð­ast­liðin tvö ár, en það er mikil ánægja hingað til með þetta og tals­verð aðsókn, þó aðeins meira frá erlendum ferða­mönnum. Þetta er svo­lít­ill lúxus og kostar sitt, en það er líka heil­mikið umstang í kringum þetta fyrir okkur. Það þarf að koma þessu í skjól þegar veður er vont og það er ekki hægt að hafa þetta á lón­inu allt árið heldur,“ segir Steinþór.

Allt til alls

Í þessum hús­bátum er allt til alls fyrir gesti, eld­hús, góð kynd­ing, net­sam­band, rúm og lítið sal­erni. Notað er etanól til að fram­leiða raf­magn auk þess sem sól­ar­sellur eru á bátnum, þannig að um er að ræða umhverf­is­vænan kost. Undir bátnum eru skíði og hægt er að draga þá út á frosið lónið þegar svo ber undir. Steinþór segir að þegar Fjallsár­lónið sé ófrosið þá fljóti bát­arnir á vatn­inu nálægt landi, þeir eru land­fastir og í góðu hvarfi þannig að veg­far­endur sem virða fyrir sér nátt­úru­feg­urð lóns­ins verða þeirra ekki varir. Fyr­ir­tækið hefur yfir að ráða þremur hús­bátum og er ákveð­inni fjar­lægð haldið á milli þeirra svo not­endur upp­lifi sig eina á svæð­inu. 

LóniðSteinþór Arnarson fram­kvæmda­stjóri að sigla slöngu­bát á Fjallslár­lón.

„En svo þegar lónið frýs þá er hægt að draga þetta út á ísinn, þegar hann er orð­inn nógu þykkur. Við höfum reyndar ekki þróað þá pæl­ingu mikið, við tókum þó að okkur eitt þannig verk­efni fyrir kúnna síð­ast­lið­inn vetur sem tókst mjög vel. En á vorin og haustin er ákveðið milli­bils­á­stand, þá hlýnar og frystir til skiptis og ísinn er því ekki nógu traustur, þess vegna er ekki hægt að hafa þessa starf­semi allt árið. Við erum að þróa þessa vetr­ar­starf­semi, það er aðeins hægt að hafa sigl­ing­arnar okkar á lón­inu í sex eða sjö mán­uði á ári, þannig að við erum að leita leiða til að hafa afþr­ey­ingu á lón­inu yfir vet­ur­inn,“ segir Steinþór fullur til­hlökk­unar varð­andi þessa hug­mynd. 

Yngra og minna þekkt

Fjallsár­lón er sem áður segir á Breiða­merk­ur­sandi, vestar en Jök­ulsár­lón og er um tíu mín­útna akstur á milli lón­anna. Fjallsár­lón er jök­ul­lón líkt og Jök­ulsár­lónið, það er yngra og minna þekkt, en nú þegar jöklar eru að hopa í meira mæli þá mynd­ast fleiri lón á þessum slóðum. Að sögn Stein­þórs er ferða­manna­þjón­ustan búin að ná sér að mestu leyti eftir heims­far­ald­ur­inn og segir hann að mjög mikið hafi verið að gera síð­ast­liðið sumar og er bjart­sýnn á fram­haldið. 

Á Breiða­merk­ur­sandiFjallsár­lón er aðeins vestar en Jök­ulsár­lón. Um tíu mín­útna akstur er á milli lón­anna.

„Það er mjög fjöl­breytt afþrey­ing í boði hérna á svæð­inu sem er jákvætt. Það eru sigl­ingar, jöklaklifur, íshellar og fleira, þetta trekkir að og er mikið betra að hafa þetta svona heldur en ef það væri bara eitt fyr­ir­tæki hérna, þá kæmi kannski eng­inn. Sam­keppnin er af hinu góða fyrir alla sem koma að svona starf­semi, engin spurn­ing, hún hjálpar,“ segir Steinþór að lokum.

Efnið er unnið í tengslum við vefritið ÚR VÖR.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár