Forstjóri Arctic Fish segir skoðun á kynþroska eldislaxa í slysasleppingu ólokið

Stein Ove Tveiten, for­stjóri Arctic Fish, getur ekki svarað spurn­ingum um hvort ljós­stýr­ing hafi verið notuð eða ekki í kví félags­ins í Pat­reks­firði. 3500 laxar sluppu úr kvínni í sumar og er grunur um að stór hluti þeirra hafi verið kyn­þroska vegna mis­taka við ljósa­stýr­ingu. Slíkt væri brot á rekstr­ar­leyfi Arctic Fish.

Forstjóri Arctic Fish segir skoðun á kynþroska eldislaxa í slysasleppingu ólokið
Ljósin í kví númer 8 Grunur er um að ljósa­stýr­ingu í kví núm er 8. í Kví­ind­is­dal í Pat­reks­firði hafi verið ábóta­vant. Myndin sýnir eld­is­stæði Arctic Fish í Pat­reks­firði og er upp úr starfs­leyfi Umhverf­is­stofn­unar.

Lax­eld­is­fyr­ir­tækið Arctic Fish vinnur að því að skoða hvað fór úrskeiðis í kvínni í Kvíg­ind­is­dal sem göt komu á í ágúst, meðal ann­ars hvort ljósa­stýr­ingu í kvínni hafi verið ábóta­vant. Þetta kemur fram í svörum frá Stein Ove Tveiten, for­stjóra Arctic Fish, til Heim­ild­ar­innar.

Blaðið greindi frá því í dag að Mat­væla­stofnun gruni að Arctic Fish hafi ekki notað ljósa­stýr­ingu í kvínni með réttum hætti áður en götin komu á hana og 3500 eld­is­laxar sluppu út. Fyrir vikið urðu fleiri af eld­is­löx­unum kyn­þroska en hefði átt að vera en þetta eykur lík­urnar á erfða­blöndun við villta, íslenska laxa. Laxar úr kvínni hafa synt upp í ár hér á landi í tals­verðum mæli og veiðst þar. 

„Rekstr­ar­leyf­is­hafi skal við eldi frjórra laxa not­ast við ljósa­stýr­ingu“
Úr rekstr­ar­leyfi MAST fyrir Arctic Fish

Óvissa með ljósastýringu

Heim­ildin spurði Arctic Fish tveggja spurn­inga um þetta atriði. Í svari sínu segir Stein Ove að hann geti ekki svarað spurn­ingum um ljósa­stýr­ing­una á þessu stigi þar sem málið sé í skoðun. „Við vinnum að því að skoða þau vanda­mál sem þú nefnir en höfum ekki ennþá lokið þeirri vinnu. Við munum þurfa að tjá okkur um þau síðar þegar við höfum grein­ar­betri mynd af stöð­unni.“

Samkvæmt þessu svari liggur ekki fyrir hvernig ljósa­stýr­ing­unni var háttað hjá Arctic Fish í í umræddum kvíum. Ef eld­is­lax­arnir hefðu ekki verið kyn­þroska má ætla að þeir hefðu ekki synt í eins miklum mæli upp í íslenskar ár og þeir hafa gert á liðnum vikum. Þetta þýðir að ef eld­is­lax­arnir hefðu ekki verið kyn­þroska þá hefði skað­inn af göt­unum og slysa­slepp­ing­unni ekki orðið eins mik­ill. Ljósa­stýr­ingin er því eins konar var­nagli til að lág­marka skað­ann ef til slysa­slepp­ingar kemur. 

Skilyrði um ljósastýringu í rekstrarleyfi

Í rekstr­ar­leyfi Arctic Fish í Pat­reks­firði sem Mat­væla­stofnun gefur út er skil­yrði um það að félagið verði að við­hafa ljósa­stýr­ingu í kvíum sínum. Nú liggur fyrir að þessu ákvæði rekstr­ar­leyf­is­ins var ekki fylgt í til­felli ann­arrar kvíar Arctic Fish í Pat­reks­firði en spurn­ingin er hvort því hafi heldur ekki verið fylgt í kvínni sem götin komu á - kví númer 8. í Kvíg­ind­is­dal. Ljósa­stýr­ingin á að koma í veg fyrir að lax­arnir verði kyn­þroska en með þessu er gerð var­rúð­ar­ráð­stöfun til að reyna að koma í veg fyrir erfða­blöndun við villta laxa­stofn­inn. 

Í rekstr­ar­leyf­inu segir orð­rétt um þetta: „Rekstr­ar­leyf­is­hafi skal við eldi frjórra laxa not­ast við ljósa­stýr­ingu þ.e. hafa kveikt ljós í kvíum meðan dags­birtu gætir ekki frá 20. sept­em­ber til 20 mars.“

90 cm eld­is­laxÞessi 90 cm eld­is­lax veidd­ist í Vatns­dalsá um miðjan sept­em­ber og er lík­lega úr kví Arctic Fish.

Í reglu­gerð um fisk­eldi kemur fram að Mat­væla­stofnun geti end­ur­skoðað eða aft­ur­kallað rekstr­ar­leyfi lax­eld­is­fyr­ir­tækja ef svo ber undir. Þar segir meðal ann­ars: „Mat­væla­stofnun skal end­ur­skoða rekstr­ar­leyfi a.m.k. einu sinni á gild­is­tíma þess, svo sem ef heim­ild til afnota af landi breyt­ist og/eða ef upp koma aðrar ástæður sem krefj­ast end­ur­skoð­unar.“

Mat­væla­stofnun getur einnig, ef svo ber undir vegna brota á ákvæðum rekstr­ar­leyfis, aft­ur­kallað leyfið en þá þarf lax­eld­is­fyr­ir­tækið að hætta rekstri á við­kom­andi svæði. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár