Eldislaxar verða „villtir“ við strok samkvæmt lögum

Um leið og eldislax sleppur úr kví hefur hann fengið sömu stöðu og villtir frændur hans gagnvart lögum. Hinn villti eldislax á sér því ekki skjól í dýra­velferðar­lögum og er nú skutlaður til dauða af svart­klæddum frosk­mönnum í vestfirskum ám. Félagar hans sem ekki náðu að strjúka verða hins vegar rotaðir og blóðgaðir svo þeir þjáist sem minnst við slátrun.

Leitin Norskir kafarar við leit að eldislaxi í Langadalsá við Ísajfarðardjúp. Myndböndin tók Sigurður Þorvaldsson, staðarhaldari við ána.

Lög um velferð dýra, þar sem m.a. er kveðið á um að dýr skuli laus við ótta og þjáningu og að þau skuli aflífuð með skjótum og sársauka­lausum hætti, eiga ekki við um veiðar á eldislaxi sem nú eru hafnar í ám á Vestfjörðum.

Um 3.500 laxar sluppu nýverið úr kvíum fyrir­tækisins Arctic Fish í Patreks­firði og hafa gengið upp í ár á Vestfjörðum og víðar. Kafarar vopnaðir skutul­byssum á vegum fiskeldis­fyrir­tækisins fara nú um árnar og reyna að veiða þá. Tilgangurinn er að reyna að lágmarka það tjón sem flótti laxa um gat á kvínni getur valdið á lífríkinu.

Aðferðir þessar hafa vakið nokkra athygli, ekki síst í ljósi þess að skutul­byssur, reyndar hlaðnar sprengi­efni, hafa verið mikið til umræðu vegna harðrar gagnrýni á hval­veiðar. Í því sambandi hefur verið vísað til dýra­velferðar­laga og fagráð um velferð dýra m.a. sagt að veiðar á hval með þeim aðferðum sem beitt er geti ekki samrýmst lögunum.

Frosk­mennKaf­ar­arnir norsku við störf í Langa­dalsá í Ísa­fjarð­ar­djúpi í vik­unni.

Því leitaði Heimildin til Matvæla­stofnunar, sem hefur eftirlit með því að farið sé að lögum um dýra­velferð, og spurði: Samrýmast veiðar frosk­manna á eldis­löxum í ám, þar sem dýrin eru drepin með skutli, ákvæðum dýra­velferðar­laga?

„MAST hefur í sjálfu sér aðeins eftirlit með eldis­fiski og seiðum sem eru í ræktun á meðan þau eru í varðhaldi, ef svo má að orði komast,“ segir Karl Steinar Óskarsson, deildar­stjóri fiskeldis hjá MAST. Á hann þar við að eftirlit MAST nái til þess tíma þegar fiskar og seiði eru í kerjum eða kvíum. Þegar kemur að veiðum í ám er eftir­litið hins vegar komið á borð annarrar stofn­unnar, Fiskistofu.

Dýravelferðarlög undanskilja villtan fisk

Hins vegar, bendir Karl Steinar á, kemur fram í 2. grein laga um velferð dýra að þau taki ekki til hefð­bundinna veiða og föngunar á villtum fiski. „Þannig að dýra­velferðar­lögin ná ekki yfir það hvernig fiskur er veiddur. Hvort sem þeir eru skutlaðir, veiddir með krók eða með flottroll eða hvernig sem er.“

En hann er ekki villtur, er það, eldis­laxinn sem slapp?

„Um leið og hann er kominn út úr kvíunum og farinn upp í árnar þá er komið fram við hann eins og villtan fisk,“ svarar Karl Steinar. „Þá er hann kominn út úr lögsögu MAST og yfir í lögsögu Fiskistofu sem svo skipuleggur þessar veiðar.“

Á kafiKaf­ar­arnir eru vopn­aðir skut­ul­byssum við veið­arnar á eld­is­lax­inum á ánum.

Karl Steinar segir að spurningar um velferð fiska rétt eins og annarra dýra eigi vissulega rétt á sér. Sambærileg stofnun MAST í Noregi hafi t.d. skilgreint aðferð laxveiði­manna sem kallast „veiða-sleppa“ sem dýraníð. „Við erum ekki komin þangað en þessi aðferð að skutla eldislaxa í ám viðgengst í Noregi við sambærilegar aðstæður og upp eru komnar hér.“

Kafararnir verktakar Fiskistofu

Aðkoma norskra kafara er eitt af nokkrum úrræðum sem gripið hefur verið til vegna þess að eldis­laxar hafa fundist í íslenskum ám, segir Guðni Magnús Eiríksson, sviðs­stjóri lax- og silungsveiðisviðs Fiskistofu. Hann segir kafarana verktaka hjá stofnuninni, hún kosti aðgerðirnar en mun fara fram á það við Arctic Fish að þeir endur­greiði kostnaðinn, líkt og kveðið er á um í lögum um fiskeldi.

Guðni segir aðgerðirnar unnar í samráði við hagsmuna­aðila, þ.e. Lands­samband veiði­félaga og viðkomandi veiði­félög. Sérfræðingur frá Fiskistofu fylgist með veiðunum og taki þátt í aðgerðinni, m.a. með því að koma sýnum til Hafrannsókna­stofnunar. „Stjórn og útfærsla aðgerða er í höndum Fiskistofu,“ ítrekar hann. „Eldis­fyrirtækin hafa verið upplýst um gang mála, en hafa að öðru leiti ekki aðkomu að aðgerðinni.“

Spurður út í aðferðir við veiðarnar og þau veiðar­færi sem eru notuð segir hann að Fiskistofa geti mælt fyrir um að óhefðbundnar aðferðir vegna veiða í rannsóknar­skyni og stofnunni beri skylda til að mæla fyrir um að leitað sé að eldis­fiskum og þeir fjar­lægðir úr ám.

„Þarna koma vel í ljós skilin á milli villtra dýra og dýra í haldi manna gagn­vart lögum og reglum.“
Karl Steinar Ósk­ars­son,
deild­ar­stjóri fisk­eldis hjá MAST.

Strangar reglur gilda um aflífun úr kvíum

En félagar stroku­laxanna sem ekki tókst að flýja út um gat kvíarinnar í Patreks­firði heyra undir „lögsögu“ MAST og strangar reglur gilda um slátrun þeirra, reglur sem eru samræmdar innan Evrópu. Lax úr kví er rotaður strax og hann er tekinn úr vatni og er í kjölfarið blóðgaður. Þær reglur eru settar með velferð dýranna að leiðar­ljósi.

„Þarna koma vel í ljós skilin á milli villtra dýra og dýra í haldi manna gagnvart lögum og reglum,“ segir Karl. Þegar eldisdýr sleppi út í náttúruna breytist skilgreining veiða á þeim í augum laganna, að minnsta kosti þegar um fiska er að ræða. „Það getur vel verið að það ætti að skoða það eitthvað sérstak­lega en þessi aðferð sem verið er að beita við veiðarnar á eldis­löxunum er mjög áhrifarík. Það er mjög mikilvægt að ná þeim upp úr ánum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár