Listahringvegurinn

Hér má sjá nokkra hápunkta lands­byggð­ar­lista­lífs­ins.

Jakob Veigar / Listasafn Árnesinga

Hvað er heims­borg­ara­legra en að fara til Hvera­gerðis til að fræð­ast um Íran frá hver­gerðskum lista­manni búsettum í Vín? Megi hönd þín vera heil er saga af ferða­lagi til Írans, af lista­manni sem elti ást­ina á milli heims­álfa á tímum heims­far­ald­urs.

Almar í tjaldinu / Svavarssafn á Hornafirði

Almar í kass­anum er núna kom­inn í tjald og hefur opnað sýn­ingu á Horna­firði með lands­lags­myndum sem hann mál­aði meðan á tjald­d­völ­inni stóð, á sama stað og Ásgrímur Jónsson mál­aði fyrir 111 árum síðan, en Ásgrímur varð hálf­gerður guð­faðir horn­firskra list­mál­ara í kjöl­farið.

Pólskar kvikmyndir / Valhöll á Eskifirði

Það verða pólskir kvik­mynda­dagar á Eski­firði um helg­ina, þar sem börnin geta horft á pólskar teikni­myndir á meðan myndin Hættu­legir herra­menn verður í boði fyrir bók- og bíó­hneigða full­orðna, en myndin fjallar um sjálfan Joseph Conrad og þrjá skáld­bræður hans, sem vakna eftir svaka­legt fyllirí með dauðan mann á sóf­anum sem þeir vita ekk­ert um.

Laust mál / Skaftfell, Seyðisfirði

Þau eru ófá ljóð­skáldin sem stunda líka mynd­list – og öfugt – og á þessum mörkum er sýn­ingin stað­sett, inn­blást­ur­inn er ljóð­list og snertifletir hennar við mynd­list, hvort sem er bók­verk, mynd­ljóð, skúlp­t­úrar eða annað. Ásta Fanney, Roni Horn, Ragnar Helgi, Óskar Árni, Kristín Ómars og Birgir Andr­és­son eru meðal þeirra lista­manna sem koma við sögu.

Hringfarar / Listasafnið á Akureyri

Fjórir lista­menn með ólíka sýn vinna hér út frá nátt­úru­legum ferlum og nota efni­við úr nærum­hverf­inu, hluti sem geyma minn­ingar og sögu og rauðrófu­hýði í vatni sem myndað hefur rauðan lit og papp­írs­örk á glugga sem rak­inn hefur teiknað á.

Yoav Goldwein / Safnahúsið Ísafirði

Er heim­ilið skjól eða fang­elsi – eða kannski bæði? Þessum spurn­ingum veltir ísra­elski ljós­mynd­ar­inn og heim­spek­ing­ur­inn Yoav Goldwein fyrir sér og þá verður hann einnig með lista­smiðju þar sem hann sýnir hvernig kafa má í eigin per­sónu­legu lífs­sögu í gegnum mis­mun­andi listir.

Guð leitar að Salóme / Landnámssetrið Borgarnesi

Skáldsagan Guð leitar að Salóme kom út árið 2021 og nú gæti Guð vænt­an­lega fundið hana Salóme í Borg­ar­nesi, þar sem Júlía Margrét Ein­ars­dóttir stígur á svið og end­ur­segir þessa skáld­sögu sína fyrir gesti og kynnir þá fyrir spá­konu í blokkar­í­búð, drykk­felldum org­anista, ráð­villtum aft­ur­göngum og for­boðnum kvenna­ástum.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár