Sendiherrastaða á Íslandi fléttast inn í hneyksli hjá pólsku ríkisstjórninni

Utan­rík­is­ráð­herra Póllands mun hafa sett for­seta lands­ins úrslita­kosti þegar hann reyndi að þvinga fram skipan ákveð­ins manns sem næsta sendi­herra Póllands á Íslandi. Sá var aðstoð­ar­maður ráðu­neyt­is­stjóra en reis hratt til met­orða, og er nú tengdur inn í umræðu um meint spill­ing­ar­mál sem snýst um að fólk utan Evr­ópu­sam­bands­ins hafi getað borgað fyrir vega­bréfs­á­ritun inn í landið. Málið kemur sér illa fyrir flokk­inn sem fer fyrir rík­is­stjórn Póllands nú þegar fimm vikur eru í kosn­ingar.

Piotr Wawrzy, fyrrverandi ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytis Póllands, vildi fá hinn 32 ára gamla Jakub Osajda, fyrrverandi aðstoðarmann sinn, sem næsta sendiherra Póllands á Íslandi. Ekki er hins vegar vitað til þess að núverandi sendiherra Póllands hér á landi sé á förum.
Piotr Wawrzy, fyrr­ver­andi ráðu­neyt­is­stjóri dóms­mála­ráðu­neytis Póllands, vildi fá hinn 32 ára gamla Jakub Osajda, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­mann sinn, sem næsta sendi­herra Póllands á Íslandi. Ekki er hins vegar vitað til þess að núver­andi sendi­herra Póllands hér á landi sé á förum. Mynd: Heimildin / Tómas

Ráðu­neyt­is­stjóri utan­rík­is­ráðu­neytis Póllands, Piotr Wawrzy, var rek­inn á dög­unum í kjöl­far rann­sóknar á meintri spill­ingu þegar kemur að útgáfu vega­bréfs­á­rit­ana fyrir íbúa utan Evr­ópu­sam­bands­ins, sér í lagi frá Asíu en einnig Mið-Aust­ur­löndum og Afríku. 

Grunur leikur á að allt að fjögur hund­ruð þús­und íbúa utan Evr­ópu­sam­bands­ins hafi á síð­ustu þremur árum fengið vega­bréfs­á­ritun inn í Pólland eftir að hafa greitt sem nemur and­virði um 700 þús­undum íslenskra króna til að fá vega­bréfs­á­ritun. Þeir sem komu frá löndum á borð við Pakistan, Bangla­desh og Úsbekistan kunna að hafa þurft að borga enn meir.

Hugmynd að næsta sendiherra á Íslandi

Wawrzyk hafði á sínu borði umsjón með raf­rænu kerfi þar sem hægt var að sækja um vega­bréfs­á­ritun til Póllands en í gegn um það var að sögn hægt að borga sig fram fyrir röð­ina með áður­nefndum hætti. Fram­kvæmd­inni á þessu ferli var útvi­stað til fyr­ir­tækja sem talin eru hafa selt vega­bréfs­á­rit­anir. 

Einn nán­asti sam­starfs­maður Wawrzyk, hinn 32 ára gamli Jakub Osajda, tengd­ist einnig gerð kerf­is­ins sem hélt utan um umsókn­irnar. 

Pólskir miðlar greina frá því að í mars á þessu ári hafi utan­rík­is­ráð­herra Póllands, Zbigniew Rau, að und­ir­lagi Wawrzyk, þrýst á að Osajda yrði gerður að sendi­herra á Íslandi. Ekkert er fjallað um ástæður þess að skipa ætti hann sendi­herra á Íslandi frekar en ann­ars staðar.

Ekki náð­ist tal af Gerard Pokruszyński, núver­andi sendi­herra Póllands á Íslandi, við vinnslu frétt­ar­innar en ekki er vitað til þess að hann sé á förum. 

Reis hratt til metorða þrátt fyrir reynsluleysi

Hug­myndum um Osajda sem næsta sendi­herra var ekki vel tekið hjá for­seta­emb­ætt­inu þar sem Osajda hefði ekki til að bera þá reynslu sem þyrfti til að taka við sem sendi­herra. Sama var uppi á ten­ingnum hjá for­sæt­is­ráð­herra. Þeir Wawrzyk og Rau héldu þrýst­ingnum þó áfram mán­uðum saman. 

Það er stjórn­mála­flokk­ur­inn Lög og rétt­læti (PiS) sem fer fyrir núver­andi rík­is­stjórn Póllands, og honum til­heyra allir þessir menn; líka for­set­inn Andrzej Duda.

Osajda reis hratt til met­orða þar sem hann starf­aði við hlið Wawrzyk í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu og fór á skömmum tíma frá því að vera aðstoð­ar­maður ráðu­neyt­is­stjór­ans yfir í að verða yfir­maður skrif­stofu utan­rík­is­þjón­ust­unnar. Sú stöðu­hækkun olli mörgum undrun vegna reynslu­leysis Osajda.

Gazeta fjallar um hót­anir utan­rík­is­ráð­herra í garð for­set­ans vegna skip­unar sendi­herra Póllands á Íslandi

Hafði í hótunum við forsetann

Samkvæmt umfjöllun pólska mið­ils­ins Gazeta hafði Rau utan­rík­is­ráð­herra í hót­unum við Duda for­seta um að ef sendi­herra­skipan Osajda yrði ekki sam­þykkt þá yrðu ekki fleiri sendi­herrar skip­aðir í bráð. Í Póllandi, líkt og á Íslandi, er það í höndum utan­rík­is­ráð­herra að skipa sendi­herra en skip­anir gjarnan bornar undir aðra ráða­menn í flokki ráð­herr­ans. 

Gazeta greinir frá því að Rau hefi treyst mjög á Wawrzyk enda stjórn­aði hann ráðu­neyt­inu ekki einn. Saman hafi þeir síðan sett skip­anir í sendi­herra­stöður á frost í minnst tvo mán­uði, til að mynda í Kína, Brasilíu og Indlandi, til að reyna að þvinga fram skipan Osajda. Það hafi síðan verið í maí­mán­uði sem þeir gáfu eftir. 

Fimm vikur í kosningar

Næstu þing­kosn­ingar í Póllandi fara fram þann 15. októ­ber, eftir aðeins fimm vikur. Þessar ásak­anir um spill­ingu, og sér í lagi spill­ingu þegar kemur að flæði fólks utan Evr­ópu­sam­bands­ins inn í Pólland, koma því á við­kvæmum tíma fyrir Lög og rétt­læti.

Þetta er hægri sinn­aður íhalds­flokkur sem hefur lagt mikla áherslu á að stoppa flæði útlend­inga inn í landið. Flokk­ur­inn hefur til að mynda viðrað þá hug­mynd að halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, sam­hliða þing­kosn­ing­unum, um fólks­flutn­inga inn í Pólland. 

Samkvæmt pólskum fjöl­miðlum eru ein­hverjar hug­myndir uppi um að flokk­ur­inn hafi fórnað Wawrzyk til að halda and­liti í kosn­inga­bar­átt­unni en þess er víða kraf­ist að Rau utan­rík­is­ráð­herra víki einnig.

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár