Reykjavík tapar áfram peningum og selur Perluna

Perlan, eitt helsta kenni­leiti Reykja­vík­ur­borgar, er komin í sölu­ferli. Borg­ar­ráð sam­þykkti þetta á fundi sínum í morgun. Fjár­hags­staða Reykja­vík­ur­borgar, hefur farið versn­andi á síð­ustu árum. A-hluti hennar, sá hluti rekst­urs hennar sem rek­inn er fyrir skattfé, var rekin með 921 milljón króna halla á fyrstu sex mán­uðum árs­ins.

Fasteignamat Perlunnar er tæpir 4 milljarðar.
Fast­eigna­mat Perlunnar er tæpir 4 millj­arðar. Mynd: Reykjavíkurborg

Borg­ar­ráð sam­þykkti á fundi sínum í morgun að heim­ila fjár­mála- og áhættu­stýr­ing­ar­sviði, eigna­skrif­stofu, að hefja sölu­ferli á eign Reykja­vík­ur­borgar Perlunni auk tveggja vatns­tanka í Öskju­hlíð við Varma­hlíð 1.

Hita­veita Reykja­víkur byggði Perluna og var hún opnuð árið 1991. Reykja­vík­ur­borg keypti Perluna árið 2013 og síðar tvo vatns­tanka af Orku­veitu Reykja­víkur. Á þeim tíma sem kaupin fóru fram stóð rekstur húss­ins ekki undir sér og tekjur rétt nægj­an­legar fyrir fast­eigna­gjöldum og lóð­ar­leigu. Stærð húss­ins og tanka er um 5.800 fer­metrar og er fast­eigna­mat 3.942.440.000 krónur.

Yfir 900 milljóna halli 

Fjár­hags­staða Reykja­vík­ur­borgar, líkt og margra ann­arra sveit­ar­fé­laga, hefur farið versn­andi á síð­ustu árum. A-hluti hennar, sá hluti rekst­urs hennar sem rek­inn er fyrir skattfé, var rek­inn með 921 milljón króna halla á fyrstu sex mán­uðum árs­ins sam­kvæmt til­kynn­ingu sem birt var í Kauphöll Íslands í dag.

Það er umtals­vert lak­ari rekstr­ar­nið­ur­staða en áætl­anir höfðu gert ráð fyrir, en þær höfðu reiknað með afgangi upp á 857 millj­ónir króna. Nið­ur­staðan var því 1,8 millj­örðum krónum lak­ari en gert var ráð fyrir.

Verðbólgan hefur áhrif

Í til­kynn­ing­unni segir að skatt­tekjur, ásamt öðrum tekjum, hafi verið 4,5 millj­örðum króna yfir áætlun. Frávik í rekstr­ar­gjöldum voru hins vegar 5,1 millj­arði króna yfir áætlun, þar af var frá­vik í rekstri skóla- og frí­stunda­sviðs 2,3 millj­arður króna og breyt­ing líf­eyr­is­skuld­bind­ingar einn millj­arður króna. Fjár­magns­kostn­aður var 1,1 millj­arði króna yfir áætlun einkum vegna hærri verð­bólgu en gert var ráð fyrir.

Veltufé frá rekstri var hins vegar jákvætt um 6,8 millj­arða króna sem var um 931 milljón krónum betra en áætlað var á tíma­bil­inu.

12,8 milljarða króna skekkja


Hinn hlut­inn í rekstri borg­ar­innar, B-hlut­inn, nær yfir afkomu þeirra fyr­ir­tækja sem borgin á að öllu leyti eða að hluta. Fyr­ir­tækin sem telj­ast til B-hlut­ans eru Orku­veita Reykja­víkur, Faxa­flóa­hafnir sf., Félags­bú­staðir hf., Íþrótta- og sýn­inga­höllin hf., Mal­bik­un­ar­stöðin Höfði hf., Slökkvi­lið höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Þjóð­ar­leik­vangs ehf.

Rekstr­ar­nið­ur­staða sam­an­tek­ins árs­hluta­reikn­ings Reykja­vík­ur­borgar, A- og B-hluta, var hins vegar nei­kvæð um 6,7 millj­arða króna sem er 12,8 millj­örðum krónum verri nið­ur­staða en áætlun gerði ráð fyrir. Í til­kynn­ing­unni segir að helstu frá­vikin séu fjár­magnsliðir sem hafi verið níu millj­örðum krónum hærri en reiknað var með. „Skýrist það af hærri verð­bólgu á tíma­bil­inu en áætlun gerði ráð fyrir, lækk­unar álverðs og minni mats­breyt­inga fjár­fest­inga­eigna Félags­bú­staða.“

Rekstr­ar­nið­ur­staða A- og B-hluta fyrir afskriftir og fjár­magnsliði (EBITDA), skil­aði 23,1 millj­arði króna í afgang sem var um tveimur millj­örðum króna undir áætlun, en um fjórum millj­örðum króna betri nið­ur­staða en á fyrsta árs­hluta árs­ins 2022.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár