Lykilmaður í samráði víkur ekki úr stjórn lífeyrissjóðs

Fyrr­ver­andi for­stjóri Samskipa, Pálmar Óli Magn­ús­son, sem lýst er sem arki­tekt og lyk­il­manni í sam­ráðs­brotum fyr­ir­tæk­is­ins í úrskurði Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, ætlar ekki að víkja úr stjórn­ar­for­manns­stóli eins stærsta líf­eyr­is­sjóðs lands­ins. Hann var skip­aður í stjórn nokkrum dögum áður en hann var yfir­heyrður vegna gruns um lög­brotin. SA með skipan hans til skoð­unar.

Lykilmaður í samráði víkur ekki úr stjórn lífeyrissjóðs
Pálmar Óli Magn­ús­son fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri milli­landa­sviðs Samskipa og seinna for­stjóri Samskipa. Hér í Kast­ljósi árið 2014, þar sem hann kvaðst ekk­ert skilja í því hvers vegna Samskip sættu grun um brot á sam­keppn­is­lögum. Fjórum árum seinna var hann kærður til Hér­aðs­sak­sókn­ara fyrir að hafa verið arki­tekt og lyk­il­maður í ólög­legu sam­ráði. Um svipað leyti völdu Samtök Atvinnu­lífs­ins hann sem full­trúa sinn í stjórn eins stærsta líf­eyr­is­sjóðs lands­ins. Mynd: Heimildin Tómas

Pálmar Óli Magn­ús­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Samskipa, sem sagður er lyk­il­maður í ólög­legu sam­ráði skipa­fé­lag­anna, er stjórn­ar­for­maður eins stærsta líf­eyr­is­sjóðs lands­ins, Birtu. Þar situr hann í umboði Samtaka atvinnu­lífs­ins. Pálmar er einn fjög­urra ein­stak­linga með rétt­ar­stöðu grun­aðra í rann­sókn Hér­aðs­sak­sókn­ara á sam­keppn­is­brotum og var yfir­heyrður um þau árið 2018.

Formaður Raf­iðn­að­ar­sam­bands­ins, hvers félags­menn eru stór hluti sjóðs­fé­laga í Birtu, segir að lýs­ingar á lög­brotum fyr­ir­tækj­anna og hlut Pálmars í þeim séu alvar­legar. Það hljóti að kalla á við­brögð. Sjálfur segir Pálmar málið engin áhrif hafa á hæfi sitt til að stýra líf­eyr­is­sjóðnum. Fjár­mála­eft­ir­litið hafi talið hann hæfan til að gegna stöð­unni, þrátt fyrir að sæta rann­sókn.

„Pálmars-stúdían“ samráðsplan

Samkvæmt skýrslu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins var Pálmar Óli lyk­il­leik­andi í því ólög­lega sam­ráði Samskipa og Eimskips, sem varð til þess að met­sekt var lögð á Samskip í síð­ustu viku, 4,2 millj­arðar króna. Hann er sagður hafa skrifað undir samn­inga við Eimskip, sem …

Kjósa
39
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samráð skipafélaga

FréttirSamráð skipafélaga

Sam­fé­lags­legt tjón af sam­ráði skipa­fé­lag­anna metið á 62 millj­arða

Kostn­aður íslensks sam­fé­lags vegna ólög­legs sam­ráðs Eimskips og Samskipa er met­inn 62 millj­arðar króna í nýrri grein­ingu Analytica. Stærstur hlut­inn er sagður hafa lent á neyt­endum vegna hærri kostn­aðar á inn­fluttum vörum og þeim sem skulda verð­tryggð lán. „Dýrkeypt og hrika­leg aðför að neyt­endum,“ segir for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna.
FréttirSamráð skipafélaga

Mútur og sam­ráð í skipa­flutn­ingi með dag­blaða­pappír

Samskip er sagt hafa greitt kanadískum miðl­ara mútur gegn því að dag­blaða­pappír fyrir íslensk fyr­ir­tæki væri fluttur með Sam­skipum. Þetta kemur fram í skýrslu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um sam­ráð skipa­fé­lag­anna þar sem rakið er hvernig greiðsl­unum var haldið leyndum fyrir inn­flytj­endum hér á landi. Samskip og miðl­ar­inn neita.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár