Íslenskri herferð beint að fólki með kynferðislegan áhuga á börnum

Nýrri vit­und­ar­vakn­ingu Neyð­ar­lín­unnar, rík­is­lög­reglu­stjóra og þjón­ust­unnar Taktu skrefið er beint að full­orðnu fólki sem hefur áhuga á kyn­ferð­is­legu efni af börnum. „Hefur þú eitt­hvað að ótt­ast?“ er spurt í aug­lýs­ingu sem er hluti af átak­inu. Sál­fræð­ingur hjá Taktu skrefið hvetur fólk með þessar hvatir til að leita sér aðstoðar áður en það er of seint. Frá 2021 hafa um 60 manns leitað sér þar með­ferðar.

Handtekinn
Hand­tek­inn Úr leik­inni aug­lýs­ingu vegna vit­und­ar­vakn­ing­ar­innar sem er beint til full­orð­inna sem hafa áhuga á kyn­ferð­is­legu efni af börnum. Mynd: Skjáskot

„Hefur þú eitt­hvað að ótt­ast? Ef þú ert að skoða kyn­ferð­is­legt myndefni af barni, þá hefur þú ástæðu til. En það er ekki of seint að breyta hegð­un­inni. En til þess þarftu að taka skrefið og leita þér aðstoðar. Breyttu rétt.“ 

Þetta segir í nýrri aug­lýs­ingu sem er beint að full­orðnum sem hafa áhuga á kyn­ferð­is­legu efni af börnum og er hluti af vit­und­ar­vakn­ingu Neyð­ar­lín­unnar, rík­is­lög­reglu­stjóra og þjón­ust­unnar Taktu skrefið þar sem starfar hópur sál­fræð­inga með sér­þekk­ingu á þessu sviði. 

„Kyn­ferð­is­legt efni sem sýnir börn er barn­a­níðs­efni.  Þannig efni er ólög­legt að skoða, eiga eða senda,“ segir einnig í aug­lýs­ing­unni, sem sjá má hér.

i

Boð­skapur vit­und­ar­vakn­ing­ar­inar er að full­orðið fólk sem hefur áhuga á kyn­ferð­is­legu efni af börnum sé á villi­götum og mik­il­vægt að það láti af þeirri skað­legu hegðun.  Ráði við­kom­andi ekki við að gera það sjálft er hægt að fá aðstoð til að breyta hegðun sinni hjá Taktu skrefið.

Skila­boð­unum er beint sér­stak­lega til karl­manna á aldr­inum 18 til 45 ára. Samkvæmt inn­lendri og erlendri töl­fræði er það sá hópur sem fremur flest kyn­ferð­is­brot.

Þetta er í fyrsta sinn sem farið er í við­líka vit­und­ar­vakn­ingu hér á landi. Í tengslum við hana verða birtar fleiri aug­lýs­ingar, inn­blásnar af her­ferðum Stop it now og Lucy Fait­h­full Foundation á Bret­landi.  Mark­miðið er að fá þá sem kunna að fremja slík brot til að velta fyrir sér hverjar afleið­ing­arnar gætu orðið fyrir þá sjálfa.

Skila­boð­unum er beint  sér­stak­lega til karl­manna á aldr­inum 18 til 45 ára. Samkvæmt inn­lendri og erlendri töl­fræði er það sá hópur sem fremur flest kyn­ferð­is­brot. Þannig voru 67% grun­aðra í málum til­kynntum til lög­reglu fyrstu sex mán­uði árs­ins 2023 á þessum aldri og þar af rúm­lega 93% karlar.

Um sextíu manns leitað sér hjálpar

Jóhanna Dag­bjarts­dóttir, sál­fræð­ingur hjá Taktu skrefið, segir þau hafa aðstoðað fjöl­breyttan hóp ein­stak­linga frá því þjón­ustan var sett á lagg­irnar árið 2021. Flestir komi að eigin frum­kvæði en einnig séu dæmi um að lög­regla eða dóm­stólar beini fólki til þeirra. Þá eru þau í sam­starfi við lög­reglu og heil­brigð­is­ráðu­neytið varð­andi eft­ir­fylgni eftir skýrslu­tökur en á grund­velli þess sam­starfs getur fólk komið beint í frítt við­tal hjá þeim eftir að lög­regla tekur af því skýrslu. 

„Þetta er hugsað sem aðstoð fyrir fólk sem hefur áhyggjur af kyn­ferð­is­legri hegðun eða kyn­ferð­is­legum hugs­unum sem það vill fá aðstoð vegna. Þetta er allt frá því að vera fólk sem hefur ein­hvern tíman farið yfir mörk yfir í fólk sem er búið að brjóta af sér og sætir lög­reglu­rann­sókn, og er jafn­vel með barna­girnd,“ segir hún.  

Þjónusta Taktu skrefið er styrkt af félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­inu og heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu. Fyrsta við­tal kostar þrjú þús­und krónur. Jóhanna segir að frá upp­hafi hafi um sex­tíu manns leitað sér þar með­ferðar. Á síð­asta ári voru það fjöru­tíu karl­menn og ein kona.

Ekki lengur bara talað til foreldra og barna

Jóhanna segir fólki erfitt að horfast í augu við þessar hvatnir sínar og jafn­vel brot. „Það er mjög erfitt og því fylgir mik­ill kvíði og mikil skömm,“ segir hún. Mjög mis­mun­andi er hvort það hefur opnað á þetta við aðra áður en fólk kemur í fyrsta við­talið. „Sumir hafa ekki þorað að nefna þetta við eina ein­ustu mann­eskju. Ein­hverjir hafa farið annað þar sem hefur verið bent á okkur, til að mynda hjá sál­fræð­ingum eða stofn­unum.“

„Sumir hafa ekki þorað að nefna þetta við eina ein­ustu mann­eskju“

Hún segir vit­und­ar­vakn­ingu sem þessa skipta gríð­ar­legu máli. „Það er hægt að draga fram hegð­un­ar­breyt­ingu, breyt­ingu hjá þeim sem er að gera þetta, skoða svona efni og eiga í sam­skiptum við börn sem eru af kyn­ferð­is­legum toga. Það er á ábyrgð þeirra að fá aðstoð og breyta hegðun sinni. Núna er áherslan á að tala beint til þeirra en ekki bara til for­eldra eða til barna um að þau eigi ekki að tala við ókunn­uga. Við erum að beina þessu til þeirra sem geta breytt hegðun sinni. Það er hægt að breyta hegðun sinni og hætta þessu. Þó það væri ekki nema einn sem hættir í kjöl­farið að skoða svona efni og hættir að setja sig í sam­band við börn þá er árangri náð,“ segir Jóhanna.  

En þetta sé sann­ar­lega ekki auð­velt og fólk sem hefur mikið verið að nota barn­a­níðs­efni á mjög erfitt með að sjá að það geti hætt því. „Oft er hugs­unin sú að það sé ekki hægt að fá aðstoð en það er hægt og það geta allir haft stjórn á hegðun sinni og breytt henni. Sumir eru fastir í víta­hring ákveð­innar hegð­unar, jafn­vel fíknar ef fólk er í grunn­inn með klám­fíkn. Þetta getur verið sam­spil margra þátta og það þarf að skoða hvað liggur að baki og vinna með það,“ segir hún. 

Hægt að búa sér til innihaldsríkt líf

Þeir sem hafa kyn­ferð­is­legar lang­anir til barna eða hafa hrein­lega níðst á börnum er lík­lega for­dæmd­asti hópur sam­fé­lags­ins. Geta þessir ein­stak­lingar náð sátt við sjálfan sig?

„Það getur verið mjög erfitt. Þetta er for­dæmd­asti hóp­ur­inn af ástæðu. Þetta er hræði­legt, hræði­leg­ustu brot sem maður veit um og það er ekki endi­lega þannig að það sé hægt að ná sátt við að hafa brotið á barni, og kannski ekki heldur ætl­ast til þess. Það sem samt sem áður hægt að búa sér til líf sem getur verið inni­halds­ríkt og með góðan til­gang, bæta fyrir brot sín, taka ábyrgð, vinna með afleið­ing­arnar. Allt er þetta hluti af því að ná ein­hvers konar sátt.“ 

„Það er ekki endi­lega þannig að það sé hægt að ná sátt við að hafa brotið á barni, og kannski ekki heldur ætl­ast til þess. Það sem samt sem áður hægt að búa sér til líf sem getur verið inni­halds­ríkt“

Þá segir hún ein­stak­lings­bundið hversu langa með­ferð ein­stak­lingar með þessar hvatir þurfi. „Það er allur gangur á því og fer eftir eðli mál­anna. Sumum vill maður ekki sleppa strax og þeir þurfa jafn­vel stuðn­ing í mörg ár þó aktív með­ferð sé kannski sex við­töl og svo áfram­hald­andi stuðn­ingur. Þetta er mjög mis­mun­andi,“ segir hún.  

Á vefnum taktu­skrefid.is er hægt að panta tíma, nálg­ast ýmiss konar fræðslu­efni, sjálfs­próf og æfingar fyrir fólk sem heldur að það hafi mögu­lega beitt ein­hvern kyn­ferð­is­legu ofbeldi, hefur áhyggjur af kyn­ferð­is­legri hegðun sinni á net­inu eða gagn­vart öðru fólki, eða að aðrir hafa áhyggur af kyn­ferð­is­legri hegðun við­kom­andi og fólk vill fá hjálp. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár