Eigendur Aton JL kaupa Gallup

Þrír eig­endur sam­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins Aton JL auk ráð­gjafans Valdi­mars Hall­dórs­sonar hafa stofnað fyr­ir­tækið Ham­ars­hyl utan um kaup á Gallup á Íslandi. Gallup á Íslandi er dótt­ur­fyr­ir­tæki Já og mun Ham­ars­hylur kaupa allt hlutafé þess af Já. Þegar kaupin hafa gengið í gegn verður Gallup á Íslandi rekið sem sjálf­stætt rann­sókn­ar­fyr­ir­tæki.

Huginn Freyr Þorsteinsson, einn eigenda Aton JL, er meðal þeirra sem standa að kaupunum á Gallup.
Huginn Freyr Þor­steins­son, einn eig­enda Aton JL, er meðal þeirra sem standa að kaup­unum á Gallup. Mynd: Aton JL

Þrír eig­endur sam­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins Aton JL, þeir Huginn Freyr Þor­steins­son, Agnar Lemack og Ingvar Sverr­is­son, auk Valdi­mars Hall­dórs­sonar sem situr til að mynda í stjórnum Orku­veitu Húsa­víkur og Frí­hafn­ar­innar, hafa stofnað fyr­ir­tækið Ham­ars­hyl utan um kaup á Gallup á Íslandi. 

Gallup sér meðal ann­ars um að safna hvers kyns gögnum úr sam­fé­lag­inu, til að mynda um fylgi stjórn­mála­flokka, fjöl­miðla­neyslu og við­horf til ýmissa mál­efna. 

Í til­kynn­ingu segir að mark­mið Ham­ars­hyls með kaup­unum sé að efla Gallup sem „sjálf­stætt rann­sókn­ar­fyr­ir­tæki sem sér almenn­ingi, stofn­unum og fyr­ir­tækjum fyrir áreið­an­legum og traustum upp­lýs­ingum um stöðu og þróun íslensks sam­fé­lags og mark­aða.“

Gallup á Íslandi er dótt­ur­fyr­ir­tæki Já og mun Ham­ars­hylur kaupa allt hlutafé þess af Já. Þegar kaupin hafa gengið í gegn verður Gallup á Íslandi rekið sem sjálf­stætt rann­sókn­ar­fyr­ir­tæki og mun ný stjórn aug­lýsa eftir nýjum fram­kvæmda­stjóra. Vilborg Helga Harð­ar­dóttir, for­stjóri Já hf., er einnig fram­kvæmda­stjóri Gallup á Íslandi og mun sinna því starfi áfram þar til gengið hefur verið frá ráðn­ingu nýs fram­kvæmda­stjóra.

Arctica Finance var ráð­gjafi í sölu­ferl­inu og Ax Lög­manns­þjón­usta ráð­gjafi kaup­anda. Gallup hefur verið leið­andi á sviði mark­aðs-, starfs­manna-, og við­horfs­rann­sókna á Íslandi og er með umboðið fyrir alþjóð­lega vöru­merkið Gallup en auk þess hefur fyr­ir­tækið teng­ingar við fleiri alþjóð­leg rann­sókn­ar­fyr­ir­tæki. Starfs­menn Gallup á Íslandi eru um 50 tals­ins á tveimur starfs­stöðvum, í Reykja­vík og á Akureyri.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár