Eigandi Arctic Fish setti tekjumet en kvartar yfir aukinni skattlagningu

Stærsti hluthafi ísfirska laxeldis­fyrir­tækisins Arctic Fish stærir sig af tekjum sínum upp á 195 milljarða. Fyrir­tækið ætlar að fara í mál við norska ríkið vegna aukinnar skatt­lagningar á sjókvíaeldið í landinu.

Leita réttar síns gegn ríkinu
Leita réttar síns gegn rík­inu For­stjóri Mowi, Ivan Vindheim, hefur gefið það út að fyr­ir­tækið ætli að leita réttar síns gegn norska rík­inu út af auk­inni skatt­lagn­ingu á lax­eldið.

Stærsti eigandi laxeldis­fyrir­tækisins Arctic Fish á Ísafirði hefur aldrei verið með hærri tekjur en á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Þrátt fyrir þetta kvartar fyrir­tækið yfir aukinni skatt­lagningu sem norsk yfirvöld ætla að leggja á laxeldi í landinu og segist ætla að höfða málinu gegn ríkinu. Þetta kemur fram í árshluta­uppgjöri norska laxeldis­fyrir­tækisins, Mowi, sem á meirihluta í Arctic Fish. Uppgjörið var kynnt í vikunni. Mowi er jafnframt stærsta laxeldis­fyrirtæki í heimi. Norskir fjöl­miðlar hafa fjallað um málið út frá þessum vinkli í vikunni. 

Á heimasíðu Mowi er uppgjörið kynnt með þeim hætti að met hafi verið slegið. „Annar metfjórðungur hjá Mowi“ segir þar. Tekjur fyrir­tækisins á þessum tíma námu 1.365 milljónum evra eða tæplega 195 milljörðum íslenskra króna. 

Með aukinni skatt­lagningu á sjókvíaeldið í Noregi hækkar auðlinda­skattur á fyrir­tækin úr 22 prósentum og upp í 47 prósent. Hin aukna skatt­lagning gildir aftur­virkt frá 1. janúar 2023. 

…
Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár