Athvarf frá öllu áreitinu - „Við vonum að þetta verði normið“

Lítið ljós, eyrnatappar og mjúkir púðar er meðal þess sem finna má í skyn­rým­inu Svigrúm sem sett var upp í Iðnó vegna Hinsegin daga. Þar er hægt að finna athvarf frá mann­mergð og háværri tón­list, og ein­fald­lega hlaða batt­er­íin. Móberg Ordal vonar að skyn­rými sem þetta sé fram­tíðin þegar kemur að aðgeng­is­málum, líkt og tákn­mál­stúlkar og rampar.

„Þú ert stödd inni í Svigrúmi, Sensory Space, sem að við settum upp á Hinsegin dögum til að auka aðgengi skynsegin fólks og fólks með skynúr­vinnslu­vanda, eða í raun­inni allra sem þurfa smá pásu, að hátíð­ar­höld­unum,“ segir Móberg Ordal, eitt af þeim sem komu að hönnun Svigrúms sem er opið í Pride Center í Iðnó yfir Hinsegin daga. 

Skynsegin fólk, sem á ensku kall­ast neurodi­vergent, er til að mynda þau sem eru með ein­hverfu, ADHD eða kvíð­arask­anir. Rýmið er þó öllum opið og ekk­ert þarf að útskýra af hverju fólk vill nýta sér það.

Mann­mergð, hávaði og annað áreiti verður ein­fald­lega sumum um of og þá getur verið gott að leita í skyn­rými sem þetta til að fá smá hvíld og hlaða batt­er­íin. 

Nauð­syn­legt að fá hvíldMaría Logn Krist­ínar- Ólafs­dóttir, Móberg Ordal og Kaamos Metsikkö sáu um útfærslu á hvíld­ar­rým­inu Svigrúm.

Hlutlaust og rólegt umhverfi

Svigrúm er á 2. hæð í Iðnó, á hægri hönd þegar gengið er inn í stóra sal­inn. Í rým­inu er dregið úr utan­að­kom­andi sky­náreiti á borð við ljós, hljóð og lykt, til að skapa hlut­laust og rólegt umhverfi sem gerir fólki kleift að slaka á og stilla sig af. 

Rýmið er hólfað niður til að hægt sé að vera út af fyrir sig, í því eru þægi­leg sæti, púðar, teppi og þyng­ing­ar­teppi sem fólki er vel­komið að nota. Glugg­a­rnir eru opnir til að halda súr­efn­is­flæði, draga úr lykt og koma í veg fyrir að of heitt verði í rým­inu. Á borði við inn­gang­inn í rýmið má finna eyrnatappa og heyrn­ar­hlífar, ásamt ýmis­konar fikt-dóti sem nota má til skynörv­unar, svo­kall­aðs stimm­ing, meðan fólk er í rým­inu.

Hugmyndin kemur frá Taugatjaldinu

Skyn­rýmið Svigrúm byggir á hug­mynd Jaakko Jäntti sem ber heitið Neuro-Tent, eða Tauga­tjaldið. Það setti hann fyrst upp á finnskri teknótón­list­ar­há­tíð fyrir nokkrum árum, í þeim til­gangi að mæta þörfum ein­hverfra teknóað­dá­enda og tón­list­ar­fólks.

Víða í skólum um allan heim er einnig farið að setja upp skyn­rými sem börn geta leitað í til að erill og áreiti skóla­dags­ins verði þeim ekki um megn. En full­orðið fólk þarf oft líka hvíld.

Jaakko er vinur Kaamos Metsikkö sem einnig kom að hönn­un­inni í Iðnó. Kaamos segir þau hafa getað litið til Tauga­tjalds­ins sem fyr­ir­myndar og það hafi verið hjálp­legt. Þau séu einnig þakk­lát fyrir að hafa fengið aðgang að þessu her­bergi á vegum Hinsegin daga.

„Þetta snýst ekki um það heldur jöfn tæki­færi, og það er það sem þetta Svigrúm gefur“
Móberg Ordal

Móberg segir skyn­rýmið hafa verið merki­lega vel sótt. „Við vissum ekki alveg við hverju var að búast, hvort við ættum að gera ráð fyrir traffík allan dag­inn en kannski að eng­inn kæmi. Við hugs­uðum að það eru tákn­mál­stúlkar hér á öllum við­burðum og það eru rampar fyrir aðgengi, og það eru ekk­ert alltaf ein­hverjir sem þurfa ramp­inn eða þurfa tákn­mál­stúlk­inn en þetta snýst ekki um það heldur jöfn tæki­færi, og það er það sem þetta Svigrúm gefur,“ segir Móberg.

Vonar að skynrými séu framtíðin

María Logn Krist­ínar- Ólafs­dóttir segir Svigrúm hugsað sem hvíld­ar­rými. „Þannig að það sem er mikið af frammi reynum við að hafa lítið af hér inni, þannig að við erum ekki með diskó­kúlur og ekki með háværa tón­list, og reynum að vera með þögn,“ segir hún. Raunar eru gerðar und­an­tekn­ingar fyrir einmitt þetta við­tal því dregið var eilítið frá glugg­unum og gerð und­an­þága frá þagn­ar­regl­unni.

Hún segir að það ein­fald­lega að boðið sé upp á skyn­rými á við­burðum geti orðið til þess að fólk mæti sem ann­ars hefði ekki treyst sér til þess. Kannski þurfi við­kom­andi ekki að nýta rýmið, en það veiti hug­arró að ein­fald­lega vita af því. 

Svigrúm verður opið á meðan hátíð­ar­dag­skrá Hinsegin daga stendur yfir, og gera þau ráð fyrir að loka annað hvort á laug­ar­dags­kvöld eða að morgni sunnu­dags. „Þá eru hvort eð er allir heima að hvíla sig,“ segir Móberg.

Spurt hvort skyn­rými sem þetta á við­burðum séu fram­tíðin segir hán: „Við vonum að þetta verði normið, rétt eins og tákn­mál­stúlkar og rampar.“

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár