Regnbogafánar skornir niður í Öskjuhlíð

Regn­boga­fánar við bens­ín­stöð Orkunnar voru skornir niður síð­ast­liðna nótt. Hinsegin fólk hefur lýst auk­inni andúð í sinn garð síð­ustu miss­eri og segja bakslag í rétt­inda­bar­áttu. Hinsegin dagar í Reykja­vík hefj­ast í næstu viku.

Regnbogafánar skornir niður í Öskjuhlíð
Hat­urs­glæpur Vís­vit­andi skemmd­ar­verk á táknum hinsegin fólks eru hat­urs­glæpur.

Regn­boga­fánar sem flaggað var við bens­ín­stöð Orkunnar í Öskju­hlíð voru skornir niður í nótt sem leið. Fánarnir, sem voru tveir, lágu á jörð­inni við fánastang­irnar þegar veg­far­endur áttu leið fram­hjá í morgun á meðan að fánar með merki Orkunnar blöktu áfram í gol­unni. Augljóst er því að ekki er um til­vilj­ana­kennd skemmd­ar­verk að ræða heldur bein­ast þau sér­stak­lega að hinsegin fólki. Hinsegin dagar í Reykja­vík hefj­ast form­lega eftir fjóra daga. 

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem regn­boga­fánar sem flaggað er við bens­ín­stöðvar Orkunnar eru skornir niður. Í fyrra­sumar, 18. ágúst, voru fjórir regn­boga­fánar skornir niður við bens­ín­stöð Orkunnar í Suð­ur­felli. Skömmu áður höfðu níu regn­boga­fánar sem flaggað var á Hellu verið skornir niður úr fána­stöngum þar í bæ, sem og regn­boga­fánar sem flaggað var fyrir utan Hjalla­kirkju í Kópavogi. 

Hinsegin fólk hefur lýst því að bakslag hafi orðið í rétt­inda­bar­áttu þess und­an­farin miss­eri. Í síð­ustu árs­skýrslu Sam­tak­anna ‘78 lýsti fram­kvæmda­stjóri sam­tak­anna, Daníel E. Arnarson, því sem hinsegin fólk stæði nú í miðjum stormi. Sagðar voru fréttir af áreiti á hendur ungu hinsegin fólki á götum á síð­asta ári og nas­ista­táknum sem máluð voru á skilti hinsegin daga, til að mynda. Skemmd­ar­verk á regn­boga­fánum eru enn ein birt­ing­ar­mynd andúðar í garð hinsegin fólks og eru hluti af hat­urs­orð­ræðu og hat­urs­glæpum í garð þess.

Skemmd­ar­verkEins og sjá má hefur fána­línan verið skorin á fána­stöng­inni. Það mun því þurfa að fella stöng­ina niður til að geta flaggað regn­boga­fán­unum að nýju.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Vilhjálmsson skrifaði
    Alvöru karlmenn eru ekki hræddir við regnboga. Það eru lítil snjókorn hins vegar. 🌈🌈🌈
    1
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Regnbogafánar eru tákn fjölbreytileikans og þar með tákn okkar allra. Þeir sem gera þetta gleyma að gagnkynhneigðir eru í raun einnig partur af litrófinu.
    Að standa fyrir réttindi samkynhneigðra og fleiri "jaðarhópa" skerðir ekki á neinn hátt tilveru "venjulegs" fólks.
    Þvert á móti finnst mér betra að búa í samfélagi sem virðir réttinda allra.
    1
  • ÞTÞ
    Þóroddur Tryggvi Þórhallsson skrifaði
    Fólk sem þetta gerir á bara bágt og ekkert nema bágt.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu