Nöfn fólksins sem lést í flugslysinu á Austurlandi

Þau þrjú sem lét­ust í flug­slysi á Aust­ur­landi á sunnu­dag voru í vinnu­ferð við reglu­legar hrein­dýra­taln­ingar þegar slysið varð. Vett­vangs­rann­sókn er lokið en orsakir slyss­ins eru óþekktar.

Vett­vangs­rann­sókn lög­reglu og Rann­sókn­ar­nefndar sam­gönguslysa í tengslum við flug­slys á sunnu­dag þar sem þrír lét­ust, telst lokið. Flug­vélin var því í gær­kvöldi flutt af slys­stað með aðstoð þyrlu Land­helg­is­gæslu og síðan land­leið­ina í húsa­kynni RNSA á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. 

Úrvinnsla gagna og öflun heldur áfram, og mun sú vinna taka nokkurn tíma. Ekki er vitað um orsakir slyss­ins. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni á Aust­ur­landi. 

Þar segir enn­fremur að þau sem lét­ust hafi verið við reglu­legar hrein­dýra­taln­ingar Nátt­úru­stofu Aust­ur­lands  þegar slysið varð. Þrjú voru um borð og lét­ust þau öll. 

Þau sem lét­ust voru:

Fríða Jóhann­es­dóttir, fædd 1982, spen­dýra­fræð­ingur
Kristján Orri Magn­ús­son, fæddur 1982, flug­maður
Skarp­héð­inn G. Þórisson, fæddur 1954, líf­fræð­ingur

Vett­vangs­rann­sókn hófst í kjöl­far þess að vélin fannst eftir tveggja stunda leit úr lofti og á láði. Rannsókn stóð yfir það kvöld og fram til morg­uns. Hún hélt svo áfram í gær seinni­part­inn.

Lögregla vekur athygli á minn­ing­ar­stund sem haldin verður í Egils­staða­kirkju í dag klukkan 18. Hún minnir og á sam­ráðs­hóp almanna­varna um áfalla­hjálp sem í boði er fyrir þá fjöl­mörgu sem eiga um sárt að binda eftir slysið.

Kveikt verður á kertum í minn­ingu þeirra sem lét­ust. Prestar kirkj­unnar ásamt full­trúum úr við­bragðs­hópi Rauða krossi Íslands á Aust­ur­landi verða á staðnum til sál­ræns stuðn­ings.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár