Átján leituðu til Stígamóta í fyrra eftir hópnauðgun

Fimmt­ungur kvenna sem leit­uðu til Stíga­móta í fyrra vegna nauð­gana eða nauðg­un­ar­til­rauna greindu frá því að ger­andi hafi nýtt sér með­vit­und­ar­leysi sitt vegna áfengis og/eða lyfja. Einn karl­maður greindi frá því sama. Sextán konur og tveir karl­menn leit­uðu þangað vegna hópnauðg­unar. Þetta kemur fram í árs­skýrslu Stíga­móta sem kom út í dag. Helm­ingur brota­þola nauðg­unar fraus eða fannst lík­am­inn lam­ast.

Eðlileg viðbrögð við óeðlilegum aðstæðum
Eðlileg við­brögð við óeðli­legum aðstæðum „Þessar nið­ur­stöður sýna að algeng við­brögð við kyn­ferð­is­of­beldi eru að frjósa eða finn­ast lík­ami sinn lam­ast, gera ekki neitt, eða berj­ast á móti með lík­am­legu afli eða orðum. Allt eru þetta eðli­leg við­brögð við þeim óeðli­legu aðstæðum sem kyn­ferð­is­of­beldi er,“ segir í árs­skýrslu Stíga­móta. Mynd: Shutterstock

Ríflega helm­ingur þeirra sem leit­uðu til Stíga­móta í fyrra eftir að hafa orðið fyrir nauðgun greindi frá því að þau hefðu frosið eða fund­ist lík­ami sinn lam­ast. Tæpur þriðj­ungur gerði ekk­ert. „Stundum er besta leiðin til að lifa af að gera ekki neitt eða frjósa,“ segir í árs­skýrslu Stíga­móta fyrir árið 2022 sem kom út í dag.

Grafið hér að neðan sýnir við­brögð brota­þola, ann­ars vegar þeirra sem urðu fyrir nauðgun og hins vegar þeirra sem beittir voru kyn­ferð­is­of­beldi þegar þeir voru börn. Þar sést að ríf­lega helm­ingur þeirra sem var nauðgað greindu frá að þeir hefðu frosið eða fund­ist lík­ami sinn lam­ast. Einnig kom fram að 27,3% þeirra sem var nauðgað gerðu ekk­ert og 24,6% létu sem ekk­ert væri. Þá kemur fram að hæsta hlut­fall ein­stak­linga sem beittir höfðu verið kyn­ferð­is­of­beldi sem barn gerðu ekk­ert, næst­hæsta hlut­fall hafði frosið eða fund­ist lík­ami sinn lam­ast og þriðja hæsta hlut­fallið sagð­ist hafa látið sem ekk­ert væri. 

Viðbrögð brota­þolaþegar ann­ars vegar nauðgun og hins vegar kyn­ferð­is­of­beldi gegn barni átti sér stað

„Þessar nið­ur­stöður sýna að algeng við­brögð við kyn­ferð­is­of­beldi eru að frjósa eða finn­ast lík­ami sinn lam­ast, gera ekki neitt, eða berj­ast á móti með lík­am­legu afli eða orðum. Allt eru þetta eðli­leg við­brögð við þeim óeðli­legu aðstæðum sem kyn­ferð­is­of­beldi er,“ segir í skýrsl­unni. 

Þá er bent á að við­brögð ein­stak­linga, líkt og dýra, geti verið þrenns konar þegar ein­stak­lingur upp­lifir áfall eða mik­inn ótta. „Ein­stak­lingar geta frosið, reynt að flýja eða barist á móti. Allt eru þetta við­brögð sem geta hjálpað okkur að lifa af erf­iðar aðstæður. Á Stíga­mótum lítum við svo á að það að frjósa eða gera ekki neitt séu eðli­leg við­brögð við kyn­ferð­is­of­beldi, líkt og það að flýja eða berj­ast á móti. Stundum er besta leiðin til að lifa af að gera ekki neitt eða frjósa,“ segir þar.

Færri ný mál

Árið 2022 leit­uðu 910 ein­stak­lingar til Stíga­móta, af þeim voru 397 ein­stak­lingar sem leit­uðu aðstoðar vegna eigin mála í fyrsta skipti. Þá leit­uðu 124 aðstand­endur í fyrsta sinn til Stíga­móta á árinu og þar af voru 48 með upp­lýs­ingar um mál sem ekki voru þekkt hjá Stíga­mótum.

Á síð­asta ári voru 397 ný mál þar sem brota­þolar komu sjálfir með mál sín til Stíga­móta. Þetta er um 14,6 % fækkun slíkra mála frá árinu 2021. En árið 2021 voru ný mál brota­þola 465 tals­ins og höfðu þá aldrei fleiri ein­stak­lingar leitað til Stíga­móta í fyrsta skipti vegna sinna mála frá stofnun sam­tak­anna.

Kyn brota­þolaFjöldi og hlut­fall brota­þola sem leit­uðu til Stíga­móta í fyrra, flokkað eftir kynjum.

Árið 2022 var svar­mögu­leik­anum „kynsegin“ bætt við svar­mögu­leik­ana „kona, karl og skil­greini kyn á annan hátt“ hjá Stíga­mótum. Taflan hér að ofan sýnir að fjórir ein­stak­lingar skil­greindu sig kynsegin. Eins og árin á undan leit­uðu umtals­vert fleiri konur en karlar til Stíga­móta árið 2022. Þá segir að athygl­is­vert sé að hlut­fall karla var 7,1% og hefur hlut­fall karla ekki verið lægra síðan árið 2000 en þá var hlut­fall karla um 4%. „Þessi munur á hlut­föllum milli ára gæti mögu­lega verið til­komin vegna lít­illar umræðu í sam­fé­lag­inu um kar­kyns brota­þola,“ segir í skýrsl­unni. 

Ástæður þess að leitað var til Stíga­móta árið 2022Það fólk sem nýtir sér þjón­ustu Stíga­móta kemur gjarnan til að vinna úr gömlum áföllum og þau geta verið fleiri en eitt. Þess vegna eru ástæður komu sem nefndar eru fleiri en ein­stak­ling­arnir (373)

Af þeim konum sem leit­uðu til Stíga­móta á árinu nefndi meiri­hluti nauðgun sem ástæðu fyrir komu, og eru það sam­bæri­legar nið­ur­stöður og koma fram í árs­skýrslum 2014 til 2021.

Mis­mun­andi birt­ing­ar­myndir nauð­gana/nauðg­un­ar­til­rauna árið 2022, skipt eftir kyni

„Athygli vekur að næst­hæsta hlut­fall kvenna nefndi að þeim hefði verið nauðgað/gerð til­raun til nauðg­unar þar sem með­vit­und­ar­leysi þeirra vegna áfengis og/eða lyfja var nýtt. Þetta eru sam­bæri­legar nið­ur­stöður og fram koma í árs­skýrslum frá árunum 2018 til 2021. Eins er athygl­is­vert að ein­ungis einn karl nefndi að honum hefði verið nauðgað eða gerð til­raun til þess þar sem með­vit­und­ar­leysi hans vegna áfengis og/eða lyfja var nýtt. Þessar nið­ur­stöður eru svip­aðar nið­ur­stöðum árs­skýrslu árs­ins 2021 en þar kom fram að engum karli hafði verið nauðgað eða gerð til­raun til þess þar sem með­vit­und­ar­leysi hans vegna áfengis og/eða lyfja var nýtt,“ segir í skýrsl­unni. Hana má í heild sinni lesa hér.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár