Hvalur Kristján Loftsson er fram­kvæmda­stjóri Hvals hf. Mynd: PressPhotos

Sagan af því þegar Kristján slúttaði vertíð og kenndi frekum sjómönnum um

Árið 2012 hætti Kristján Loftsson við að fara á hval­veiði­ver­tíð. Uppgefin ástæða var sú að Sjó­manna­fé­lagið gerð­ist svo djarft að setja fram kröfur um að Hvalur hf. bætti hval­föng­urum afnám sjó­manna­af­slátt­ar­ins. Fyr­ir­huguð upp­gripa­vinna við hval­veiðar og hval­skurð fyrir um hund­rað manns það sum­arið varð að engu, án þess að sam­tök vinn­andi fólks risu upp á aft­ur­lapp­irnar.

Ekki er útlit fyrir að lang­reyð­ar­veiðar fari fram í sumar, í kjöl­far þess að Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra tók ákvörðun um að fresta upp­hafi ver­tíð­ar­innar til 31. ágúst, í kjöl­far þess að hún fékk í hendur álit frá fagráði um dýra­vel­ferð. Ráð­herr­ann hefur lýst álit­inu sem svo afdrátt­ar­lausu og afger­andi að hún hafi orðið að bregð­ast við, í þágu dýra­vel­ferðar.

Þeir sem horfðu fram á upp­gripa­vinnu hjá Hval hf. í sumar, vel laun­aða erf­ið­is­vinnu við að veiða hval eða gera að honum í hval­stöð­inni í Hval­firði, eru þeir sem helst finna fyrir þess­ari ákvörðun ráð­herra og hafa lýst yfir mik­illi óánægju, meðal ann­ars á fjöl­mennum fundi sem fram fór á Akranesi á vegum Verka­lýðs­fé­lags Akraness á fimmtu­dags­kvöld.

Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem hval­veiði­ver­tíð er slaufað með fremur skömmum fyr­ir­vara, þó fyr­ir­var­inn sé vissu­lega afar skammur nú. Það var gert fyrir 11 árum, eða árið 2012. Þá var það hins vegar ekki „öfga­fullur komm­ún­isti“ í mat­væla­ráðu­neyt­inu sem tók þá ákvörðun, svo notuð séu orð Krist­jáns Lofts­sonar um Svandísi Svav­ars­dóttur, heldur Kristján sjálfur, einn helsti kap­ít­alisti lands­ins, í kjöl­far deilu við Sjó­manna­fé­lag Íslands vegna launa háseta á hval­veiði­bát­unum.

Sjó­manna­fé­lagið gerði kröfu um að Hvalur hf. bætti háset­unum upp þá skerð­ingu sem hafði nýlega orðið á sjó­manna­af­slætt­inum. Þá ákvað Kristján að betur væri heima setið en af stað haldið, þrátt fyrir að kostn­aður við að bæta sjó­mönnum upp sjó­manna­af­slátt­inn væri ekki stór­kost­legur. Samkvæmt for­síðu­frétt Morg­un­blaðs­ins um málið frá 8. maí 2012 var áætlað að um 100 manns fengju vinnu við úthaldið í þrjá til fjóra mán­uði. Til stóð að veiða um 60 til 70 lang­reyðar þetta sumar, en ekk­ert varð af því.

Ekki háar tölur, heldur prinsipp Kristjáns

Bergur Þor­kels­son er í dag for­maður Sjó­manna­fé­lags Íslands, en var á árum áður starfs­maður á skrif­stof­unni hjá félag­inu og seg­ist muna nokkuð vel eftir þess­ari deilu við Kristján.

FormaðurBergur Þor­kels­son er for­maður Sjó­manna­fé­lags Íslands.

„Hann [Kristján Loftsson] kom með samn­ing sem var keim­líkur þeim sem hafði verið árið á undan með ein­hverjum hækk­unum. Jónas Garð­ar­son var for­maður þá og sagði að þetta dygði ekki til, hann yrði að koma með sjó­manna­af­slátt­inn ofan á þetta. Það voru ekk­ert svaka­lega háar tölur en það var eitt­hvað prinsipp hjá honum og hann fór ekki á hval­veiðar það árið. Síðan hefur ekki verið gerður kjara­samn­ingur við okkur,“ segir Bergur við Heim­ild­ina.

Sjó­manna­af­slátt­ur­inn, skatta­af­sláttur fyrir sjó­menn sem nam rúmum 900 krónum fyrir hvern dag á sjó, alls að hámarki rúm­lega 500 þús­und krónur yfir árið, var afnum­inn í tíð rík­is­stjórnar Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna.

„Stein­grímur [J. Sig­fús­son] tók þetta af og sagði að sjó­manna­fé­lögin þyrftu bara að sækja þetta í útgerð­ar­menn. Það hefur ekki tek­ist í fiskirí­inu, og Kristján vildi ekki bæta þetta, en við höfum náð þessu hjá Gæslunni og Hafró, hjá rík­inu, og hjá ferj­unum og frakt­skip­unum, en ekki ann­ars­staðar. Útgerð­ar­menn­irnir segja að þetta sé bara á milli okkar og rík­is­ins,“ segir Bergur.

Efast um að þetta hafi verið raunverulega ástæðan

Hann seg­ist stór­efa að sjó­manna­af­slátt­ur­inn hafi verið raun­veru­leg ástæða þess að Hvalur hf. hélt ekki til lang­reyð­ar­veiða árið 2012, en fyr­ir­tækið hafði ekki heldur farið til veið­anna árið 2011. „Hann hefur viljað kenna ein­hverjum öðrum um þetta,“ segir Bergur um Kristján og kímir.

„En þetta er skrítin staða núna. Þessir sjó­menn sem voru búnir að ráða sig núna til Hvals voru búnir að taka sér frí, ég veit um þrjá sem eru á frysti­tog­urum sem voru búnir að taka sér frí tíma­bundið úr þeim plássum, en þeir voru ekki komnir með ráðn­ing­ar­samn­inga við Hval svo þeir eru ekki með neitt í hönd­unum,“ segir Bergur.

Málið kom aldrei inn á borð Vilhjálms og VLFA

Verka­lýðs­fé­lag Akraness hefur beitt sér af hörku fyrir hönd félags­manna sinna vegna ákvörð­unar mat­væla­ráð­herra nú og segir for­maður þess, Vil­hjálmur Birg­is­son, að hann telji um stór­hættu­lega stjórn­sýslu að ræða, sem hafi miklar afleið­ingar fyrir hans félags­menn.

Blaða­maður ræddi við Vilhjálm um það þegar Hvalur hélt ekki á ver­tíð árið 2012, af þeirri ástæðu, sem áður segir, að Sjó­manna­fé­lagið gerði kröfu um launa­upp­bót vegna afnáms sjó­manna­af­slátt­ar­ins. 

VLFAVil­hjálmur Birg­is­son verka­lýðs­leið­togi á Akranesi er afar óhress með ákvörðun Svan­dísar Svav­ars­dóttir.

„Þegar þú ert að tala um 2012 og sjó­menn­ina, þá eru þeir ekki í VLFA heldur í sjó­manna­fé­lög­unum. Ég á alveg fullt í fangi með að verja afkomu minna félags­manna og tek ekki að mér að verja hags­muni þeirra sem til­heyra öðrum stétt­ar­fé­lögum. Það er þeirra að gera það,“ segir Vil­hjálmur.

Blaða­maður benti á að þetta tengd­ist nú saman, menn fengju ekki vinnu í landi nema haldið væri til sjós.

Vil­hjálmur segir hins vegar að þetta mál, og ver­tíð­arslúttið hjá Hval árið 2012, hafi aldrei komið inn á hans borð og hann þekki það lítið.

Hefur tekið harða slagi við Kristján og tekur nú slag við ráðherra

Hann rifjar hins vegar upp að hann hafi tekið harða slagi við Kristján Loftsson og Hval hf. og m.a. farið með fyr­ir­tækið fyrir dóm­stóla árin 2017-18 vegna ágrein­ing um ráðn­ing­ar­kjör.

„Það mál var leitt til lykta á öllum dóm­stigum, alveg upp í Hæsta­rétt, og við unnum það mál og síðan hafa launin tekið mið af þeim dómum sem þar féllu og hækk­uðu launin all­veru­lega og Hvalur þurfti að greiða til baka. Það sýnir að hlut­verk VLFA í þessu máli er alltaf nr. 1, 2 og 3 fyrir hags­munum félags­manna og þessi bar­átta okkar núna lýtur að þessum hags­munum. Það er bara þannig.“

Vil­hjálmur lýsir því að þeir sem höfðu ráðið sig á ver­tíð í ár hafi gert ýmsar ráð­staf­anir, um að taka frí úr annarri vinnu, segja jafn­vel upp annarri vinnu, og leigja út hús­næði sitt tíma­bundið, því þeim stendur til boða að búa frítt í hval­stöð­inni. „En þá kemur bara ein­hver ráð­herra sem er búinn að sturta með­al­hóf­inu í kló­settið. Svona komum við ekki fram við fólk og lífs­af­komu þeirra,“ segir Vil­hjálmur Birg­is­son.

Kjósa
41
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Einarsson skrifaði
    Poppúlisetinn Vilhjálmur afhjúpar sig þarna all rækilega.
    1
  • Kolbrún Karldsdóttir skrifaði
    Er ráðherra í raun ábyrg fyrir því að Hvalur hf. hafi ekki farið í neinar af úrbótunum sem voru nauðsynlegar og fyrirtækið á undanþágu ár eftir ár án þess að ganga í að laga neitt? Er ekki verið að setja ábyrgðina á rangan aðila þarna?
    9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár