Hundrað ár frá fyrstu íslensku kvikmyndinni

Á þjóð­há­tíð­ar­dag­inn var öld liðin frá því að gam­an­mynd Lofts Guð­munds­sonar, Ævintýri Jóns og Gvendar, var frum­sýnd. Aðeins tvær mín­útur hafa varð­veist af mynd­inni, sem Heim­ildin birtir með leyfi Kvik­mynda­safns­ins. Mikið af íslenskri kvik­mynda­sögu á í hættu að glat­ast og hefur safnið þurft að baka gamlar spólur í ofni svo hægt sé að horfa á þær.

Hundrað ár frá fyrstu íslensku kvikmyndinni
Kvik­mynda­safn Íslands Gunnar og Þóra og sam­starfs­menn þeirra bera ábyrgð á varð­veislu kvik­mynda­sögu Íslands sem varð­veitt er staf­ræn, á filmu og alls konar spólum, sem sumar eru úreldar og liggja undir skemmdum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Það eina sem varð­veist hefur af fyrstu íslensku kvik­mynd­inni er tveggja mín­útna atriði þar sem tveir klaufskir borg­ar­drengir reyna að sýna fúl­skeggj­uðum bónda að þeir kunni til verka í sveit­inni. Myndin heitir Ævintýri Jóns og Gvendar og var frumraun leik­stjór­ans Lofts Guð­munds­sonar í gerð leik­inna mynda árið 1923. Er því öld síðan þessi svart-hvíta, þögla stutt­mynd kom út, en hún var frum­sýnd 17. júní í Nýja bíói í Reykja­vík.

Heil 26 ár liðu þar til önnur íslensk mynd leit dags­ins ljós og var Loftur þar aftur að verki. Hafði tækn­inni þá fleygt fram. „Við biðum til 1949 þar til næsta íslenska leikna mynd var gerð, sem er bara ótrú­legt,“ segir Gunnar Tómas Krist­ó­fers­son, sér­fræð­ingur hjá Kvik­mynda­safni Íslands, um aðra mynd Lofts, Milli fjalls og fjöru. „Við erum með þessa, Ævintýri Jóns og Gvendar, sem var mjög gam­al­dags mynd jafn­vel fyrir sinn sam­tíma og svo liðu 26 ár þar til næsta …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MSB
    Margrét S. Björnsdóttir skrifaði
    Skemmtilegt, meira svona- Og btw Þóra er frábær forstöðumaður og hefur gert mikið til að kynna efni safnsins.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár